Dagatal

Mánudagur í 3. viku aðventu

Virkur dagur á aðventu.

Aðventa · Vika 3

Litur dagsins er fjólublár — litur undirbúnings og iðrunar.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Ritningarlestrar þessa dags eru ekki tilgreindir hér.

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Í öllum löndum lið sig býrí ljóssins tygi skær,og æskufjör það áfram knýr,svo ekkert tálmað fær,sem döggin tær mót himni hlær,er heilsar morgunroðans blær,svo skín hin prúða fylking fríðaf frjálsum æskulýð.Í öllum löndum sama söngá sér hinn ungi her,um sama fána' og fánastöngþeir fylkja allir sér,og allir sjá hið sama hlið,hin sama dýrð þeim blasir við,í einni von, í ást og trúþeir áfram stefna nú.Og Jesús undan öllum fer,þeir eru' hans heiðurssveit.Til konungs þeir hann kusu sér,hann kærleiks þáði heit,svo vöxt og afl fær æskuþjóðvið alheimssólar mildu glóð,í skugga krossins skjól og hlíf,í skauti Jesú líf. Amen.

Sálmur 84

Andstef · Drottinn, sem ríkir yfir öllum konungum jarðar, mun koma; blessaðir eru þeir, sem eru reiðubúnir til að fagna honum.

1Til söngstjórans. Á gittít. Kóraíta–sálmur.

2Hversu yndislegir eru bústaðir þínir * Drottinn hersveitanna.

3Sálu mína langaði til, já, hún þráði forgarða Drottins * nú fagnar hjarta mitt og hold fyrir hinum lifanda Guði.

4Jafnvel fuglinn hefur fundið hús, og svalan á sér hreiður * þar sem hún leggur unga sína: ölturu þín, Drottinn hersveitanna, konungur minn og Guð minn!

5Sælir eru þeir, sem búa í húsi þínu * þeir munu ætíð lofa þig. [Sela]

6Sælir eru þeir menn, sem finna styrk hjá þér * er þeir hugsa til helgigöngu.

7Er þeir fara gegnum táradalinn * umbreyta þeir honum í vatnsríka vin, og haustregnið færir honum blessun.

8Þeim eykst æ kraftur á göngunni * og fá að líta Guð á Síon.

9Drottinn, Guð hersveitanna, heyr bæn mína * hlýð til, þú Jakobs Guð. [Sela]

10Guð, skjöldur vor * sjá og lít á auglit þíns smurða!

11Því að einn dagur í forgörðum þínum er betri en þúsund aðrir * heldur vil ég standa við þröskuldinn í húsi Guðs míns en dvelja í tjöldum óguðlegra.

12Því að Drottinn Guð er sól og skjöldur * náð og vegsemd veitir Drottinn. Hann synjar þeim engra gæða, er ganga í grandvarleik.

13Drottinn hersveitanna, sæll er sá maður * sem treystir þér.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn, sem ríkir yfir öllum konungum jarðar, mun koma; blessaðir eru þeir, sem eru reiðubúnir til að fagna honum.

Sálmur — Jes 2, 2-5 — Hús Drottins á fjallatindi

Andstef · Syngið Drottni nýjan söng; syngið lof hans til endimarka jarðar.

2Það skal verða á hinum síðustu dögum, að fjall það, er hús Drottins stendur á * mun grundvallað verða á fjallatindi og gnæfa upp yfir hæðirnar, og þangað munu allir lýðirnir streyma.

3Og margar þjóðir munu búast til ferðar og segja: „Komið, förum upp á fjall Drottins, til húss Jakobs Guðs * svo að hann kenni oss sína vegu og vér megum ganga á hans stigum,“ því að frá Síon mun kenning út ganga og orð Drottins frá Jerúsalem.

4Og hann mun dæma meðal lýðanna og skera úr málum margra þjóða. Og þær munu smíða plógjárn úr sverðum sínum * og sniðla úr spjótum sínum. Engin þjóð skal sverð reiða að annarri þjóð, og ekki skulu þær temja sér hernað framar.

5Ættmenn Jakobs, komið * göngum í ljósi Drottins.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Syngið Drottni nýjan söng; syngið lof hans til endimarka jarðar.

Sálmur 96

Andstef · Þegar Mannssonurinn kemur, mun hann finna trúna á jörðu?

1Syngið Drottni nýjan söng * syngið Drottni öll lönd!

2Syngið Drottni, lofið nafn hans * kunngjörið hjálpráð hans dag eftir dag.

3Segið frá dýrð hans meðal þjóðanna * frá dásemdarverkum hans meðal allra lýða.

4Því að mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur * óttalegur er hann öllum guðum framar.

5Því að allir guðir þjóðanna eru falsguðir * en Drottinn hefur gjört himnana.

6Heiður og vegsemd eru fyrir augliti hans * máttur og prýði í helgidómi hans.

7Tjáið Drottni lof, þér kynkvíslir þjóða * tjáið Drottni vegsemd og vald.

8Tjáið Drottni dýrð þá, er nafni hans hæfir * færið gjafir og komið til forgarða hans,

9fallið fram fyrir Drottni í helgum skrúða * titrið fyrir honum, öll lönd!

10Segið meðal þjóðanna: Drottinn er konungur orðinn! Hann hefur fest jörðina * svo að hún bifast ekki, hann dæmir þjóðirnar með réttvísi.

11Himnarnir gleðjist og jörðin fagni * hafið drynji og allt sem í því er,

12foldin fagni og allt sem á henni er * öll tré skógarins kveði fagnaðaróp,

13fyrir Drottni, því að hann kemur * hann kemur til þess að dæma jörðina. Hann mun dæma heiminn með réttlæti og þjóðirnar eftir trúfesti sinni.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þegar Mannssonurinn kemur, mun hann finna trúna á jörðu?

Stuttur ritningarlestur

Rm 13, 11-12Yður er mál að rísa af svefni, því að nú er oss hjálpræðið nær en þá er vér tókum trú. Liðið er á nóttina og dagurinn í nánd. Leggjum því af verk myrkursins og klæðumst hertygjum ljóssins.

Stutt svarvers

Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.

Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.

Þú munt sjá dýrð hans í þér:

Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Vakið og bíðið af heilum huga því Drottinn Guð vor er í nánd.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Elskuðu bræður (og systur), biðjum til Drottins Jesú Krists, dómara lifenda og dauðra:Kom, Drottinn Jesús!Drottinn Jesús, þú komst til að frelsa syndara,vernda oss á tímum freistinganna.Þú munt koma í dýrð til að vera dómari vor,sýn í oss frelsunarmátt þinn.Hjálpa þú oss með mætti Heilags Anda að halda boðorð þín,og vænta komu þinnar í kærleika.Þú ert vegsamaður um aldir. Hjálpa þú oss í miskunn þinni að lifa þessu lífi í guðrækni og hófsemi,á meðan vér bíðum í fagnaðarríkri von eftir opinberun dýrðar þinnar.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Vér biðjum, almáttugi Guð, að þú veitir oss að vér, sem beygð erum undir oki syndar í hinni fornu ánauð, verðum frjáls fyrir nýja fæðingu þíns eingetna Sonar, þá sem í vændum er. Því að hann er Guð, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Gef þú, maður, Guði þínumgjörvallt það, er honum ber,eins og hann í orðum sínumætlast til og býður þér.Gættu þess, að öllum áyfirburðum mönnum hjáyfirskrift hans er og myndin,ekkert þitt er nema syndin.Gef þú honum hjartans inni,hreint og prýtt sem best þú mátt,svo á því hann þóknun finni,þangað vilji koma brátt,bú þú honum bústað þar,bið hann sjálfan liðsemdar,að það honum helgast megi,helgidóm svo þar hann eigi.Gef þú honum athöfn allaorð og verk og lífið sjálft,láttu þér ei þungbært falla,þótt hann kjósi meira' en hálft.Hættu' að gefa heimi' og syndhelming lífs, og þeirra myndframar hygg ei fremd að vera,fegri mynd þú átt að bera. Amen.

Sálmur 123

Andstef · Drottinn, sem ríkir yfir öllum konungum jarðar, mun koma; blessaðir eru þeir, sem eru reiðubúnir til að fagna honum.

1Til þín hef ég augu mín * þú sem situr á himnum.

2Eins og augu þjónanna mæna á hönd húsbónda síns, eins og augu ambáttarinnar mæna á hönd húsmóður sinnar * svo mæna augu vor á Drottin, Guð vorn, uns hann líknar oss.

3Líkna oss, Drottinn, líkna oss * því að vér höfum fengið meira en nóg af spotti.

4Sál vor hefur fengið meira en nóg af háði hrokafullra * af spotti dramblátra.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn, sem ríkir yfir öllum konungum jarðar, mun koma; blessaðir eru þeir, sem eru reiðubúnir til að fagna honum.

Sálmur 124

Andstef · Syngið Drottni nýjan söng; syngið lof hans til endimarka jarðar.

1Hefði það ekki verið Drottinn sem var með oss * – skal Ísrael segja –

2hefði það ekki verið Drottinn sem var með oss * þegar menn risu í móti oss,

3þá hefðu þeir gleypt oss lifandi * þegar reiði þeirra bálaðist upp í móti oss.

4Þá hefðu vötnin streymt yfir oss * elfur gengið yfir vora sál,

5þá hefðu gengið yfir * vora sál hin beljandi vötn.

6Lofaður sé Drottinn * er ekki gaf oss tönnum þeirra að bráð.

7Sál vor slapp burt eins og fugl úr snöru fuglarans. Brast snaran * burt sluppum vér.

8Hjálp vor er í nafni Drottins * skapara himins og jarðar.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Syngið Drottni nýjan söng; syngið lof hans til endimarka jarðar.

Sálmur — Ef 1, 3-10 — Um Guð, Frelsara

Andstef · Þegar Mannssonurinn kemur, mun hann finna trúna á jörðu?

3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists * sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í himnahæðum.

4Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi * til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum

5ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í * Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun

6til vegsemdar dýrð hans og náð * sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.

7Í honum, fyrir hans blóð eigum * vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.

8Svo auðug er náð hans * sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.

9Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns * þá ákvörðun,

10sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi * Hann ætlaði að safna öllu því sem er í Kristi, á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í honum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þegar Mannssonurinn kemur, mun hann finna trúna á jörðu?

Stuttur ritningarlestur

Flp 4, 4-5Verið ávallt glaðir í Drottni. Ég segi aftur: Verið glaðir. Ljúflyndi yðar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd.

Stutt svarvers

Drottinn, sýn oss * miskunn þína

Drottinn, sýn oss * miskunn þína.

Og veit oss frelsun þína.

Miskunn þína.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, sýn oss * miskunn þína.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Adonai, voldugi Guð, leiðtogi Ísraels. Þú, sem birtist Móse í loga þyrnirunnans og gafst honum lögin á Sínaífjalli, kom og frelsa oss með almætti þínu.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, heimsæktu lýð þinn.Sameina Kirkjuna.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn N.Vertu nálægur trúboðum.Íklæddu presta réttlæti.Helgaðu klausturfólk.Slökktu óvináttu.Nærðu börn með náð þinni.Gef að æskan dafni í visku.Huggaðu og styddu gamalt fólk.Vertu gjafmildur við vini vora.Taktu látna í tölu heilagra.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Vér biðjum, almáttugi Guð, að þú veitir oss að vér, sem beygð erum undir oki syndar í hinni fornu ánauð, verðum frjáls fyrir nýja fæðingu þíns eingetna Sonar, þá sem í vændum er. Því að hann er Guð, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Þú, Jesús, lífsins lindin bestþú ljós og yndi sálna mestþú betra hverri býður þrájá, betra' en allt, sem hugsast má.Ó, hve mín þrá er heit til þínæ, hvenær muntu vitja mín.Æ, hvenær fögnuð hlýt ég þinnæ, hvenær saðning, Jesús minn?Ég fylgi, Jesús, þangað þérei þig fær skilið neitt frá mérþú hefur tekið hjartað mittþað hjá þér dvelur og er þitt.Þig lofar allur himins herog helga vegsemd greiðir þér.Þú, gleðin heims, þú gafst oss friðvorn Guð og föður sjálfan við.Þig lofi, Jesús, líf og sálþig lofi tunga' og hjartans mál.Í trú vér biðjum: Til þín innoss tak þú alla' í himin þinn. Amen.

Sálmur 86

Andstef · Drottinn Guð, þú ert seinn til bræði, fullur þolinmæði og gæsku.

1Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig * því að ég er hrjáður og snauður.

2Vernda sál mína, því að ég er helgaður þér * hjálpa þú, Guð minn, þjóni þínum, er treystir þér.

3Ver mér náðugur, Drottinn * því þig ákalla ég allan daginn.

4Gleð þú sál þjóns þíns * því að til þín, Drottinn, hef ég sál mína.

5Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa * gæskuríkur öllum þeim er ákalla þig.

6Hlýð, Drottinn * á bæn mína og gef gaum grátbeiðni minni.

7Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig * því að þú bænheyrir mig.

8Enginn er sem þú meðal guðanna * Drottinn, og ekkert er sem þín verk.

9Allar þjóðir, er þú hefur skapað * munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, og tigna nafn þitt.

10Því að þú ert mikill og gjörir furðuverk * þú einn, ó Guð!

11Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum * gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt.

12Ég vil lofa þig, Drottinn, Guð minn * af öllu hjarta og heiðra nafn þitt að eilífu,

13því að miskunn þín er mikil við mig * og þú hefur frelsað sál mína frá djúpi Heljar.

14Ofstopamenn hefjast gegn mér, ó Guð * og hópur ofríkismanna sækist eftir sál minni, eigi hafa þeir þig fyrir augum.

15En þú, Drottinn, ert miskunnsamur og líknsamur Guð * þolinmóður og gæskuríkur og harla trúfastur.

16Snú þér að mér og ver mér náðugur * veit þjóni þínum kraft þinn og hjálpa syni ambáttar þinnar.

17Gjör þú tákn til góðs fyrir mig, að hatursmenn mínir megi horfa á það sneyptir * að þú, Drottinn, hjálpar mér og huggar mig.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn Guð, þú ert seinn til bræði, fullur þolinmæði og gæsku.

Stuttur ritningarlestur

Sbr. 1Þ 5, 9-10Guð hefur ekki ætlað oss til að verða reiðinni að bráð, heldur til að öðlast sáluhjálp fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, sem dó fyrir oss, til þess að vér mættum lifa með honum, hvort sem vér vökum eða sofum.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Drottinn, veit líkömum vorum hvíld í svefni og lát þau störf er vér höfum í dag unnið, vera undirbúning hinnar eilífu uppskeru. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007