Sakramentin sjö

Sakramentin sjö

Rogier van der Weyden, 1450

Hvað sakramenti er

Kaþólska Kirkjan heiðrar sjö sakramenti, hina helgu arfleifð frá Drottni sínum. Þau eru hluti lífs og trúar sérhvers manns. Kristur gefur sig mönnunum í og með sakramentum. Þegar menn meðtaka þessar gjafir styrkjast þeir í von og kærleika og verða fullvissir um elsku Guðs.

Við veitingu sakramentanna er ekki aðeins rætt um hjálpræði og að tilheyra Guði. Sakramentin eru áhrifarík tákn og sameina okkur raunverulega betur Guði og veita endurlausn.

Sakramentin eru sýnileg tákn um ósýnilegan raunveruleika hjálpræðisins. Vegna þess að Guð hefur sömu áhrif og það sem þau vísa til.

Sakramentin sjö

Í skírninni erum við tekin upp í kirkju Jesú Krists á morgni lífs okkar.

Í fermingunni eru ungmenni styrkt og helguð með gjöf Heilags anda.

Altarissakramentið færir hinum trúuðu hlutdeild í lífi Drottins og myndar samfélag þeirra með honum.

Í sakramenti iðrunar og sátta er þeim sem syndgað hafa boðnar sættir í skriftunum og þeim fyrirgefið.

í sakramenti sjúkra fá sjúkir von og styrk.

Í vígslusakramentinu er djáknum, prestum, og biskupum falið sérstakt þjónustuhlutverk við kirkjuna.

Í sakramenti hjónabandsins lofa brúðhjónin hvort öðru tryggð og kærleika; samfélagið sem þau búa í er eftirmynd þess samfélags sem við eigum við Guð.

Sjö, og hvers vegna þau eru ólík

Þrjú þeirra eru gengin í gegn einu sinni og aldrei aftur: skírn, ferming og vígsla. Kirkjan segir að þau setji varanlegt mark og því sé ekki hægt að endurtaka þau.

Tvö eru endurtekin eins oft og þörf er á: skriftir og altarissakramentið. Tvö eru bundin við ákveðnar aðstæður: hjónaband og smurning sjúkra.

Óstaðfestur texti

Hvenær maður tekur á móti þeim

Á Íslandi er algengast að barn sé skírt ungt, gangi til fyrstu altarisgöngu um níu ára aldur eftir undirbúning hjá presti, og fermist á unglingsárum.

Fullorðinn maður sem vill verða kaþólskur fer aðra leið: undirbúning hjá presti sem tekur venjulega nokkra mánuði og lýkur með skírn eða upptöku í kirkjuna, oft á páskavöku. Sóknarprestur veit hvernig það er skipulagt hverju sinni.

Óstaðfestur texti

Texti frá catholica.is. Kaflar merktir „Óstaðfestur texti“ eru okkar eigin texti og bíða yfirlestrar sóknarinnar.