Ferming

Ferming

Nicolas Poussin, 1645

Hvað hún er

„Ferming“ er dregið af orðinu „firmare“ sem á latínu merkir „að staðfesta.“ Í fermingunni felst ákvörðun um að staðfesta skírnarheitin og er sú ákvörðun tekin af fúsum og frjálsum vilja. Uppfrá því er viðkomandi fullgildur kaþólikki með öllum réttindum og skyldum sem því fylgir.

Hinn Heilagi Andi

Hinn þátturinn í fermingunni er gjöf hins Heilaga Anda. Í Postulasögunni er sagt frá því þegar andinn kom yfir lærisveinana á hvítasunnu; fermingin tengist þeim atburði beint.

Biskup — eða prestur með umboði hans — leggur hendur yfir fermingarbarnið og smyr enni þess með krisma, ilmandi olíu sem biskup vígir árlega.

Í yfirlestri

Fermingarfræðsla

Fyrir ferminguna sækir fermingarbarnið fræðslu í kristnum fræðum hjá presti. Í fermingarfræðslunni gefst unglingunum tækifæri til þess að spyrja spurninga og íhuga trúnna og lífið. Fræðsluna annast prestar, reglusystur og leikmenn. Biskupsdæmið hefur gefið út trúfræðslurit og vinnubækur á íslensku. Prestar eða systur skipuleggja sérstaka kvertíma víðsvegar um landið handa börnum sem aðeins tala eða skilja pólsku eða ensku. Börn sem búa fjarri þeim stöðum þar sem skipulögð trúfræðsla fer fram geta tekið þátt í bréfaskóla.

Nánari upplýsingar veita sóknarprestar.

Ef þú fermdist aldrei

Fullorðinn maður sem var skírður en aldrei fermdur getur fermst hvenær sem er. Það er algengara en fólk heldur og enginn gerir veður út af því. Talaðu við sóknarprest.

Í yfirlestri

Greinar sem þú tendrar birtast í Vistað.

Texti frá catholica.is. Kaflar merktir „Í yfirlestri“ eru okkar eigin texti og bíða yfirlestrar sóknarinnar.