4. sunnudagur í aðventu
Sunnudagur á aðventu — vikuleg páskahátíð kirkjunnar.
Aðventa · Vika 4Litur dagsins er fjólublár — litur undirbúnings og iðrunar.
Hvað þýðir það
Messuskylda — kaþólikkar sækja messu þennan dag.
Lestur dagsins
Þetta er lesið í sunnudagsmessunni
Ritningarlestrar þessa dags eru ekki tilgreindir hér.
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Í öllum löndum lið sig býrí ljóssins tygi skær,og æskufjör það áfram knýr,svo ekkert tálmað fær,sem döggin tær mót himni hlær,er heilsar morgunroðans blær,svo skín hin prúða fylking fríðaf frjálsum æskulýð.Í öllum löndum sama söngá sér hinn ungi her,um sama fána' og fánastöngþeir fylkja allir sér,og allir sjá hið sama hlið,hin sama dýrð þeim blasir við,í einni von, í ást og trúþeir áfram stefna nú.Og Jesús undan öllum fer,þeir eru' hans heiðurssveit.Til konungs þeir hann kusu sér,hann kærleiks þáði heit,svo vöxt og afl fær æskuþjóðvið alheimssólar mildu glóð,í skugga krossins skjól og hlíf,í skauti Jesú líf. Amen.
Sálmur 118
Andstef · Betlehem í Júdalandi, hve dýrleg er framtíð þín! Konungurinn, sem mun stjórna þjóð minni kemur frá þér.
1Þakkið Drottni, því að hann er góður * því að miskunn hans varir að eilífu.
2Það mæli Ísrael * „Því að miskunn hans varir að eilífu!“
3Það mæli Arons ætt * „Því að miskunn hans varir að eilífu!“
4Það mæli þeir sem óttast Drottin * „Því að miskunn hans varir að eilífu!“
5Í þrengingunni ákallaði ég Drottin * hann bænheyrði mig og rýmkaði um mig.
6Drottinn er með mér, ég óttast eigi * hvað geta menn gjört mér?
7Drottinn er með mér með hjálp sína * og ég mun fá að horfa á ófarir hatursmanna minna.
8Betra er að leita hælis * hjá Drottni en að treysta mönnum,
9betra er að leita hælis * hjá Drottni en að treysta tignarmönnum.
10Allar þjóðir umkringdu mig * en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.
11Þær umkringdu mig á alla vegu * en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.
12Þær umkringdu mig eins og býflugur vax, brunnu sem eldur í þyrnum * en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.
13Mér var hrundið, til þess að ég skyldi falla * en Drottinn veitti mér lið.
14Drottinn er styrkur minn og lofsöngur * og hann varð mér til hjálpræðis.
15Fagnaðar– og siguróp kveður við í tjöldum réttlátra * Hægri hönd Drottins vinnur stórvirki,
16hægri hönd Drottins upphefur * hægri hönd Drottins vinnur stórvirki.
17Ég mun eigi deyja * heldur lifa og kunngjöra verk Drottins.
18Drottinn hefur hirt mig harðlega * en eigi ofurselt mig dauðanum.
19Ljúkið upp fyrir mér hliðum réttlætisins * að ég megi fara inn um þau og lofa Drottin.
20Þetta er hlið Drottins * réttlátir menn fara inn um það.
21Ég lofa þig * af því að þú bænheyrðir mig og ert orðinn mér hjálpræði.
22Steinninn sem smiðirnir höfnuðu * er orðinn að hyrningarsteini.
23Að tilhlutun Drottins er þetta orðið * það er dásamlegt í augum vorum.
24Þetta er dagurinn sem Drottinn hefur gjört * fögnum, verum glaðir á honum.
25Drottinn, hjálpa þú * Drottinn, gef þú gengi!
26Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins * frá húsi Drottins blessum vér yður.
27Drottinn er Guð, hann lætur oss skína ljós. Tengið saman dansraðirnar með laufgreinum * allt inn að altarishornunum.
28Þú ert Guð minn, og ég þakka þér * Guð minn, ég vegsama þig.
29Þakkið Drottni, því að hann er góður * því að miskunn hans varir að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Betlehem í Júdalandi, hve dýrleg er framtíð þín! Konungurinn, sem mun stjórna þjóð minni kemur frá þér.
Sálmur — Dn 3, 52-57 — Öll sköpunin lofi Drottin
Andstef · Lyftið upp höfðum yðar og sjáið; endurlausn yðar er í nánd.
52„Blessaður ert þú, Drottinn, Guð feðra vorra, og lofs verður og vegsamaður og upp hafinn yfir allt að eilífu * og blessað er hið heilaga nafn dýrðar þinnar og lofs vert og upp hafið yfir allt um allar aldir.
53Blessaður ert þú í hinu heilaga musteri dýrðar þinnar * og mjög lofs verður og mjög dýrlegur að eilífu.
54Blessaður ert þú í hásæti ríkis þíns * og mjög lofs verður og upp hafinn yfir allt að eilífu.
55Blessaður ert þú, sem lítur í djúpin og situr yfir kerúbunum * og lofs verður og upp hafinn yfir allt að eilífu.
56Blessaður ert þú á festingu himinsins * og lofs verður og dýrlegur að eilífu.
57Öll verk Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lyftið upp höfðum yðar og sjáið; endurlausn yðar er í nánd.
Sálmur 150
Andstef · Loks er dagurinn kominn þegar María mun fæða frumgetinn Son sinn.
1Hallelúja. Lofið Guð í helgidómi hans * lofið hann í voldugri festingu hans!
2Lofið hann fyrir máttarverk hans * lofið hann eftir mikilleik hátignar hans!
3Lofið hann með lúðurhljómi * lofið hann með hörpu og gígju!
4Lofið hann með bumbum og gleðidansi * lofið hann með strengleik og hjarðpípum!
5Lofið hann með hljómandi skálabumbum * lofið hann með hvellum skálabumbum!
6Allt sem andardrátt * hefur lofi Drottin! Hallelúja!
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Loks er dagurinn kominn þegar María mun fæða frumgetinn Son sinn.
Stuttur ritningarlestur
Jes 11, 1-3aAf stofni Ísaí mun kvistur fram spretta og angi upp vaxa af rótum hans. Yfir honum mun hvíla andi Drottins: Andi vísdóms og skilnings, andi ráðspeki og kraftar, andi þekkingar og ótta Drottins. Unun hans mun vera að óttast Drottin.
Stutt svarvers
Á morgun * er dagur endurlausnar yðar,
Á morgun * syndum jarðar mun eytt.
Frelsari heimsins verður konungur vor.
syndum jarðar mun eytt.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Á morgun * syndum jarðar mun eytt.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Stundin er komin fyrir Maríu að fæða frumburð sinn.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Elskuðu bræður (og systur), beinum auðmjúkum bænum vorum til Jesú Krists, Frelsara vors, sem mun koma aftur í dýrð og miklu veldi:Kom, Drottinn Jesús.Drottinn Jesús, þú munt koma í miklu veldi,lít á auðmýkt vora og ger oss þess verð að taka við gjöfum þínum.Þú komst til að vera fagnaðarerindi öllu mannkyni,mættum vér ávallt boða frelsunarverk þitt.Rétt er að lofsyngja þig, því þú hefur líf og stjórnar öllum hlutum,hjálpa oss til að bíða vonglöð þar til þú kemur í dýrð.Vér þráum náð endurkomu þinnar,hugga oss með því að gefa oss guðlegt líf þitt.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Vér biðjum, Drottinn Jesús, að þú hraðir komu þinni og tefjir eigi, svo að þeir, sem treysta gæsku þinni, styrkist fyrir huggun komu þinnar. Því að þú ert Guð, sem lifir og ríkir með Guði Föður, í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Heyrið óma hátt um jörðhelgan söng frá englahjörð:Náð og frelsi fagnið þér,friður jörðu veittur er.“Syng þú glaður lofsöngsljóð,lýður heims, með englaþjóð,kunngjör ásamt englaher:Yður Kristur fæddur er.“Hann, sem vegsemd himna bar,hann, sem Guð frá eilífð var,hvergi inni athvarf fær,er hann fæðir heilög mær.Lítið Guð í holdsins hjúp.Hver fær kannað þvílíkt djúp?Orðinn maður eins og vérImmanúel á jörðu hér.Birtið gleðiboðskap þann:Blessuð náðarsól upp rann,flytur öllum ljós og líf,lækning, græðslu, von og hlíf.Guðdómsmynd ei hafði hann,hér er kom og dauðann vann,fæddist til að frelsa oss,færa dauðum lífsins hnoss.Þei! Nú syngur himnaherKristi dýrð, sem fæddur er.Þei! Nú syngur englaherJesú dýrð, sem fæddur er. Amen.
Sálmur 113
Andstef · Hann kemur í dýrð, konungurinn, sem er friður vor, öll jörðin þráir að sjá hann.
1Hallelúja. Þjónar Drottni * lofið, lofið nafn Drottins.
2Nafn Drottins sé blessað héðan * í frá og að eilífu.
3Frá sólarupprás til sólarlags * sé nafn Drottins vegsamað.
4Drottinn er hafinn yfir allar * þjóðir og dýrð hans yfir himnana.
5Hver er sem Drottinn * Guð vor? Hann situr hátt
6og horfir djúpt á * himni og á jörðu.
7Hann reisir lítilmagnann úr duftinu * lyftir snauðum upp úr saurnum
8og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum * hjá tignarmönnum þjóðar hans.
9Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa * í næði sem glaða barnamóður. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hann kemur í dýrð, konungurinn, sem er friður vor, öll jörðin þráir að sjá hann.
Sálmur 147, 12-20
Andstef · Hann sendir orð sitt til jarðar og boð hans breiðast ört um löndin.
12Vegsama Drottin, Jerúsalem * lofa þú Guð þinn, Síon,
13því að hann hefur gjört sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum * blessað börn þín, sem í þér eru.
14Hann gefur landi þínu frið * seður þig á hinu kjarnbesta hveiti.
15Hann sendir orð sitt til jarðar * boð hans hleypur með hraða.
16Hann gefur snjó eins og ull * stráir út hrími sem ösku.
17Hann sendir hagl sitt sem brauðmola * hver fær staðist frost hans?
18Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna * lætur vind sinn blása, og vötnin renna.
19Hann kunngjörði Jakob orð sitt * Ísrael lög sín og ákvæði.
20Svo hefur hann eigi gjört við neina þjóð * þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hann sendir orð sitt til jarðar og boð hans breiðast ört um löndin.
Sálmur — Fil 2, 6-11 — Um Krist, þjónn Guðs
Andstef · Eilífa Orðið, af Föðurnum fætt fyrir upphaf vega niðurlægði sig vor vegna og gjörðist maður.
6Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki * með það sem feng sinn að vera Guði líkur.
7Hann svipti sig öllu * tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur.
8Hann kom fram sem maður * lægði sjálfan sig og varð hlýðinn allt til dauða, já, dauðans á krossi.
9Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið * sem hverju nafni er æðra,
10til þess að í nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni * jörðu og undir jörðu
11og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar * Jesús Kristur er Drottinn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Eilífa Orðið, af Föðurnum fætt fyrir upphaf vega niðurlægði sig vor vegna og gjörðist maður.
Stuttur ritningarlestur
Gl 4, 4-5Þegar fylling tímans kom, sendi Guð Son sinn, fæddan af konu, fæddan undir lögmáli, til þess að hann keypti lausa þá, sem voru undir lögmáli, og vér fengjum barnaréttinn.
Stutt svarvers
Í dag skaltu vita * að Drottinn kemur.
Í dag skaltu vita * að Drottinn kemur.
Og í dag einnig munt þú líta dýrð hans.
Að Drottinn kemur.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Í dag skaltu vita * að Drottinn kemur.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Þegar sólin rís á morgunhimni, munuð þér sjá konung konunganna koma frá Föðurnum líkt og geislandi brúðguma úr brúðarstofu.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, miskunna lýð þínum.Verndaðu Kirkjuna.Verndaðu páfa vorn N.Hjálpaðu biskupi vorum N.Frelsaðu lýð þinn.Varðveittu friðinn.Lýstu trúleysingjum.Leiddu þá sem stjórna þjóðum.Hjálpaðu fátækum.Huggaðu sorgmædda.Miskunna þú munaðarlausum.Taktu á móti dánum.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, þú sem gleður oss með árvissri væntingu um endurlausn vora, gef að vér, sem fögnum þínum eingetna Syni sem endurlausnara vorum, megnum einnig óttalaus að líta hann er hann kemur sem dómari, Drottinn vor, Jesús Kristur, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 4
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.
2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.
3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]
4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]
6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.
7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.
9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
Sálmur 134
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.
2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.
3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
Stuttur ritningarlestur
5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007