Dagatal

Fimmtudagur í jólatíð

Virkur dagur á jólatíð.

Jólatíð · Vika 2

Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Ritningarlestrar þessa dags eru ekki tilgreindir hér.

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Í dag er heimi frelsi fætt,er fær vor mein og harma bættþað barnið þekkjum blessað vér,vor bróðir Jesús Kristur er.Og oss til merkis er það sagt:Í aumum reifum finnum lagtþað barn í jötu', er hefur heimí hendi sér og ljóssins geim.Því gleðjumst allir, góðir menn,og göngum þangað allir senn,þá jólagjöf, Guðs son, að sjá,er sauða hirðar gleðjast hjá.Æ, velkominn oss vertu þá,er vorar syndir tókst þig á.Oss, Jesús, kenn að þakka þér,að þínir bræður urðum vér.Ó, Guð, sem ráð á öllu átt,hví ertu kominn hér svo lágt,í tötrum lagður hart á hey,sem hefðir dýrri bústað ei?Þótt veröld öll sé víð og löng,sú vaggan er þér samt of þröngog þín ei verð, þótt væri' hún fullaf vegsemd þeirri', er skín sem gull.Svo hefur, Drottinn, þóknast þér,og þá vilt speki kenna mér,að heimsins auð og allt hans glysþú eigi virðir meira' en fis.Af hjarta' og tungu heilög dýrðsé Herrans Jesú föður skýrð.Heyr barna þinna bæn og þökk,og brjóstin, Guð, sjá glöð og klökk. Amen.

Sálmur 57

Andstef · Vakna þú harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.

1Miktam eftir Davíð * þá er hann flýði inn í hellinn fyrir Sál.

2Ver mér náðugur, ó Guð, ver mér náðugur! Því að hjá þér leitar sál mín hælis * og í skugga vængja þinna vil ég hælis leita, uns voðinn er liðinn hjá.

3Ég hrópa til Guðs, hins hæsta, þess Guðs * er kemur öllu vel til vegar fyrir mig.

4Hann sendir af himni og hjálpar mér * þegar sá er kremur mig spottar. [Sela] Guð sendir náð sína og trúfesti.

5Sál mín er meðal ljóna, er eldi fnæsa. Tennur þeirra eru spjót og örvar * og tungur þeirra eru bitur sverð.

6Sýn þig himnum hærri, ó Guð * dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina!

7Þeir hafa lagt net fyrir fætur mína * sál mín er beygð. Þeir hafa grafið gryfju fyrir framan mig, sjálfir falla þeir í hana. [Sela]

8Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð * hjarta mitt er stöðugt, ég vil syngja og leika.

9Vakna þú, sál mín, vakna þú * harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.

10Ég vil lofa þig meðal lýðanna * Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna,

11því að miskunn þín nær til * himna og trúfesti þín til skýjanna.

12Sýn þig himnum hærri, ó Guð * dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Vakna þú harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.

Sálmur — Jer 31, 10-14 — Gleði hinnar frelsuðu þjóðar

Andstef · Lýður minn mun seðja sig á gæðum mínum, segir Drottinn.

10Heyrið orð Drottins, þér þjóðir, og kunngjörið það á fjarlægu eyjunum og segið: Sá * sem tvístraði Ísrael, safnar honum saman og mun gæta hans, eins og hirðir gætir hjarðar sinnar.

11Drottinn frelsar Jakob og leysir hann undan valdi þess * sem honum var yfirsterkari.

12Þeir skulu koma og fagna á Síonhæð og streyma til gæða Drottinn, til kornsins, vínberjalagarins * olíunnar og ungu sauðanna og nautanna, og sál þeirra skal verða eins og vökvaður aldingarður, og þeir skulu eigi framar vanmegnast.

13Þá munu meyjarnar skemmta sér við dans og unglingar og gamalmenni gleðjast saman. Ég * mun breyta sorg þeirra í gleði og hugga þá og gleðja eftir harma þeirra.

14Og ég mun endurnæra sál prestanna á feiti * og lýður minn mun seðja sig á gæðum mínum – segir Drottinn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lýður minn mun seðja sig á gæðum mínum, segir Drottinn.

Sálmur 48

Andstef · Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs, á sínu helga fjalli.

1Ljóð. Kóraítasálmur.

2Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs * á sínu helga fjalli.

3Yndisleg rís hún, gleði alls landsins, Síonarhæð * yst í norðri, borg hins mikla konungs.

4Guð hefur í höllum * hennar kunngjört sig sem vígi.

5Því sjá, konungarnir áttu með sér stefnu * héldu fram saman.

6Óðara en þeir sáu * urðu þeir agndofa, skelfdust, flýðu.

7Felmtur greip þá samstundis * angist sem jóðsjúka konu.

8Með austanvindinum brýtur þú Tarsis–knörru.

9Eins og vér höfum heyrt, svo höfum vér séð í borg Drottins hersveitanna * í borg vors Guðs. Guð lætur hana standa að eilífu. [Sela]

10Guð, vér ígrundum elsku * þína inni í musteri þínu.

11Eins og nafn þitt, Guð * svo hljómi lofgjörð þín til endimarka jarðar. Hægri hönd þín er full réttlætis.

12Síonfjall gleðst * Júdadætur fagna vegna dóma þinna.

13Kringið um Síon * gangið umhverfis hana, teljið turna hennar.

14Hyggið að múrgirðing hennar, skoðið hallir hennar * til þess að þér getið sagt komandi kynslóð,

15að slíkur sé Drottinn * Guð vor. Um aldur og ævi mun hann leiða oss.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs, á sínu helga fjalli.

Stuttur ritningarlestur

Jes 45, 22-23Snúið yður til mín og látið frelsast, þér gjörvöll endimörk jarðarinnar, því að ég er Guð og enginn annar. Ég hefi svarið við sjálfan mig, af munni mínum er sannleikur út genginn, orð, er eigi mun bregðast: Fyrir mér skal sérhvert kné beygja sig, sérhver tunga sverja mér trúnað.

Stutt svarvers

Drottinn hefir kunngjört hjálpræði sitt.* Hallelúja, hallelúja.

Drottinn hefir kunngjört hjálpræði sitt. * Hallelúja, hallelúja.

Fyrir augu þjóðanna opinberaði hann réttlæti sitt.

Hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn hefir kunngjört hjálpræði sitt. * Hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Kristur Guð vor, en í honum býr fullnusta Guðdómsins, tók á sig vora særðu náttúru og gerðist hinn fyrsti nýi maður, hallelúja.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Vér skulum vegsama Orð Guðs sem opinberaður var í holdinu, birtist englunum, og var boðaður þjóðunum. Játum hann af trúmennsku:Vér tilbiðjum þig, eingetinn Sonur Föðurins.Frelsari mannkyns, fyrir Maríu mey komst þú til að endurnýja oss,fyrir árnað hennar lát oss hverfa frá vorum gömlu götum.Þú lést óskapað réttlæti þitt geisla af himnum til jarðar,bein dögum vorum í birtu þessarar sólar.Sonur Guðs, þú hefur sýnt oss kærleika Föðurins,hjálpa oss að sýna hann hvert öðru með kærleika vorum.Þú valdir að dvelja meðal vor,gjör oss verðug þess að eiga félagsskap við þig.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almáttugi Guð, veit oss að hjálpræði þitt, sem hefur komið heiminum til endurlausnar með nýju ljósi á himnum, rísi ávallt til endurnýjunar hjörtum vorum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Heyrið óma hátt um jörðhelgan söng frá englahjörð:Náð og frelsi fagnið þér,friður jörðu veittur er.“Syng þú glaður lofsöngsljóð,lýður heims, með englaþjóð,kunngjör ásamt englaher:Yður Kristur fæddur er.“Hann, sem vegsemd himna bar,hann, sem Guð frá eilífð var,hvergi inni athvarf fær,er hann fæðir heilög mær.Lítið Guð í holdsins hjúp.Hver fær kannað þvílíkt djúp?Orðinn maður eins og vérImmanúel á jörðu hér.Birtið gleðiboðskap þann:Blessuð náðarsól upp rann,flytur öllum ljós og líf,lækning, græðslu, von og hlíf.Guðdómsmynd ei hafði hann,hér er kom og dauðann vann,fæddist til að frelsa oss,færa dauðum lífsins hnoss.Þei! Nú syngur himnaherKristi dýrð, sem fæddur er.Þei! Nú syngur englaherJesú dýrð, sem fæddur er. Amen.

Sálmur 30

Andstef · Ég hrópaði til þín og þú læknaðir mig, Drottinn, ég vil þakka þér að eilífu.

1Musterisvígsluljóð. Davíðssálmur.

2Ég tigna þig, Drottinn * því að þú hefur bjargað mér og eigi látið óvini mína hlakka yfir mér.

3Drottinn, Guð minn * ég hrópaði til þín og þú læknaðir mig.

4Drottinn, þú heimtir sál mína úr Helju * lést mig halda lífi, er aðrir gengu til grafar.

5Syngið Drottni lof, þér hans trúuðu * vegsamið hans heilaga nafn.

6Andartak stendur reiði hans * en alla ævi náð hans. Að kveldi gistir oss grátur, en gleðisöngur að morgni.

7En ég uggði eigi að mér og hugsaði * „Aldrei skriðnar mér fótur.“

8Drottinn, af náð þinni hafðir þú gjört bjarg mitt stöðugt * en nú huldir þú auglit þitt og ég skelfdist.

9Til þín, Drottinn, kallaði ég * og Drottinn grátbændi ég:

10„Hver ávinningur er í dauða mínum * í því að ég gangi til grafar? Getur duftið lofað þig, kunngjört trúfesti þína?

11Heyr, Drottinn, og líkna mér * ó Drottinn, ver þú hjálpari minn!“

12Þú breyttir grát mínum í gleðidans * leystir af mér hærusekkinn og gyrtir mig fögnuði,

13að sál mín megi lofsyngja þér og eigi þagna. Drottinn * Guð minn, ég vil þakka þér að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég hrópaði til þín og þú læknaðir mig, Drottinn, ég vil þakka þér að eilífu.

Sálmur 32

Andstef · Sæll er sá maður er Drottinn tilreiknar eigi synd.

1Sæll er sá er afbrotin eru fyrirgefin * synd hans hulin.

2Sæll er sá maður er Drottinn tilreiknar eigi misgjörð * sá er eigi geymir svik í anda.

3Meðan ég þagði, tærðust bein mín * allan daginn kveinaði ég,

4því að dag og nótt lá hönd þín þungt á mér * lífsvökvi minn þvarr sem í sumarbreiskju. [Sela]

5Þá játaði ég synd mína fyrir þér og fól eigi misgjörð mína. Ég mælti * „Ég vil játa afbrot mín fyrir Drottni,“ og þú fyrirgafst syndasekt mína. [Sela]

6Þess vegna biðji þig sérhver trúaður * meðan þig er að finna. Þótt vatnsflóðið komi, nær það honum eigi.

7Þú ert skjól mitt, þú leysir mig úr nauðum * með frelsisfögnuði umkringir þú mig. [Sela]

8Ég vil fræða þig og vísa þér veginn, er þú átt að ganga * ég vil kenna þér og hafa augun á þér:

9Verið eigi sem hestar eða skynlausir múlar * með taum og beisli verður að temja þrjósku þeirra, annars nálgast þeir þig ekki.

10Miklar eru þjáningar óguðlegs manns * en þann er treystir Drottni umlykur hann elsku.

11Gleðjist yfir Drottni og fagnið * þér réttlátir, kveðið fagnaðarópi, allir hjartahreinir!

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Sæll er sá maður er Drottinn tilreiknar eigi synd.

Sálmur — Opb 11, 17-18; 12, 10b-12a — Dómur Guðs

Andstef · Drottinn gaf honum mátt og heiður og ríki, og allar þjóðir munu þjóna honum.

17og sögðu: Vér þökkum þér, Drottinn Guð, þú alvaldi, þú sem ert og þú sem varst * að þú hefur tekið valdið þitt hið mikla og gjörst konungur.

18Heiðingjarnir reiddust, en reiði þín kom, sá tími, er dauðir skulu dæmdir verða, og tíminn til að gefa laun þjónum þínum * spámönnunum og hinum heilögu og þeim, sem óttast nafn þitt, smáum og stórum, og til að eyða þeim, sem jörðina eyða.

10Og ég heyrði mikla rödd á himni segja: „Nú er komið hjálpræðið og mátturinn og ríki Guðs vors * og veldi hans Smurða. Því að niður hefur verið varpað kæranda bræðra vorra, honum sem þá kærir fyrir Guði vorum dag og nótt.

11Og þeir hafa sigrað hann fyrir blóð lambsins og fyrir orð vitnisburðar síns * og eigi var þeim lífið svo kært, að þeim ægði dauði.

12Fagnið því himnar og þér sem í þeim búið. Vei sé jörðunni og hafinu * því að djöfullinn er stiginn niður til yðar í miklum móð, því að hann veit, að hann hefur nauman tíma.“

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn gaf honum mátt og heiður og ríki, og allar þjóðir munu þjóna honum.

Stuttur ritningarlestur

Rm 8, 3b-4Með því að senda sinn eigin Son í líkingu syndugs manns gegn syndinni, dæmdi Guð syndina í manninum. Þannig varð réttlætiskröfu lögmálsins fullnægt hjá oss, sem lifum ekki eftir holdi, heldur eftir Anda.

Stutt svarvers

Orðið varð hold. * Hallelúja, hallelúja.

Orðið varð hold. * Hallelúja, hallelúja.

Hann bjó með oss.

Hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Orðið varð hold. * Hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Frá Guði er ég út genginn og kominn. Ekki er ég sendur af sjálfum mér. Það er Faðir minn, sem sendi mig.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Styrktu alltaf Kirkju þína.Gef heilsu páfa vorum N.Lýstu biskupi vorum N.Kallaðu verkamenn til uppskeru þinnar.Blessaðu ættingja vora.Læknaðu sjúka.Heimsæktu deyjendur.Leiddu útlaga til föðurlands þeirra.Bæg þú hamförum frá oss.Veittu hagstæða veðráttu.Gef oss næga vökvun.Gef látnum eilífa hvíld.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almáttugi Guð, veit oss að hjálpræði þitt, sem hefur komið heiminum til endurlausnar með nýju ljósi á himnum, rísi ávallt til endurnýjunar hjörtum vorum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 16

Andstef · Líkami minn hvílist í friði.

1Varðveit mig, Guð * því að hjá þér leita ég hælis.

2Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn * ég á engin gæði nema þig.“

3Á hinum heilögu sem í landinu eru og hinum dýrlegu * á þeim hefi ég alla mína velþóknun.

4Miklar eru þjáningar þeirra, er kjörið hafa sér annan guð. Ég vil * eigi dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og eigi taka nöfn þeirra mér á varir.

5Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar * þú heldur uppi hlut mínum.

6Mér féllu að erfðahlut indælir staðir * og arfleifð mín líkar mér vel.

7Ég lofa Drottin, er mér hefur ráð gefið * jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra.

8Ég hefi Drottinn ætíð fyrir augum * þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur.

9Fyrir því fagnar hjarta mitt, sál mín gleðst * og líkami minn hvílist í friði,

10því að þú ofurselur Helju eigi sál mína * leyfir eigi að þinn trúaði sjái gröfina.

11Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu * yndi í hægri hendi þinni að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Líkami minn hvílist í friði.

Stuttur ritningarlestur

1Þ 5, 23Sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheill og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Drottinn, Guð vor, styrk oss eftir erfiði dagsins með hvíld næturinnar, svo að vér fáum stöðugt þjónað þér endurnýjuð á líkama og sál. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007