Dagatal

Þriðjudagur í 30. viku almenns kirkjutíma

Virkur dagur á hinum almenna kirkjutíma.

Almennur kirkjutími · Vika 30

Litur dagsins er grænn — litur vaxtar og hins almenna kirkjutíma.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Ritningarlestrar þessa dags eru ekki tilgreindir hér.

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Allrar veraldar vegurvíkur að sama punkt,fetar þann fús sem tregur,hvort fellur létt eða þungt.Hvorki fyr'ir hefð né valdihopar dauðinn eitt strik,fæst síst með fögru gjaldifrestur um augnablik,allt hann að einu gildir,þótt illa líki' eða vel,bón ei né bræði mildirhans beiska heiftarþel.Menn vaða' í villu og svíma,veit enginn neitt um það,hvernig, á hverjum tímaeða hvar hann kemur að.Einn vegur öllum greiðirinngang í heimsins rann,margbreyttar líst mér leiðirliggi þó út þaðan.Afl dauðans eins nam krenkjaalla í veröld hér.Skal ég þá þurfa að þenkja,hann þyrmi einum mér?Adams er eðli runniðí mitt náttúrlegt hold,ég hef þar og til unniðaftur að verða mold. Amen.

Sálmur 43

Andstef · Send ljós þitt og trúfesti þína, Drottinn.

1Lát mig ná rétti mínum, Guð, berst fyrir málefni mínu gegn miskunnarlausri þjóð * bjarga mér frá svikulum og ranglátum mönnum.

2Því að þú ert sá Guð, sem er mér vígi * hví hefur þú útskúfað mér? hví verð ég að ganga um harmandi, kúgaður af óvinum?

3Send ljós þitt og trúfesti þína, þau skulu leiða mig * þau skulu fara með mig til fjallsins þíns helga, til bústaðar þíns,

4svo að ég megi inn ganga að altari Guðs, til Guðs minnar fagnandi gleði * og lofa þig með gígjuhljómi, ó Guð, þú Guð minn.

5Hví ert þú beygð, sál mín, og ólgar í mér? Vona á Guð * því að enn mun ég fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og Guð minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Send ljós þitt og trúfesti þína, Drottinn.

Sálmur — Jes 38, 10-14d. 17b-20 — Örvænting sjúkra, gleði heilbrigðra

Andstef · Bjarga oss, Drottinn, alla vora lífdaga.

10Ég sagði: Á hádegi ævi minnar stend ég við dauðans dyr. * Það sem eftir er ára minna er ég ofurseldur hliðum Heljar.

11Ég sagði: Ég fæ eigi framar að sjá Drottin á landi lifenda * ég fæ eigi framar menn að líta meðal þeirra sem heiminn byggja.

12Bústað mínum er kippt upp og svipt burt frá mér eins og hjarðmannatjaldi. Ég hefi undið upp líf mitt * eins og vefari. Hann sker mig frá uppistöðunni. Þú þjáir mig frá því að dagar og þar til nóttin kemur.

13Ég þreyði til morguns. Öll mín bein voru kramin eins og af * ljónshrammi. Þú þjáir mig frá því að dagar og þar til nóttin kemur.

14Ég tísti sem svala og kurra sem dúfa. Augu mín mæna til himins. Drottinn * ég er í nauðum, líkna þú mér.

17Sjá, til blessunar varð mér hin sára kvöl. Þú forðaðir sál minni frá gröf eyðingarinnar * því að þú varpaðir að baki þér öllum syndum mínum.

18Hel vegsamar þig eigi * dauðinn lofar þig eigi. Þeir sem niður eru stignir í gröfina vona eigi á trúfesti þína.

19En sá einn lofar þig, sem lifir * eins og ég í dag. Feður kunngjöra börnum sínum trúfesti þína.

20Drottinn er mitt hjálpræði. Í húsi Drottins * skulum vér því hreyfa strengina alla vora lífdaga.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Bjarga oss, Drottinn, alla vora lífdaga.

Sálmur 65

Andstef · Þér ber lofsöngur, Guð, á Síon!

1Til söngstjórans. Davíðssálmur. Ljóð.

2Þér ber lofsöngur, Guð, á Síon * og við þig séu heitin efnd.

3Þú sem heyrir bænir * til þín kemur allt hold.

4Margvíslegar misgjörðir urðu mér yfirsterkari * en þú fyrirgafst afbrot vor.

5Sæll er sá er þú útvelur og lætur nálægjast þig til þess að búa í forgörðum þínum * að vér megum seðjast af gæðum húss þíns, helgidómi musteris þíns.

6Með óttalegum verkum svarar þú oss í réttlæti * þú Guð hjálpræðis vors, þú athvarf allra jarðarinnar endimarka og fjarlægra stranda,

7þú sem festir fjöllin með krafti þínum * gyrtur styrkleika,

8þú sem stöðvar brimgný hafsins * brimgnýinn í bylgjum þess og háreystina í þjóðunum,

9svo að þeir er búa við endimörk jarðar óttast tákn þín * austrið og vestrið lætur þú fagna.

10Þú hefur vitjað landsins og vökvað það, blessað það ríkulega með læk Guðs, fullum af vatni * þú hefur framleitt korn þess, því að þannig hefur þú gjört það úr garði.

11Þú hefur vökvað plógför þess, jafnað plóggarða þess * með regnskúrum hefur þú mýkt það, blessað gróður þess.

12Þú hefur krýnt árið með gæsku þinni * og vagnspor þín drjúpa af feiti.

13Það drýpur af heiðalöndunum * og hæðirnar girðast fögnuði.

14Hagarnir klæðast hjörðum * og dalirnir hyljast korni. Allt fagnar og syngur.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þér ber lofsöngur, Guð, á Síon!

Stuttur ritningarlestur

1Þ 5, 4-5Þér, bræður, eruð ekki í myrkri, svo að dagurinn geti komið yfir yður sem þjófur. Þér eruð allir synir ljóssins og synir dagsins. Vér heyrum ekki nóttunni til né myrkrinu.

Stutt svarvers

Heyr hróp mitt, Drottinn, * á orð þitt vona ég.

Heyr hróp mitt, Drottinn, * á orð þitt vona ég.

Á morgnana kemur bæn mín fyrir þig.

Á orð þitt vona ég.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Heyr hróp mitt, Drottinn, * á orð þitt vona ég.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, úr höndum allra, er hata oss.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Lofum Frelsara vorn, en vegna upprisu hans kom líf og ljós í heiminn. Biðjum hann auðmjúk og segjum:Varðveit oss, Drottinn, í sannleika þínum.Í morgunbæn vorri minnumst vér upprisu þinnar,megi vonin um dýrð þína lýsa oss í dag.Tak, Drottinn, við heitum vorum og áformum,þau séu frumgróðafórn vor í dag.Gef að vér í dag vöxum í kærleika til þín,svo að allir starfi saman að því sem gott er oss og öllum mönnum.Gef, Drottinn, að ljós vort lýsi öllum mönnum,svo að þeir sjái að verk vor eru góð og Föðurnum til dýrðar.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Drottinn Jesús Kristur, þú ert hið sanna ljós er lýsir öllum mönnum til hjálpræðis. Vér biðjum þig að veita oss styrk, til að búa þér veg friðar og réttlætis. Því að þú ert Guð, sem lifir og ríkir með Guði Föður, í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Vér lofum þig, Kristur, semkemur og ert meðal þinna,vér tilbiðjum undrið, aðoss viltu muna og finna.Og allt það, sem spillti voruppreisn gegn þér, viltu bæta,því dauðinn í oss þínuupprisulífi skal mæta.Sem þjónn vor og bróðir hérertu og allt viltu gefaoss börnunum snauðum ogblindum af vantrú og efa.Það líf, sem oss týndist, þíntrúfesti aftur oss gefur,þú gefur þig sjálfan viðborðið, sem blessað þú hefur.Og vér, sem þig svikum, ílofsöng og fögnuði færumstfrá dauða til lífs, er vérþiggjum og neytum og nærumst.Vér tilbiðjum undrið, aðoss viltu muna og finna,vér lofum þig, Kristur, semkemur og ert meðal þinna. Amen.

Sálmur 113

Andstef · Hið eilífa ljós mun lýsa yfir dýrlingum þínum, Drottinn, og þeir munu lifa að eilífu, hallelúja.

1Hallelúja. Þjónar Drottni * lofið, lofið nafn Drottins.

2Nafn Drottins sé blessað héðan * í frá og að eilífu.

3Frá sólarupprás til sólarlags * sé nafn Drottins vegsamað.

4Drottinn er hafinn yfir allar * þjóðir og dýrð hans yfir himnana.

5Hver er sem Drottinn * Guð vor? Hann situr hátt

6og horfir djúpt á * himni og á jörðu.

7Hann reisir lítilmagnann úr duftinu * lyftir snauðum upp úr saurnum

8og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum * hjá tignarmönnum þjóðar hans.

9Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa * í næði sem glaða barnamóður. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hið eilífa ljós mun lýsa yfir dýrlingum þínum, Drottinn, og þeir munu lifa að eilífu, hallelúja.

Sálmur 147, 12-20

Andstef · Jerúsalem, borg Guðs, börn þín munu veita þér fögnuð, því að öll munu þau blessuð verða og þeim mun verða safnað saman með Drottni, hallelúja.

12Vegsama Drottin, Jerúsalem * lofa þú Guð þinn, Síon,

13því að hann hefur gjört sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum * blessað börn þín, sem í þér eru.

14Hann gefur landi þínu frið * seður þig á hinu kjarnbesta hveiti.

15Hann sendir orð sitt til jarðar * boð hans hleypur með hraða.

16Hann gefur snjó eins og ull * stráir út hrími sem ösku.

17Hann sendir hagl sitt sem brauðmola * hver fær staðist frost hans?

18Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna * lætur vind sinn blása, og vötnin renna.

19Hann kunngjörði Jakob orð sitt * Ísrael lög sín og ákvæði.

20Svo hefur hann eigi gjört við neina þjóð * þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Jerúsalem, borg Guðs, börn þín munu veita þér fögnuð, því að öll munu þau blessuð verða og þeim mun verða safnað saman með Drottni, hallelúja.

Sálmur — Opb 19, 1-2. 5-7

Andstef · Frammi fyrir hásæti Guðs og Lambsins munu hinir heilögu syngja nýjan söng; raddir þeirra munu hljóma um allan heim, hallelúja.

1Eftir þetta heyrði ég sem sterkan ym mikils fjölda á himni. Þeir sögðu * „Hallelúja! Hjálpræðið og dýrðin og mátturinn er Guðs vors.

2Sannir og réttlátir eru dómar hans. Hann hefur dæmt skækjuna miklu * sem jörðunni spillti með saurlifnaði sínum, og hann hefur látið hana sæta hefnd fyrir blóð þjóna sinna.“

5Og frá hásætinu barst rödd, er sagði: „Lofsyngið Guði vorum * allir þér þjónar hans, þér sem hann óttist, smáir og stórir.“

6Þá heyrði ég raddir sem frá miklum mannfjölda og sem nið margra vatna og sem gný frá sterkum þrumum. Þær sögðu * „Hallelúja, Drottinn Guð vor, hinn alvaldi, er konungur orðinn.

7Gleðjumst og fögnum og gefum honum dýrðina * því að komið er að brúðkaupi lambsins og brúður hans hefur búið sig.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Frammi fyrir hásæti Guðs og Lambsins munu hinir heilögu syngja nýjan söng; raddir þeirra munu hljóma um allan heim, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

Heb 12, 22-24Þér eruð komnir til Síonfjalls og borgar Guðs lifanda, hinnar himnesku Jerúsalem, til tugþúsunda engla, til hátíðarsamkomu og safnaðar frumgetinna, sem á himnum eru skráðir, til Guðs, dómara allra, og til anda réttlátra, sem fullkomnir eru orðnir, og til Jesú, meðalgangara nýs sáttmála, og til blóðsins, sem hreinsar og talar kröftuglegar en blóð Abels.

Stutt svarvers

Hinir réttlátu munu gleðjast * í nærveru Drottins.

Hinir réttlátu munu gleðjast * í nærveru Drottins.

Þeir munu syngja lofsöng

í nærveru Drottins.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Hinir réttlátu munu gleðjast * í nærveru Drottins.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Hinn dýrlegi flokkur postulanna lofar þig, hinn göfugi félagsskapur spámannanna lofar þig, hvítklæddur herskari píslarvottanna lofar þig, allir hinir heilögu syngja þér dýrðina, ó heilög Þrenning, einn Guð.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, bænheyr þú oss.Minnstu Kirkju þinnar.Verndaðu páfa vorn N.Hjálpaðu biskupi vorum N.Gef að bær vor þróist(borg vor).Endurgjaltu velgjörðamönnum vorum.Varðveittu hjón í samheldni.Vertu ráðgjafi trúlofaðra.Hjálpaðu atvinnulausum að finna vinnu.Hjálpaðu fátækum.Verndaðu ofsótta.Snúðu öllum villuráfandi til iðrunar.Gef látnum eilífa dýrð.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almáttugi eilífi Guð, þú hefur gefið oss að vegsama verðleika allra dýrlinga þinna með einni hátíð. Vér biðjum að fyrir bænarstað svo margra dýrlinga veitir þú oss þá gnægð miskunnar þinnar sem vér þráum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 4

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.

2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.

3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]

4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]

6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.

7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.

8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.

9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

Sálmur 134

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.

2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.

3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

Stuttur ritningarlestur

5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007