Miðvikudagur í 30. viku almenns kirkjutíma
Virkur dagur á hinum almenna kirkjutíma.
Almennur kirkjutími · Vika 30Litur dagsins er grænn — litur vaxtar og hins almenna kirkjutíma.
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
Ritningarlestrar þessa dags eru ekki tilgreindir hér.
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Í Drottni' ef viltu deyja,Drottni þá lifðu hér,til ills lát ei þig teygja,orð Guðs sé kærast þér.Sæll er sá svo við býst,en ef þig ófall hendir,aftur í tíma vendi,undan drag iðrun síst.Brot þín skalt bljúgur játa,en bið þó Guð um náð,af hjarta hryggur gráta,en heilnæm þiggja ráð.Umfram allt þenktu þó:Son Guðs bar þínar syndir,og, svo þú miskunn fyndir,saklaus fyrir sekan dó.Drottinn, lát mig ei dyljastdárlega syndir við,þó hér um stund megi hyljast.Herra trúr, þess ég bið:Nær heimi fer ég frá,örvænting ei mér grandi,orð þitt og sannleiks andihjartað mitt huggi þá. Amen.
Sálmur 77
Andstef · Guð, helgur er vegur þinn, hver er svo mikill guð, sem Drottinn?
1Til söngstjórans. Fyrir Jedútún. Asafs–sálmur.
2Ég kalla til Guðs og hrópa * kalla til Guðs, að hann megi heyra til mín.
3Þegar ég er í nauðum, leita ég Drottins * rétti út hendur mínar um nætur og þreytist ekki, sál mín er óhuggandi.
4Ég minnist Guðs og kveina * ég styn, og andi minn örmagnast. [Sela]
5Þú heldur uppi augnalokum mínum * mér er órótt og ég má eigi mæla.
6Ég í huga fyrri daga * ár þau sem löngu eru liðin,
7ég minnist strengjaleiks míns um nætur * ég hugleiði í hjarta mínu, og andi minn rannsakar.
8Mun Drottinn þá útskúfa um * eilífð og aldrei framar vera náðugur?
9Er miskunn hans lokið um eilífð * fyrirheit hans þrotin um aldir alda?
10Hefur Guð gleymt að sýna líkn * byrgt miskunn sína með reiði? [Sela]
11Þá sagði ég: „Þetta er kvöl mín * að hægri hönd Hins hæsta hefur brugðist.“
12Ég víðfrægi stórvirki Drottins * ég vil minnast furðuverka þinna frá fyrri tíðum,
13ég íhuga allar athafnir þínar * athuga stórvirki þín.
14Guð, helgur er vegur þinn * hver er svo mikill Guð sem Drottinn?
15Þú ert Guð, sá er furðuverk gjörir * þú hefur kunngjört mátt þinn meðal þjóðanna.
16Með máttugum armlegg frelsaðir þú lýð þinn * sonu Jakobs og Jósefs. [Sela]
17Vötnin sáu þig, ó Guð * vötnin sáu þig og skelfdust, og undirdjúpin skulfu.
18Vatnið streymdi úr skýjunum * þrumuraust drundi úr skýþykkninu, og örvar þínar flugu.
19Reiðarþrumur þínar kváðu við * leiftur lýstu um jarðríki, jörðin skalf og nötraði.
20Leið þín lá gegnum hafið, stígar þínir gegnum mikil vötn * og spor þín urðu eigi rakin.
21Þú leiddir lýð þinn eins * og hjörð fyrir Móse og Aron.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Guð, helgur er vegur þinn, hver er svo mikill guð, sem Drottinn?
Sálmur — 1 S 2, 1-10 — Hinn fátæki gleðst í Drottni
Andstef · Hjarta mitt fagnar í Drottni, sem niðurlægir og upphefur.
1Hanna gjörði bæn sína og mælti: Hjarta mitt fagnar í Drottni * horn mitt er hátt upp hafið fyrir fulltingi Drottins. Munnur minn er upp lokinn gegn óvinum mínum, því að ég gleðst yfir þinni hjálp.
2Enginn er heilagur sem Drottinn, því að enginn er til nema þú * ekkert bjarg er til sem vor Guð.
3Mælið eigi án afláts drambyrði, ósvífni komi eigi út af munni yðar. Því að Drottinn er Guð * sem allt veit, og af honum eru verkin vegin.
4Bogi kappanna er sundur brotinn * en máttfarnir menn gyrðast styrkleika.
5Mettir leigja sig fyrir brauð, en hungraðir njóta hvíldar. Óbyrjan fæðir jafnvel sjö * en margra barna móðirin mornar og þornar.
6Drottinn deyðir og lífgar * færir til Heljar niður og leiðir upp þaðan.
7Drottinn gjörir fátækan og ríkan * niðurlægir og upphefur.
8Hann reisir hinn lítilmótlega úr duftinu, lyftir hinum snauða upp úr skarninu * leiðir þá til sætis hjá þjóðhöfðingjum og setur þá á tignarstól. Því að Drottinn heyra stólpar jarðarinnar, á þá setti hann jarðríkið.
9Fætur sinna guðhræddu varðveitir hann, en hinir guðlausu farast í myrkri * því að fyrir eigin mátt sigrar enginn.
10Þeir sem berjast móti Drottni, verða sundur molaðir * hann lætur þrumur af himni koma yfir þá. Drottinn dæmir endimörk jarðarinnar. Hann veitir kraft konungi sínum og lyftir upp horni síns smurða.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hjarta mitt fagnar í Drottni, sem niðurlægir og upphefur.
Sálmur 97
Andstef · Drottinn er konungur orðinn. Jörðin fagni.
1Drottinn er konungur orðinn! jörðin fagni * eyjafjöldinn gleðjist.
2Ský og sorti eru umhverfis hann * réttlæti og réttvísi eru grundvöllur hásætis hans,
3eldur fer fyrir honum * og bálast umhverfis spor hans.
4Leiftur hans lýsa um jarðríki * jörðin sér það og nötrar.
5Björgin bráðna sem vax fyrir Drottni * fyrir Drottni gjörvallrar jarðarinnar.
6Himnarnir kunngjöra réttlæti hans * og allar þjóðir sjá dýrð hans.
7Allir skurðgoðadýrkendur verða til skammar * þeir er stæra sig af falsguðunum. Allir guðir falla fram fyrir honum.
8Síon heyrir það og gleðst * Júdadætur fagna sakir dóma þinna, Drottinn.
9Því að þú, Drottinn, ert Hinn hæsti yfir gjörvallri jörðunni * þú ert hátt hafinn yfir alla guði.
10Drottinn elskar þá er hata hið illa * hann verndar sálir dýrkenda sinna, frelsar þá af hendi óguðlegra.
11Ljós rennur upp * réttlátum og gleði hjartahreinum.
12Gleðjist, þér réttlátir, yfir Drottni * vegsamið hans heilaga nafn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn er konungur orðinn. Jörðin fagni.
Stuttur ritningarlestur
Rm 8, 35. 37Hver mun gjöra oss viðskila við kærleika Krists? Mun þjáning geta það eða þrenging, ofsókn, hungur eða nekt, háski eða sverð? Nei, í öllu þessu vinnum vér fullan sigur fyrir fulltingi hans, sem elskaði oss.
Stutt svarvers
Ég vil vegsama Drottin * alla tíma.
Ég vil vegsama Drottin * alla tíma.
Ætíð sé lof hans mér í munni.
Alla tíma.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Ég vil vegsama Drottin * alla tíma.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Þjónum Drottni í heilagleika alla daga vora.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Blessaður sé Guð, frelsari vor, sem hét að vera með Kirkju sinni allt til enda veraldar. Færum honum þakkir og segjum:Dvel hjá oss, Drottinn.Dvel hjá oss, Drottinn, allan daginn,allt þar til sól náðar þinnar hnígur til sjávar.Vér helgum þér athafnir vorar og erfiði,og heitum að vinna þér af trúum og heilum huga.Gef, Drottinn, að ljós þitt fylli þennan dag,að vér séum salt jarðar og ljós heimsins.Kærleiki Heilags Anda þíns leiði hjörtu vor og varir í dag,svo að vér séum stöðug í réttlæti þínu og lofgerð.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Send, Drottinn, ljós dýrðar þinnar í hjörtu vor, svo að vér látum eigi afvegaleiðast heldur göngum stöðugt á vegum boða þinna. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Vér lofum þig, Kristur, semkemur og ert meðal þinna,vér tilbiðjum undrið, aðoss viltu muna og finna.Og allt það, sem spillti voruppreisn gegn þér, viltu bæta,því dauðinn í oss þínuupprisulífi skal mæta.Sem þjónn vor og bróðir hérertu og allt viltu gefaoss börnunum snauðum ogblindum af vantrú og efa.Það líf, sem oss týndist, þíntrúfesti aftur oss gefur,þú gefur þig sjálfan viðborðið, sem blessað þú hefur.Og vér, sem þig svikum, ílofsöng og fögnuði færumstfrá dauða til lífs, er vérþiggjum og neytum og nærumst.Vér tilbiðjum undrið, aðoss viltu muna og finna,vér lofum þig, Kristur, semkemur og ert meðal þinna. Amen.
Sálmur 113
Andstef · Hið eilífa ljós mun lýsa yfir dýrlingum þínum, Drottinn, og þeir munu lifa að eilífu, hallelúja.
1Hallelúja. Þjónar Drottni * lofið, lofið nafn Drottins.
2Nafn Drottins sé blessað héðan * í frá og að eilífu.
3Frá sólarupprás til sólarlags * sé nafn Drottins vegsamað.
4Drottinn er hafinn yfir allar * þjóðir og dýrð hans yfir himnana.
5Hver er sem Drottinn * Guð vor? Hann situr hátt
6og horfir djúpt á * himni og á jörðu.
7Hann reisir lítilmagnann úr duftinu * lyftir snauðum upp úr saurnum
8og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum * hjá tignarmönnum þjóðar hans.
9Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa * í næði sem glaða barnamóður. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hið eilífa ljós mun lýsa yfir dýrlingum þínum, Drottinn, og þeir munu lifa að eilífu, hallelúja.
Sálmur 147, 12-20
Andstef · Jerúsalem, borg Guðs, börn þín munu veita þér fögnuð, því að öll munu þau blessuð verða og þeim mun verða safnað saman með Drottni, hallelúja.
12Vegsama Drottin, Jerúsalem * lofa þú Guð þinn, Síon,
13því að hann hefur gjört sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum * blessað börn þín, sem í þér eru.
14Hann gefur landi þínu frið * seður þig á hinu kjarnbesta hveiti.
15Hann sendir orð sitt til jarðar * boð hans hleypur með hraða.
16Hann gefur snjó eins og ull * stráir út hrími sem ösku.
17Hann sendir hagl sitt sem brauðmola * hver fær staðist frost hans?
18Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna * lætur vind sinn blása, og vötnin renna.
19Hann kunngjörði Jakob orð sitt * Ísrael lög sín og ákvæði.
20Svo hefur hann eigi gjört við neina þjóð * þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Jerúsalem, borg Guðs, börn þín munu veita þér fögnuð, því að öll munu þau blessuð verða og þeim mun verða safnað saman með Drottni, hallelúja.
Sálmur — Opb 19, 1-2. 5-7
Andstef · Frammi fyrir hásæti Guðs og Lambsins munu hinir heilögu syngja nýjan söng; raddir þeirra munu hljóma um allan heim, hallelúja.
1Eftir þetta heyrði ég sem sterkan ym mikils fjölda á himni. Þeir sögðu * „Hallelúja! Hjálpræðið og dýrðin og mátturinn er Guðs vors.
2Sannir og réttlátir eru dómar hans. Hann hefur dæmt skækjuna miklu * sem jörðunni spillti með saurlifnaði sínum, og hann hefur látið hana sæta hefnd fyrir blóð þjóna sinna.“
5Og frá hásætinu barst rödd, er sagði: „Lofsyngið Guði vorum * allir þér þjónar hans, þér sem hann óttist, smáir og stórir.“
6Þá heyrði ég raddir sem frá miklum mannfjölda og sem nið margra vatna og sem gný frá sterkum þrumum. Þær sögðu * „Hallelúja, Drottinn Guð vor, hinn alvaldi, er konungur orðinn.
7Gleðjumst og fögnum og gefum honum dýrðina * því að komið er að brúðkaupi lambsins og brúður hans hefur búið sig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Frammi fyrir hásæti Guðs og Lambsins munu hinir heilögu syngja nýjan söng; raddir þeirra munu hljóma um allan heim, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Heb 12, 22-24Þér eruð komnir til Síonfjalls og borgar Guðs lifanda, hinnar himnesku Jerúsalem, til tugþúsunda engla, til hátíðarsamkomu og safnaðar frumgetinna, sem á himnum eru skráðir, til Guðs, dómara allra, og til anda réttlátra, sem fullkomnir eru orðnir, og til Jesú, meðalgangara nýs sáttmála, og til blóðsins, sem hreinsar og talar kröftuglegar en blóð Abels.
Stutt svarvers
Hinir réttlátu munu gleðjast * í nærveru Drottins.
Hinir réttlátu munu gleðjast * í nærveru Drottins.
Þeir munu syngja lofsöng
í nærveru Drottins.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Hinir réttlátu munu gleðjast * í nærveru Drottins.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Hinn dýrlegi flokkur postulanna lofar þig, hinn göfugi félagsskapur spámannanna lofar þig, hvítklæddur herskari píslarvottanna lofar þig, allir hinir heilögu syngja þér dýrðina, ó heilög Þrenning, einn Guð.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Bjarga þú lýð þínum, Drottinn.Endurnýjaðu Kirkju þína ævinlega.Umvefðu páfa N. með gjöfum þínum.Hjálpaðu biskupi vorum N.Varðveittu þjóðir í friði.Vertu viðstaddur á öllum heimilum.Minnstu samfélags vors.Styddu réttlæti.Blessaðu uppskeru bændanna.Vertu nálægur ferðamönnum.Stattu með listamönnum.Styrktu ekkjur.Gef látnum eilíft líf.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Almáttugi eilífi Guð, þú hefur gefið oss að vegsama verðleika allra dýrlinga þinna með einni hátíð. Vér biðjum að fyrir bænarstað svo margra dýrlinga veitir þú oss þá gnægð miskunnar þinnar sem vér þráum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 4
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.
2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.
3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]
4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]
6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.
7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.
9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
Sálmur 134
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.
2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.
3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
Stuttur ritningarlestur
5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007