Dagatal

Ambrósíus biskup og kirkjufræðari

Minningardagur um Ambrósíus biskup og kirkjufræðara.

Aðventa · Vika 1

Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.

Lesa meira

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Ritningarlestrar þessa dags eru ekki tilgreindir hér.

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Gjör dyrnar breiðar, hliðið hátt.Þú, Herrans kristni, fagna mátt,því kóngur dýrðar kemur hérog kýs að eiga dvöl hjá þér.Hann býður líknar blessað ár,hann býður dýpst að græða sár,hann býður þyngstu' að borga sekt,hann býður aumra' að skýla nekt.Sjá, mildi' er lögmál lausnarans,sjá, líkn er veldissproti hans.Því kom þú, lýður kristinn, núog kóngi dýrðar fagna þú.Hve sælt það land, hve sælt það hús,er sælugjafinn líknarfússér trútt og hlýðið fundið fær,þar friður, heill og blessun grær.Hve sælt það hjarta ávallt er,sem ást til Krists með lotning berog honum í sér bústað býr,að bragði sorg öll þaðan flýr. Amen.

Sálmur 57

Andstef · Vakna þú harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.

1Miktam eftir Davíð * þá er hann flýði inn í hellinn fyrir Sál.

2Ver mér náðugur, ó Guð, ver mér náðugur! Því að hjá þér leitar sál mín hælis * og í skugga vængja þinna vil ég hælis leita, uns voðinn er liðinn hjá.

3Ég hrópa til Guðs, hins hæsta, þess Guðs * er kemur öllu vel til vegar fyrir mig.

4Hann sendir af himni og hjálpar mér * þegar sá er kremur mig spottar. [Sela] Guð sendir náð sína og trúfesti.

5Sál mín er meðal ljóna, er eldi fnæsa. Tennur þeirra eru spjót og örvar * og tungur þeirra eru bitur sverð.

6Sýn þig himnum hærri, ó Guð * dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina!

7Þeir hafa lagt net fyrir fætur mína * sál mín er beygð. Þeir hafa grafið gryfju fyrir framan mig, sjálfir falla þeir í hana. [Sela]

8Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð * hjarta mitt er stöðugt, ég vil syngja og leika.

9Vakna þú, sál mín, vakna þú * harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.

10Ég vil lofa þig meðal lýðanna * Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna,

11því að miskunn þín nær til * himna og trúfesti þín til skýjanna.

12Sýn þig himnum hærri, ó Guð * dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Vakna þú harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.

Sálmur — Jer 31, 10-14 — Gleði hinnar frelsuðu þjóðar

Andstef · Lýður minn mun seðja sig á gæðum mínum, segir Drottinn.

10Heyrið orð Drottins, þér þjóðir, og kunngjörið það á fjarlægu eyjunum og segið: Sá * sem tvístraði Ísrael, safnar honum saman og mun gæta hans, eins og hirðir gætir hjarðar sinnar.

11Drottinn frelsar Jakob og leysir hann undan valdi þess * sem honum var yfirsterkari.

12Þeir skulu koma og fagna á Síonhæð og streyma til gæða Drottinn, til kornsins, vínberjalagarins * olíunnar og ungu sauðanna og nautanna, og sál þeirra skal verða eins og vökvaður aldingarður, og þeir skulu eigi framar vanmegnast.

13Þá munu meyjarnar skemmta sér við dans og unglingar og gamalmenni gleðjast saman. Ég * mun breyta sorg þeirra í gleði og hugga þá og gleðja eftir harma þeirra.

14Og ég mun endurnæra sál prestanna á feiti * og lýður minn mun seðja sig á gæðum mínum – segir Drottinn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lýður minn mun seðja sig á gæðum mínum, segir Drottinn.

Sálmur 48

Andstef · Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs, á sínu helga fjalli.

1Ljóð. Kóraítasálmur.

2Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs * á sínu helga fjalli.

3Yndisleg rís hún, gleði alls landsins, Síonarhæð * yst í norðri, borg hins mikla konungs.

4Guð hefur í höllum * hennar kunngjört sig sem vígi.

5Því sjá, konungarnir áttu með sér stefnu * héldu fram saman.

6Óðara en þeir sáu * urðu þeir agndofa, skelfdust, flýðu.

7Felmtur greip þá samstundis * angist sem jóðsjúka konu.

8Með austanvindinum brýtur þú Tarsis–knörru.

9Eins og vér höfum heyrt, svo höfum vér séð í borg Drottins hersveitanna * í borg vors Guðs. Guð lætur hana standa að eilífu. [Sela]

10Guð, vér ígrundum elsku * þína inni í musteri þínu.

11Eins og nafn þitt, Guð * svo hljómi lofgjörð þín til endimarka jarðar. Hægri hönd þín er full réttlætis.

12Síonfjall gleðst * Júdadætur fagna vegna dóma þinna.

13Kringið um Síon * gangið umhverfis hana, teljið turna hennar.

14Hyggið að múrgirðing hennar, skoðið hallir hennar * til þess að þér getið sagt komandi kynslóð,

15að slíkur sé Drottinn * Guð vor. Um aldur og ævi mun hann leiða oss.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs, á sínu helga fjalli.

Stuttur ritningarlestur

Jes 45, 8Drjúpið, þér himnar, að ofan, og láti skýin réttlæti niður streyma. Jörðin opnist og láti hjálpræði fram spretta og réttlæti blómgast jafnframt.

Stutt svarvers

Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.

Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.

Þú munt sjá dýrð hans í þér:

Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Ég mun bíða eftir Drottni mínum og Frelsara og vísa á hann þegar Hann er nærri, hallelúja.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Kristur er viska og máttur Guðs og gleði hans er að vera með mannanna börnum. Biðjum í trausti til hans:Vertu með oss, Drottinn.Drottinn Jesús Kristur, þú hefur kallað oss til þíns dýrðlega konungdóms,lát oss breyta sómasamlega svo að vér megum þóknast Guði í öllum vorum verkum.Þú sem ert meðal vor óþekktur af heiminum,opinbera þig fyrir öllum mönnum.Þú ert nær oss en vér erum sjálfum oss,styrk þú trú vora og von um frelsun.Þú ert uppspretta heilagleikans,varðveit oss í heilagleika og án syndar nú og allt til þess dags er þú kemur.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Vér biðjum, Drottinn, að þú vekir upp vald þitt, og hjálpir oss með þínum mikla mætti, svo að þín milda náð hraði því sem syndir vorar hindra. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Minning dagsins · HL. AMBRÓSÍUSAR, BISKUPS OG KIRKJUFRÆÐARA

Guð, þú gjörðir hinn sæla biskup Ambrósíus kennimann kaþólskrar trúar og fordæmi postullegs hugrekkis. Vek upp menn í Kirkju þinni eftir vilja þínum, sem stjórni henni af hugrekki og visku. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Sérhvert ljós um lífsins nótt,hugsvölun í hverjum þrautum,hverja gleði' á lífsins brautum,sérhvert lán og gæðagnótt,allt hið fagra' er augað líturandinn hvað sem dýrlegt veit,alla sælu', er hjartað hlýtur,Herra, skóp þín elskan heit.Alls hins góða er hún rót,lind, er heilsu lífsins geymir,lind, er rík af blessun streymir,lindin, er allra eymda bót,lind, er heillum lýði vefur,lind, er helgan veitir auð,lind, er fegurð lífi gefur,lind, er vekur hjörtun dauð.Ó, þú, Drottinn dýrðarhár,föðurást þín aldrei sefur,Eden nýja hún oss gefur,þvær af syndir, þerrar tár.Fyrir Jesú, frelsið manna,fyrirgafst þú líka mér.Líf og himinsælu sannasé ég búna' í faðmi þér. Amen.

Sálmur 113

Andstef · Fjandskap vil ég setja milli þín og konunnar, milli þíns sæðis og hennar sæðis.

1Hallelúja. Þjónar Drottni * lofið, lofið nafn Drottins.

2Nafn Drottins sé blessað héðan * í frá og að eilífu.

3Frá sólarupprás til sólarlags * sé nafn Drottins vegsamað.

4Drottinn er hafinn yfir allar * þjóðir og dýrð hans yfir himnana.

5Hver er sem Drottinn * Guð vor? Hann situr hátt

6og horfir djúpt á * himni og á jörðu.

7Hann reisir lítilmagnann úr duftinu * lyftir snauðum upp úr saurnum

8og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum * hjá tignarmönnum þjóðar hans.

9Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa * í næði sem glaða barnamóður. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Fjandskap vil ég setja milli þín og konunnar, milli þíns sæðis og hennar sæðis.

Sálmur 147, 12-20

Andstef · Drottinn hefur klætt mig klæðum hjálpræðisins, hann hefur sveipað mig í skikkju réttlætisins.

12Vegsama Drottin, Jerúsalem * lofa þú Guð þinn, Síon,

13því að hann hefur gjört sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum * blessað börn þín, sem í þér eru.

14Hann gefur landi þínu frið * seður þig á hinu kjarnbesta hveiti.

15Hann sendir orð sitt til jarðar * boð hans hleypur með hraða.

16Hann gefur snjó eins og ull * stráir út hrími sem ösku.

17Hann sendir hagl sitt sem brauðmola * hver fær staðist frost hans?

18Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna * lætur vind sinn blása, og vötnin renna.

19Hann kunngjörði Jakob orð sitt * Ísrael lög sín og ákvæði.

20Svo hefur hann eigi gjört við neina þjóð * þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn hefur klætt mig klæðum hjálpræðisins, hann hefur sveipað mig í skikkju réttlætisins.

Sálmur — Ef 1, 3-10 — Um Guð, Frelsara

Andstef · Heil sért þú, María, full náðar. Drottinn er með þér.

3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists * sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í himnahæðum.

4Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi * til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum

5ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í * Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun

6til vegsemdar dýrð hans og náð * sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.

7Í honum, fyrir hans blóð eigum * vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.

8Svo auðug er náð hans * sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.

9Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns * þá ákvörðun,

10sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi * Hann ætlaði að safna öllu því sem er í Kristi, á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í honum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Heil sért þú, María, full náðar. Drottinn er með þér.

Stuttur ritningarlestur

Rm 8, 29a. 30aÞá, sem Guð þekkti fyrirfram, hefur hann og fyrirhugað til þess að líkjast mynd Sonar síns. Þá sem hann fyrirhugaði, þá hefur hann og kallað, og þá sem hann kallaði, hefur hann og réttlætt.

Stutt svarvers

Ég tigna þig, Drottinn, * því að þú hefur bjargað mér.

Ég tigna þig, Drottinn, * því að þú hefur bjargað mér.

Þú hefur eigi látið óvini mína hlakka yfir mér.

Því að þú hefur bjargað mér.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Ég tigna þig, Drottinn, * því að þú hefur bjargað mér.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Allar kynslóðir munu mig sæla segja: Mikla hluti hefur hinn almáttugi við mig gjört, hallelúja.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Styrktu alltaf Kirkju þína.Gef heilsu páfa vorum N.Lýstu biskupi vorum N.Kallaðu verkamenn til uppskeru þinnar.Blessaðu ættingja vora.Læknaðu sjúka.Heimsæktu deyjendur.Leiddu útlaga til föðurlands þeirra.Bæg þú hamförum frá oss.Veittu hagstæða veðráttu.Gef oss næga vökvun.Gef látnum eilífa hvíld.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, þú bjóst Syni þínum verðugan bústað með flekklausum getnaði meyjarinnar. Þú varðveittir hana syndlausa, því að dauði Sonar þíns var kunnur fyrir. Vér biðjum, leyf oss einnig fyrir árnað hennar að komast hrein til þín. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 4

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.

2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.

3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]

4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]

6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.

7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.

8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.

9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

Sálmur 134

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.

2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.

3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

Stuttur ritningarlestur

5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007