Dagatal

Íreneus biskup og píslarvottur

Minningardagur um Íreneus biskup og píslarvott.

Almennur kirkjutími · Vika 12

Litur dagsins er rauður — litur píslarvotta og hins Heilaga Anda.

Lesa meira

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Ritningarlestrar þessa dags eru ekki tilgreindir hér.

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Í Drottni' ef viltu deyja,Drottni þá lifðu hér,til ills lát ei þig teygja,orð Guðs sé kærast þér.Sæll er sá svo við býst,en ef þig ófall hendir,aftur í tíma vendi,undan drag iðrun síst.Brot þín skalt bljúgur játa,en bið þó Guð um náð,af hjarta hryggur gráta,en heilnæm þiggja ráð.Umfram allt þenktu þó:Son Guðs bar þínar syndir,og, svo þú miskunn fyndir,saklaus fyrir sekan dó.Drottinn, lát mig ei dyljastdárlega syndir við,þó hér um stund megi hyljast.Herra trúr, þess ég bið:Nær heimi fer ég frá,örvænting ei mér grandi,orð þitt og sannleiks andihjartað mitt huggi þá. Amen.

Sálmur 108

Andstef · Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð, hjarta mitt er stöðugt.

1Ljóð. Davíðssálmur.

2Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð * ég vil syngja og leika, vakna þú, sála mín!

3Vakna þú, harpa og gígja * ég vil vekja morgunroðann.

4Ég vil lofa þig meðal lýðanna * Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna,

5því að miskunn þín er himnum hærri * og trúfesti þín nær til skýjanna.

6Sýn þig himnum hærri, ó Guð * og dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina,

7til þess að ástvinir þínir megi frelsast. Hjálpa * þú með hægri hendi þinni og bænheyr mig.

8Guð hefur sagt í helgidómi sínum: „Ég vil fagna * ég vil skipta Síkem, mæla út Súkkót–dal.

9Ég á Gíleað, ég á Manasse * og Efraím er hlíf höfði mínu, Júda veldissproti minn.

10Móab er mundlaug mín * í Edóm fleygi ég skónum mínum, yfir Filisteu fagna ég.“

11Hver vill fara með mig í örugga borg * hver vill flytja mig til Edóm?

12Þú hefur útskúfað oss, ó Guð, og þú * Guð, fer eigi út með hersveitum vorum.

13Veit oss lið gegn fjandmönnunum * því að mannahjálp er ónýt.

14Með Guðs hjálp munum vér hreystiverk vinna * og hann mun troða óvini vora fótum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð, hjarta mitt er stöðugt.

Sálmur — Jes 61, 10 – 62, 5 — Fögnuður spámanns yfir hinni nýju Jerúsalem

Andstef · Drottinn hefur klætt mig klæðum hjálpræðis og réttlætis.

10Ég gleðst yfir Drottni, sál mín fagnar yfir Guði mínum, því að hann hefur klætt mig klæðum hjálpræðisins * hann hefur sveipað mig í skikkju réttlætisins, eins og þegar brúðgumi lætur á sig höfuðdjásn og brúður býr sig skarti sínu.

11Því eins og jörðin lætur gróður sinn koma upp og eins og aldingarðurinn lætur frækornin upp spretta * svo mun hinn alvaldi Drottins láta réttlæti og frægð upp spretta í augsýn allra þjóða.

1Sökum Síonar get ég ekki þagað, og sökum Jerúsalem get ég ekki kyrr verið * uns réttlæti hennar rennur upp sem ljómi og hjálpræði hennar sem brennandi blys.

2Þá skulu þjóðirnar sjá réttlæti þitt og allir konungar vegsemd þína * og þú munt nefnd verða nýju nafni, er munnur Drottins mun ákveða.

3Þú munt verða prýðileg kóróna í hendi * Drottins og konunglegt höfuðdjásn í hendi Guðs þíns.

4Þú munt ekki framar nefnd verða Yfirgefin, og land þitt ekki framar nefnt verða Auðn, heldur skalt þú kölluð verða Yndið mitt * og land þitt Eiginkona, því að Drottinn ann þér og land þitt mun manni gefið verða.

5Eins og ungur maður fær meyjar, eins munu synir þínir eignast þig * og eins og brúðgumi gleðst yfir brúði, eins mun Guð þinn gleðjast yfir þér.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn hefur klætt mig klæðum hjálpræðis og réttlætis.

Sálmur 146

Andstef · Ég vil lofa Drottin meðan lifi.

1Hallelúja. Lofa þú Drottin * sála mín!

2Ég vil lofa Drottin meðan lifi * lofsyngja Guði mínum, meðan ég er til.

3Treystið eigi tignarmennum * mönnum sem enga hjálp geta veitt.

4Andi þeirra líður burt, þeir verða aftur að jörðu * á þeim degi verða áform þeirra að engu.

5Sæll er sá, er á Jakobs Guð sér til hjálpar * sá er setur von sína á Drottin, Guð sinn,

6hann sem skapað hefur himin og jörð * hafið og allt sem í því er, hann sem varðveitir trúfesti sína að eilífu,

7sem rekur réttar kúgaðra og * veitir brauð hungruðum. Drottinn leysir bandingja,

8Drottinn opnar augu blindra * Drottinn reisir upp niðurbeygða, Drottinn elskar réttláta.

9Drottinn varðveitir útlendingana, hann annast ekkjur og föðurlausa * en óguðlega lætur hann fara villa vegar.

10Drottinn er konungur að eilífu, hann er Guð þinn * Síon, frá kyni til kyns. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég vil lofa Drottin meðan lifi.

Stuttur ritningarlestur

5M 4, 39-40aÞér ber í dag að kannast við það og hugfesta það, að Drottinn, hann er Guð á himnum uppi og á jörðu niðri og enginn annar. Þú skalt varðveita boð hans og skipanir, sem ég legg fyrir þig í dag.

Stutt svarvers

Ég vil vegsama Drottin * alla tíma.

Ég vil vegsama Drottin * alla tíma.

Ætíð sé lof hans mér í munni.

Alla tíma.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Ég vil vegsama Drottin * alla tíma.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Þjónum Drottni í heilagleika alla daga vora.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Kristur er geisli af dýrð Föðurins. Hann lýsi oss með orði sínu. Áköllum hann í kærleika og segjum:Bænheyr oss, konungur eilífrar dýrðar.Blessaður sért þú, höfundur trúar vorrar og sá er fullnar hana,því að þú kallaðir oss frá myrkri til dásamlegs ljóss þíns.Þú opnaðir augu blindra og gafst daufum heyrn,hjálpa vantrú vorri.Gef, Drottinn, að vér séum stöðug í elsku þinni,svo að vér skiljumst ekki hvert frá öðru.Gef oss, að standast freistingar og erfiðleika,og munum eftir að þakka þér á tímum velsældar.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Minnstu heilags sáttmála þíns, Drottinn, sem þú endurnýjaðir fyrir blóð Lambsins, svo að, leyst frá allri synd, taki þjóð þín ávallt framförum á vegi hjálpræðisins. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Minning dagsins · HL. ÍRENEUSAR, BISKUPS OG PÍSLARVOTTS, KIRKJUFRÆÐARA

Guð, þú gafst hinum sæla biskupi Íreneusi mátt til að efla sannleika kenningarinnar og trúfastlega stuðla að friði kirkjunnar. Vér biðjum, veit fyrir árnað hans að vér endurnýjumst í trú og kærleika og séum ávallt reiðubúin að rækta einingu og samhug. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Ég vil í Drottni sofna sætt,samviskustríðið allt er bætt,dauðahaldi ég Drottin þríf,dýrstur gef þú mér eilíft líf.Kveð ég í Guði góðan lýð,gleðilegar þeim nætur býð,þakkandi öllum þeirra styrk,þjónustu, hjálp og kærleiksverk.Ástkæra þá, ég eftir skil,afhenda sjálfum Guði vil,andvarpið sér hann sárt og heitt,segja þarf honum ekki neitt.Lúinn anda ég legg nú af,lífinu ráði sá sem gaf,í sárum Jesú mig sætt innvef,sálu mína ég Guði gef.Láttu mig, Drottinn, lofa þig,með lofi þínu hvíla mig,ljósið í þínu ljósi sjá,lofa þig strax sem vakna má. Amen.

Sálmur 117

Andstef · Þú ert Kristur, Sonur hins lifanda Guðs. Sæll ert þú, Símon Jónasson!

1Lofið Drottin, allar þjóðir * vegsamið hann, allir lýðir,

2því að miskunn hans er voldug yfir oss * og trúfesti Drottins varir að eilífu. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þú ert Kristur, Sonur hins lifanda Guðs. Sæll ert þú, Símon Jónasson!

Sálmur 147, 12-20

Andstef · Þú ert Pétur, og á þessum kletti mun ég byggja Kirkju mína.

12Vegsama Drottin, Jerúsalem * lofa þú Guð þinn, Síon,

13því að hann hefur gjört sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum * blessað börn þín, sem í þér eru.

14Hann gefur landi þínu frið * seður þig á hinu kjarnbesta hveiti.

15Hann sendir orð sitt til jarðar * boð hans hleypur með hraða.

16Hann gefur snjó eins og ull * stráir út hrími sem ösku.

17Hann sendir hagl sitt sem brauðmola * hver fær staðist frost hans?

18Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna * lætur vind sinn blása, og vötnin renna.

19Hann kunngjörði Jakob orð sitt * Ísrael lög sín og ákvæði.

20Svo hefur hann eigi gjört við neina þjóð * þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þú ert Pétur, og á þessum kletti mun ég byggja Kirkju mína.

Sálmur — Ef 1, 3-10 — Um Guð, Frelsara

Andstef · Þú hinn sæli Páll postuli ert hið útvalda ker Guðs; þú prédikaðir sannleikann út um allan heim.

3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists * sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í himnahæðum.

4Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi * til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum

5ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í * Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun

6til vegsemdar dýrð hans og náð * sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.

7Í honum, fyrir hans blóð eigum * vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.

8Svo auðug er náð hans * sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.

9Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns * þá ákvörðun,

10sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi * Hann ætlaði að safna öllu því sem er í Kristi, á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í honum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þú hinn sæli Páll postuli ert hið útvalda ker Guðs; þú prédikaðir sannleikann út um allan heim.

Stuttur ritningarlestur

Rm 1, 1-3a. 7Páll heilsar yður, þjónn Jesú Krists, kallaður til postula, kjörinn til að boða fagnaðarerindi Guðs, sem hann gaf áður fyrirheit um fyrir munn spámanna sinna í helgum ritningum, fagnaðarerindið um Son hans. Ég heilsa öllum Guðs elskuðu í Róm, sem heilagir eru samkvæmt köllun. Náð sé með yður og friður frá Guði Föður vorum og Drottni Jesú Kristi.

Stutt svarvers

Postularnir boðuðu orð Guðs * og prédikuðu það af trúfesti.

Postularnir boðuðu orð Guðs * og prédikuðu það af trúfesti.

Þeir báru vitni um upprisu Jesú Krists.

Og prédikuðu það af trúfesti.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Postularnir boðuðu orð Guðs * og prédikuðu það af trúfesti.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Dýrlegir eru postular Krists; þeir elskuðu hver annan meðan þeir lifðu og í dauða fögnuðu þeir saman að eilífu.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Bjarga þú lýð þínum, Drottinn.Endurnýjaðu Kirkju þína ævinlega.Umvefðu páfa N. með gjöfum þínum.Hjálpaðu biskupi vorum N.Varðveittu þjóðir í friði.Vertu viðstaddur á öllum heimilum.Minnstu samfélags vors.Styddu réttlæti.Blessaðu uppskeru bændanna.Vertu nálægur ferðamönnum.Stattu með listamönnum.Styrktu ekkjur.Gef látnum eilíft líf.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, þú hefur gefið oss heilaga og vegsamlega gleði þessa dags á stórhátíð postulanna Péturs og Páls. Gef Kirkju þinni að fylgja í öllu boðum þeirra, en fyrir þá hóf hún að útbreiða trúna. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 4

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.

2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.

3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]

4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]

6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.

7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.

8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.

9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.

Sálmur 134

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.

2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.

3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.

Stuttur ritningarlestur

5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007