Fimmtudagur í 15. viku almenns kirkjutíma
Virkur dagur á hinum almenna kirkjutíma.
Almennur kirkjutími · Vika 15Litur dagsins er grænn — litur vaxtar og hins almenna kirkjutíma.
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
Ritningarlestrar þessa dags eru ekki tilgreindir hér.
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Hvorki með hefð né ránihér þetta líf ég fann,sálin er svo sem að lánisamtengd við líkamann.Í Herrans höndum stendurað heimta sitt af mér,dauðinn má segjast sendurað sækja, hvað skaparans er.Nú vel, í Herrans nafni,fyrst nauðsyn ber til slík,ég er ei þeirra jafni,sem jörðin geymir nú lík.Hvenær sem kallið kemur,kaupir sig enginn frí,þar læt ég nótt, sem nemur,neitt skal ei kvíða því.Ég veit, minn ljúfur lifirlausnarinn himnum á,hann ræður öllu yfir,einn heitir Jesús sá,sigrarinn dauðans sannisjálfur á krossi dóog mér svo aumum mannieilíft líf víst til bjó. Amen.
Sálmur 87
Andstef · Dýrlega er talað um þig, þú borg Guðs.
1Kóraíta–sálmur. Ljóð.
2Drottinn grundvallaði borg sína á heilögum fjöllum * hann elskar hlið Síonar framar öllum bústöðum Jakobs.
3Dýrlega er talað um þig * þú borg Guðs. [Sela]
4Ég nefni Egyptaland og Babýlon vegna játenda minna þar * hér er Filistea og Týrus, ásamt Blálandi, einn er fæddur hér, annar þar.
5En Síon kallast móðirin, hver þeirra er fæddur í henni * og hann, Hinn hæsti, verndar hana.
6Drottinn telur saman í þjóðaskránum * einn er fæddur hér, annar þar. [Sela]
7Og menn syngja eins og þeir er stíga dans * „Allar uppsprettur mínar eru í þér.“
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Dýrlega er talað um þig, þú borg Guðs.
Sálmur — Jes 40, 10-17 — Hinn góði hirðir: Hinn hæsti og alvitri Guð
Andstef · Drottinn kemur sem hetja, og endurgjald hans fylgir honum.
10Sjá, hinn alvaldi Drottins kemur sem hetja, og armleggur hans aflar honum yfirráða. Sjá * endurgjald hans fylgir honum, og fengur hans fer á undan honum.
11Eins og hirðir mun hann halda hjörð sinni til haga * taka unglömbin í faðm sér og bera þau í fangi sínu, en leiða mæðurnar.
12Hver hefur mælt vötnin í lófa sínum og stikað himininn með spönn sinni * innilukt duft jarðarinnar í mælikeri og vegið fjöllin á reislu og hálsana á metaskálum?
13Hver hefur leiðbeint anda Drottins * hver hefur verið ráðgjafi hans og frætt hann?
14Hvern hefur hann sótt að ráðum, þann er gæfi honum skilning og kenndi honum leið réttvísinnar * uppfræddi hann í þekkingu og vísaði honum veg viskunnar?
15Sjá, þjóðirnar eru sem dropi í vatnskjólu og metnar sem ryk á vogarskálum. Sjá * eylöndunum lyftir hann upp eins og duftkorni.
16Og Líbanon–skógur hrekkur ekki til eldsneytis * og dýrin í honum ekki til brennifórnar.
17Allar þjóðir eru sem ekkert fyrir honum * þær eru minna en ekki neitt og hégómi í hans augum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn kemur sem hetja, og endurgjald hans fylgir honum.
Sálmur 99
Andstef · Tignið Drottin Guð vorn, og fallið fram fyrir hans heilaga fjalli.
1Drottinn er konungur orðinn! Þjóðirnar skjálfi. * Hann situr uppi yfir kerúbunum, jörðin nötri.
2Drottinn er mikill á Síon og * hátt upp hafinn yfir alla lýði.
3Þeir skulu lofa nafn þitt * hið mikla og óttalega. Heilagur er hann!
4Þú ert voldugur konungur, sem elskar réttinn, þú hefur staðfest réttvísina * rétt og réttlæti hefur þú framið í Jakob.
5Tignið Drottinn, Guð vorn * og fallið fram fyrir fótskör hans. Heilagur er hann!
6Móse og Aron eru meðal presta hans * Samúel meðal þeirra er ákalla nafn hans, þeir ákalla Drottin og hann bænheyrir þá.
7Hann talar til þeirra í skýstólpanum * því að þeir gæta vitnisburða hans og laganna, er hann gaf þeim.
8Drottinn, Guð vor, þú bænheyrir þá * þú reynist þeim fyrirgefandi Guð og sýknar þá af gjörðum þeirra.
9Tignið Drottinn Guð vorn, og fallið fram fyrir hans heilaga fjalli * því að heilagur er Drottinn, Guð vor.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Tignið Drottin Guð vorn, og fallið fram fyrir hans heilaga fjalli.
Stuttur ritningarlestur
1Pt 4, 10-11Þjónið hver öðrum með þeirri náðargáfu, sem yður hefur verið gefin, sem góðir ráðsmenn margvíslegrar náðar Guðs. Sá sem talar flytji Guðs orð, sá sem þjónustu hefur skal þjóna eftir þeim mætti, sem Guð gefur, til þess að Guð vegsamist í öllum hlutum fyrir Jesúm Krist.
Stutt svarvers
Ég kallaði af öllu hjarta: * Bænheyr mig, Drottinn.
Ég kallaði af öllu hjarta: * Bænheyr mig, Drottinn.
Ég vil halda boðorð þín.
Bænheyr mig, Drottinn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Ég kallaði af öllu hjarta: * Bænheyr mig, Drottinn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Þjónum Drottni í heilagleik og hann mun hrífa oss úr höndum óvina vorra.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Guð, Faðir vor, leiðir og nærir þjóð sína í kærleika. Færum honum þakkir og segjum fyllt gleði:Dýrð sé þér, Drottinn, um aldir.Mildi Faðir, vér lofum þig fyrir kærleika þinn,sem geislar í sköpuninni og enn frekar í endurlausninni.Úthelltu í hjörtu vor frá sólarupprás þessa dags lönguninni til að þjóna þér,svo að hugsanir vorar og athafnir séu stöðugt þér til dýrðar.Hreinsa hjörtu vor af allri illri löngun,svo að vér séum stöðugt reiðubúin að gjöra vilja þinn.Opna hjörtu vor fyrir þörfum bræðra vorra,svo að þeir fari ekki á mis við bróðurkærleika vorn.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Almáttugi, eilífi Guð, upplýs þjóð þína, sem situr í myrkri og skugga dauðans með Jesú Kristi, ljósi birtu þinnar, sem hefur vitjað vor eins og upprennandi sól af hæðum. Því að hann er Guð, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Ef vel þú vilt þér líði,þín von á Guð sé fest.Hann styrkir þig í stríðiog stjórnar öllu best.Að sýta sárt og kvíðaá sjálfan þig er hrís.Nei, þú skalt biðja' og bíða,þá blessun Guðs er vís.Ó, þú, minn faðir, þekkirog það í miskunn sér,sem hagsæld minni hnekkir,og hvað mér gagnlegt er.Þig vantar hvergi vegi,þig vantar aldrei mátt,þín bjargráð bregðast eigitil bóta' á einhvern hátt.Mín sál, því örugg sértu,og set á Guð þitt traust.Hann man þig, vís þess vertu,og verndar efalaust.Hann mun þig miskunn krýna.Þú mæðist litla hríð.Þér innan skamms mun skínúr skýjum sólin blíð. Amen.
Sálmur 113
Andstef · Ég vil gefa yður hirða eftir mínu hjarta; þeir munu gæta yðar með greind og hyggindum.
1Hallelúja. Þjónar Drottni * lofið, lofið nafn Drottins.
2Nafn Drottins sé blessað héðan * í frá og að eilífu.
3Frá sólarupprás til sólarlags * sé nafn Drottins vegsamað.
4Drottinn er hafinn yfir allar * þjóðir og dýrð hans yfir himnana.
5Hver er sem Drottinn * Guð vor? Hann situr hátt
6og horfir djúpt á * himni og á jörðu.
7Hann reisir lítilmagnann úr duftinu * lyftir snauðum upp úr saurnum
8og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum * hjá tignarmönnum þjóðar hans.
9Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa * í næði sem glaða barnamóður. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ég vil gefa yður hirða eftir mínu hjarta; þeir munu gæta yðar með greind og hyggindum.
Sálmur 146
Andstef · Ég mun gæta hjarðar minnar; ég mun leita að hinum týndu og sækja hina hröktu.
1Hallelúja. Lofa þú Drottin * sála mín!
2Ég vil lofa Drottin meðan lifi * lofsyngja Guði mínum, meðan ég er til.
3Treystið eigi tignarmennum * mönnum sem enga hjálp geta veitt.
4Andi þeirra líður burt, þeir verða aftur að jörðu * á þeim degi verða áform þeirra að engu.
5Sæll er sá, er á Jakobs Guð sér til hjálpar * sá er setur von sína á Drottin, Guð sinn,
6hann sem skapað hefur himin og jörð * hafið og allt sem í því er, hann sem varðveitir trúfesti sína að eilífu,
7sem rekur réttar kúgaðra og * veitir brauð hungruðum. Drottinn leysir bandingja,
8Drottinn opnar augu blindra * Drottinn reisir upp niðurbeygða, Drottinn elskar réttláta.
9Drottinn varðveitir útlendingana, hann annast ekkjur og föðurlausa * en óguðlega lætur hann fara villa vegar.
10Drottinn er konungur að eilífu, hann er Guð þinn * Síon, frá kyni til kyns. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ég mun gæta hjarðar minnar; ég mun leita að hinum týndu og sækja hina hröktu.
Sálmur — Ef 1, 3-10 — Um Guð, Frelsara
Andstef · Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauði sína.
3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists * sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í himnahæðum.
4Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi * til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum
5ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í * Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun
6til vegsemdar dýrð hans og náð * sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.
7Í honum, fyrir hans blóð eigum * vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.
8Svo auðug er náð hans * sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.
9Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns * þá ákvörðun,
10sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi * Hann ætlaði að safna öllu því sem er í Kristi, á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í honum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauði sína.
Stuttur ritningarlestur
1Pt 5, 1-4Öldungana yðar á meðal áminni ég, sem einnig er öldungur og vottur písla Krists og einnig mun fá hlutdeild í þeirri dýrð, sem opinberuð mun verða: Verið hirðar þeirrar hjarðar, sem Guð hefur falið yður. Gætið hennar ekki af nauðung, heldur af fúsu geði, að Guðs vilja, ekki sakir vansæmilegs ávinnings, heldur af áhuga. Þér skuluð eigi drottna yfir söfnuðunum, heldur vera fyrirmynd hjarðarinnar. Þá munuð þér, þegar hinn æðsti hirðir birtist, öðlast þann dýrðarsveig, sem aldrei fölnar.
Stutt svarvers
Þér prestar Drottins, * lofið Drottin.
Þér prestar Drottins, * lofið Drottin.
Miklið Guð þér heilögu og auðmjúku í hjarta.
Lofið Drottin.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Þér prestar Drottins, * lofið Drottin.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Prestur hins hæsta Guðs og eftirmynd gæskunnar, þér voruð lýð yðar góður hirðir og Drottni velþóknanlegur.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Styrktu alltaf Kirkju þína.Gef heilsu páfa vorum N.Lýstu biskupi vorum N.Kallaðu verkamenn til uppskeru þinnar.Blessaðu ættingja vora.Læknaðu sjúka.Heimsæktu deyjendur.Leiddu útlaga til föðurlands þeirra.Bæg þú hamförum frá oss.Veittu hagstæða veðráttu.Gef oss næga vökvun.Gef látnum eilífa hvíld.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, um gjörvallan heim úthellir þú náð þinni og fyrir predikun hins helga Þorláks biskups vilt þú fræða norðlægar slóðir. Veit, að þeir er játast undir kristið nafn megi fyrir árnað hans sýna þá trú í verkum sínum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 4
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.
2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.
3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]
4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]
6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.
7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.
9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
Sálmur 134
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.
2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.
3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
Stuttur ritningarlestur
5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007