Íreneus biskup og píslarvottur
Minningardagur um Íreneus biskup og píslarvott.
Almennur kirkjutími · Vika 12Litur dagsins er rauður — litur píslarvotta og hins Heilaga Anda.
Lesa meiraLestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
Ritningarlestrar þessa dags eru ekki tilgreindir hér.
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Ó, Guð, mér anda gefðu þinn,er glæðir kærleik, von og trú,og veit hann helgi vilja minn,svo vilji' eg það, sem elskar þú.Æ, lát hann stjórna lífi' og sál,að lifi' eg eins og kristnum ber,og öll mín hugsun, athöfn, mál,til æviloka helgist þér.Þig, sem hið góða gefur allt,ó, Guð, af hjarta bið ég nú:Við ótta þinn mér ætíð haltog elsku þína' og sanna trú.Minn greiði veg þín gæskan blíð,svo geti' eg trúr mitt runnið skeið,en þegar lyktar lífsins stríð,mér líkna þú í dauðans neyð.Að ég sé blessað barnið þitt,ég bið þinn andi vitni þá.Æ, heyr þú hjartans málið mitt,vor mildi faðir himnum á. Amen.
Sálmur 143, 1-11
Andstef · Drottinn, lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags.
1Drottinn, heyr þú bæn mína * ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni, bænheyr mig í réttlæti þínu.
2Gakk eigi í dóm við þjón þinn * því að enginn er réttlátur fyrir augliti þínu.
3Óvinurinn eltir sál mína, slær líf mitt til jarðar * lætur mig búa í myrkri eins og þá sem löngu eru dánir.
4Andi minn örmagnast í mér * hjarta mitt er agndofa hið innra í mér.
5Ég minnist fornra daga * íhuga allar gjörðir þínar, ígrunda verk handa þinna.
6Ég breiði út hendurnar í móti þér * sál mín er sem örþrota land fyrir þér. [Sela]
7Flýt þér að bænheyra mig, Drottinn, andi minn örmagnast, byrg eigi auglit þitt fyrir mér * svo að ég verði ekki líkur þeim, er gengnir eru til grafar.
8Lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags, því að þér treysti ég. Gjör mér kunnan þann veg * er ég á að ganga, því að til þín hef ég sál mína.
9Frelsa mig frá óvinum mínum * Drottinn, ég flý á náðir þínar.
10Kenn mér að gjöra vilja þinn * því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um slétta braut.
11Veit mér að lifa, Drottinn, sakir nafns þíns * leið sál mína úr nauðum sakir réttlætis þíns.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn, lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags.
Sálmur — Jes 66, 10-14a — Huggun og gleði í borginni helgu
Andstef · Drottinn mun veita velsæld til Jerúsalem eins og fljóti.
10Gleðjist með Jerúsalem og fagnið yfir henni * allir þér sem elskið hana! Kætist með henni, allir þér sem nú hryggist yfir henni,
11svo að þér megið sjúga og saddir verða við hugsvalandi brjóst hennar * svo að þér megið teyga og gæða yður við dýrðargnótt hennar.
12Því að svo segir Drottinn: Sjá, ég veiti velsæld til hennar eins og fljóti * og auðæfum þjóðanna eins og bakkafullum læk. Þér skuluð liggja á brjóstum hennar og skuluð bornir verða á mjöðminni og yður skal hossað verða á hnjánum.
13Eins og móðir huggar son sinn * eins mun ég hugga yður. Í Jerúsalem skuluð þér huggaðir verða.
14Þér munuð sjá það, og hjarta yðar mun fagna og bein yðar blómgast sem grængresi. Hönd Drottins mun kunn verða á þjónum hans * og hann mun láta óvini sína kenna á reiði sinni.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn mun veita velsæld til Jerúsalem eins og fljóti.
Sálmur 147, 1-11
Andstef · Guði vorum hæfir lofsöngur.
1Hallelúja. Það er gott að leika fyrir Guði vorum * því að hann er yndislegur, honum hæfir lofsöngur.
2Drottinn endurreisir Jerúsalem * safnar saman hinum tvístruðu af Ísrael.
3Hann læknar þá, er hafa sundurkramið hjarta * og bindur um benjar þeirra.
4Hann ákveður tölu stjarnanna * kallar þær allar með nafni.
5Mikill er Drottinn vor og ríkur að veldi * speki hans er ómælanleg.
6Drottinn annast hrjáða * en óguðlega lægir hann að jörðu.
7Syngið Drottni með þakklæti * leikið á gígju fyrir Guði vorum.
8Hann hylur himininn skýjum, býr regn handa jörðinni * lætur gras spretta á fjöllunum.
9Hann gefur skepnunum fóður þeirra * hrafnsungunum, þegar þeir kalla.
10Hann hefur eigi mætur á styrkleika hestsins * eigi þóknun á fótleggjum mannsins.
11Drottinn hefur þóknun á þeim er óttast hann * þeim er bíða miskunnar hans.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Guði vorum hæfir lofsöngur.
Stuttur ritningarlestur
Rm 8, 18-21Ég lít svo á, að ekki séu þjáningar þessa tíma neitt í samanburði við þá dýrð, sem á oss mun opinberast. Því að sköpunin þráir, að Guðs börn verði opinber. Sköpunin var undirorpin fallvaltleikanum, ekki sjálfviljug, heldur vegna hans, sem varp henni undir hann, í von um að jafnvel sjálf sköpunin muni verða leyst úr ánauð forgengileikans til dýrðarfrelsis Guðs barna.
Stutt svarvers
Ég hugsa um þig, Drottinn, * á næturvökunum.
Ég hugsa um þig, Drottinn, * á næturvökunum.
Því að þú ert mér fulltingi.
Á næturvökunum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Ég hugsa um þig, Drottinn, * á næturvökunum.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Veit þjóð þinni þekkingu á hjálpræðinu, Drottinn, og fyrirgef oss syndir vorar.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Sameinumst í lofsöngnum til Guðs Föður, sem hefur bjargað þjóð sinni og segjum:Þú ert líf vort, Drottinn.Blessaður sért þú, Guð og Faðir Drottins vors Jesú Krists, sem af miskunn þinni hefur endurfætt oss í lifandi von,með upprisu Jesú Krists frá dauðum.Þú skapaðir manninn í þinni mynd og endurnýjaðir hann í Kristi,lát oss samsvara fyrirmynd Sonar þíns.Úthell Heilögum Anda þínum í hjörtu vor,sem særð eru af öfund og hatri.Gef öllum í dag vinnu, næga fæðu og lífsgleði,öllum náð og hjálpræði.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Veit oss, Drottinn, djúpa þekkingu á leyndardómi hjálpræðisins, svo að vér séum án ótta og laus undan hendi óvina vorra og þjónum þér af trúfesti alla ævidaga vora. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Minning dagsins · HL. ÍRENEUSAR, BISKUPS OG PÍSLARVOTTS, KIRKJUFRÆÐARA
Guð, þú gafst hinum sæla biskupi Íreneusi mátt til að efla sannleika kenningarinnar og trúfastlega stuðla að friði kirkjunnar. Vér biðjum, veit fyrir árnað hans að vér endurnýjumst í trú og kærleika og séum ávallt reiðubúin að rækta einingu og samhug. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Ég vil í Drottni sofna sætt,samviskustríðið allt er bætt,dauðahaldi ég Drottin þríf,dýrstur gef þú mér eilíft líf.Kveð ég í Guði góðan lýð,gleðilegar þeim nætur býð,þakkandi öllum þeirra styrk,þjónustu, hjálp og kærleiksverk.Ástkæra þá, ég eftir skil,afhenda sjálfum Guði vil,andvarpið sér hann sárt og heitt,segja þarf honum ekki neitt.Lúinn anda ég legg nú af,lífinu ráði sá sem gaf,í sárum Jesú mig sætt innvef,sálu mína ég Guði gef.Láttu mig, Drottinn, lofa þig,með lofi þínu hvíla mig,ljósið í þínu ljósi sjá,lofa þig strax sem vakna má. Amen.
Sálmur 117
Andstef · Þú ert Kristur, Sonur hins lifanda Guðs. Sæll ert þú, Símon Jónasson!
1Lofið Drottin, allar þjóðir * vegsamið hann, allir lýðir,
2því að miskunn hans er voldug yfir oss * og trúfesti Drottins varir að eilífu. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þú ert Kristur, Sonur hins lifanda Guðs. Sæll ert þú, Símon Jónasson!
Sálmur 147, 12-20
Andstef · Þú ert Pétur, og á þessum kletti mun ég byggja Kirkju mína.
12Vegsama Drottin, Jerúsalem * lofa þú Guð þinn, Síon,
13því að hann hefur gjört sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum * blessað börn þín, sem í þér eru.
14Hann gefur landi þínu frið * seður þig á hinu kjarnbesta hveiti.
15Hann sendir orð sitt til jarðar * boð hans hleypur með hraða.
16Hann gefur snjó eins og ull * stráir út hrími sem ösku.
17Hann sendir hagl sitt sem brauðmola * hver fær staðist frost hans?
18Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna * lætur vind sinn blása, og vötnin renna.
19Hann kunngjörði Jakob orð sitt * Ísrael lög sín og ákvæði.
20Svo hefur hann eigi gjört við neina þjóð * þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þú ert Pétur, og á þessum kletti mun ég byggja Kirkju mína.
Sálmur — Ef 1, 3-10 — Um Guð, Frelsara
Andstef · Þú hinn sæli Páll postuli ert hið útvalda ker Guðs; þú prédikaðir sannleikann út um allan heim.
3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists * sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í himnahæðum.
4Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi * til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum
5ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í * Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun
6til vegsemdar dýrð hans og náð * sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.
7Í honum, fyrir hans blóð eigum * vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.
8Svo auðug er náð hans * sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.
9Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns * þá ákvörðun,
10sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi * Hann ætlaði að safna öllu því sem er í Kristi, á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í honum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þú hinn sæli Páll postuli ert hið útvalda ker Guðs; þú prédikaðir sannleikann út um allan heim.
Stuttur ritningarlestur
Rm 1, 1-3a. 7Páll heilsar yður, þjónn Jesú Krists, kallaður til postula, kjörinn til að boða fagnaðarerindi Guðs, sem hann gaf áður fyrirheit um fyrir munn spámanna sinna í helgum ritningum, fagnaðarerindið um Son hans. Ég heilsa öllum Guðs elskuðu í Róm, sem heilagir eru samkvæmt köllun. Náð sé með yður og friður frá Guði Föður vorum og Drottni Jesú Kristi.
Stutt svarvers
Postularnir boðuðu orð Guðs * og prédikuðu það af trúfesti.
Postularnir boðuðu orð Guðs * og prédikuðu það af trúfesti.
Þeir báru vitni um upprisu Jesú Krists.
Og prédikuðu það af trúfesti.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Postularnir boðuðu orð Guðs * og prédikuðu það af trúfesti.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Dýrlegir eru postular Krists; þeir elskuðu hver annan meðan þeir lifðu og í dauða fögnuðu þeir saman að eilífu.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Styrktu alltaf Kirkju þína.Gef heilsu páfa vorum N.Lýstu biskupi vorum N.Kallaðu verkamenn til uppskeru þinnar.Blessaðu ættingja vora.Læknaðu sjúka.Heimsæktu deyjendur.Leiddu útlaga til föðurlands þeirra.Bæg þú hamförum frá oss.Veittu hagstæða veðráttu.Gef oss næga vökvun.Gef látnum eilífa hvíld.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, þú hefur gefið oss heilaga og vegsamlega gleði þessa dags á stórhátíð postulanna Péturs og Páls. Gef Kirkju þinni að fylgja í öllu boðum þeirra, en fyrir þá hóf hún að útbreiða trúna. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 4
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.
2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.
3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]
4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]
6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.
7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.
9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
Sálmur 134
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.
2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.
3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
Stuttur ritningarlestur
5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007