Hátíð Maríu Guðsmóður
Stórhátíð — einn af mestu dögum kirkjuársins.
Jólatíð · Vika 2Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.
Hvað þýðir það
Messuskylda — kaþólikkar sækja messu þennan dag.
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
Ritningarlestrar þessa dags eru ekki tilgreindir hér.
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Ó, heilaga mær, þú ert hjartfólgin mér,á himni og jörðu er náðin með þér.Af hæðum kom andinn og getnað þér gafog Guðs sonur, María, fæddist þér af.Þú elskaðir Drottin í auðmýkt og trúog englinum fúslega svaraðir þú:„Mér verði það allt sem hann ætlaði mér,því ambátt í þjónustu Drottins ég er.“Þú alþýðukona sem útvalin varstog ungbarnið Jesúm í faðmi þér barst,þú þekktir af reynslunni raunir og slithins ráðvanda manns og hans daglega strit.Hjá krossinum stóðstu og horfðir á hannsem hékk þar í dauðanaum, saklausan mann.Þú kvaldist þar sjálf en nú kennir þú ossað koma með djörfung og bera vorn kross.Ó, haltu nú, móðir, í höndina’ á mérog hjálpaðu’ á veginum þar sem ég fer.Vér biðjum þig ávallt, frá barni til manns,að benda oss öllum á veginn til hans. Amen.
Sálmur 63, 2-9
Andstef · Meyjan hefur alið Frelsarann: Blóm hefur sprottið af Ísaís ætt og stjarna hefur risið frá Jakob. Ó Guð, vér lofum þig.
2Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég, sál mína þyrstir eftir þér * hold mitt þráir þig, í þurru landi, örþrota af vatnsleysi.
3Þannig hefi ég litast um eftir þér í * helgidóminum til þess að sjá veldi þitt og dýrð,
4því að miskunn þín er mætari * en lífið. Varir mínar skulu vegsama þig.
5Þannig skal ég lofa þig meðan lifi * hefja upp hendurnar í þínu nafni.
6Sál mín mettast sem af merg og feiti * og með fagnandi vörum lofar þig munnur minn,
7þá er ég minnist þín í hvílu minni * hugsa um þig á næturvökunum.
8Því að þú ert mér fulltingi * í skugga vængja þinna fagna ég.
9Sál mín heldur sér fast við þig * hægri hönd þín styður mig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Meyjan hefur alið Frelsarann: Blóm hefur sprottið af Ísaís ætt og stjarna hefur risið frá Jakob. Ó Guð, vér lofum þig.
Sálmur — Dn 3, 57-88. 56 — Öll sköpunin lofi Drottin
Andstef · María hefur alið Frelsara vorn. Jóhannes skírari sá hann og hrópaði upp yfir sig: Þetta er Lamb Guðs, sem tekur burt syndir heimsins, hallelúja.
57Öll verk Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
58Þér englar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
59Þér himnar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
60Öll þér vötn, sem eruð yfir himnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
61Allir þér kraftar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
62Þér sól og tungl, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
63Þér stjörnur himinsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
64Sérhver skúr og dögg, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
65Allir þér andar Guðs, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
66Þér eldur og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
67Þér kuldi og hiti, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
68Þér daggir og hrím, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
69Þér frost og kuldi, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
70Þér ís og snjór, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
71Þér nætur og dagar, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
72Þér ljós og myrkur, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
73Þér eldingar og ský, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
74Jörðin blessi Drottin * hún lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.
75Þér fjöll og hæðir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
76Allt það, sem upp sprettur af jörðunni, blessi Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
77Þér lindir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
78Þér höf og fljót, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
79Þér hvalir og allt, sem hrærist í vötnunum, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
80Allir þér fuglar loftsins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
81Öll þér dýr og fénaður, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
82Þér mannanna synir, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
83Ísrael blessi Drottin * lofi hann og hefji hann yfir allt að eilífu.
84Þér prestar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
85Þér þjónar Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
86Þér andar og sálir hinna réttlátu, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
87Þér heilögu og auðmjúkir í hjarta, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.
88Ananías, Asarías og Mísael, blessið Drottin; lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu. Því að hann hefur frelsað oss * frá helju og bjargað oss úr hendi dauðans og frelsað oss úr miðjum brennandi loganum og bjargað oss úr miðjum eldinum.
56Blessaður ert þú á festingu himinsins * og lofs verður og dýrlegur að eilífu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · María hefur alið Frelsara vorn. Jóhannes skírari sá hann og hrópaði upp yfir sig: Þetta er Lamb Guðs, sem tekur burt syndir heimsins, hallelúja.
Sálmur 149
Andstef · María hefur alið Konung og er nafn hans ævarandi; hennar er fögnuður móðernis, hennar er dýrð meydómsins. Ekkert þessu líkt var áður séð, aldrei mun það aftur sjást, hallelúja.
1Hallelúja. Syngið Drottni nýjan söng * lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra.
2Ísrael gleðjist yfir skapara sínum * synir Síonar fagni yfir konungi sínum.
3Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidansi * leika fyrir honum á bumbur og gígjur.
4Því að Drottinn hefur þóknun á lýð sínum * hann skrýðir hrjáða með sigri.
5Hinir trúuðu skulu gleðjast með sæmd * syngja fagnandi í hvílum sínum
6með lofgjörð Guðs á tungu * og tvíeggjað sverð í höndum
7til þess að framkvæma hefnd á þjóðunum * hirtingu á lýðunum,
8til þess að binda konunga þeirra með fjötrum * þjóðhöfðingja þeirra með járnhlekkjum,
9til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi. * Það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · María hefur alið Konung og er nafn hans ævarandi; hennar er fögnuður móðernis, hennar er dýrð meydómsins. Ekkert þessu líkt var áður séð, aldrei mun það aftur sjást, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
Mík 5, 2. 3ab. 4aGuð mun yfirgefa þá til þess tíma, er sú hefir fætt, er fæða skal, en þá munu leifar ættbræðra hans hverfa aftur til Ísraelsmanna. Þá mun hann standa og halda þeim til haga í krafti Drottins, í hinu tignarlega nafni Drottins Guðs síns. Og hann mun friðurinn vera.
Stutt svarvers
Drottinn hefir kunngjört, hjálpræði sitt. * Hallelúja, hallelúja.
Drottinn hefir kunngjört, hjálpræði sitt. * Hallelúja, hallelúja.
Fyrir augum þjóðanna opinberaði hann réttlæti sitt.
Hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn hefir kunngjört, hjálpræði sitt. * Hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Dásamlegur er leyndardómurinn kunngjörður í dag: Náttúra mannsins er gerð ný þegar Guð gerðist maður; hann er áfram það sem hann var og verður það sem hann var ekki. Hver náttúra er eigi að síður áfram aðgreind og að eilífu óskipt.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Gefum Kristi dýrð sem fæddur var af Maríu mey með krafti Heilags Anda og biðjum til hans með þessum orðum:Sonur Maríu meyjar, miskunna þú oss.Kristur, fæddur af Maríu mey, þú ert Undraráðgjafi og Friðarhöfðingi,gef heiminum frið þinn.Konungur vor og Guð, þú hefur reist oss upp með komu þinni,hjálpa oss að heiðra þig alla daga lífs vors með trú vorri og gjörðum.Þú gerðist líkur oss,veit í miskunnsemi þinni að vér megum verða líkari þér.Þú gerðist borgari vorrar jarðnesku borgar,veit að vér megum gerast borgarar vors sanna föðurlands, ríkis þíns á himnum.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Vér biðjum, Guð, sem veitt hefur mannkyni ævarandi hjálpræði að gjöf fyrir frjósaman hreinleika sællar Maríu, veit að vér skynjum árnaðarbænir hennar fyrir oss, er gerði oss kleift að þekkjast höfund lífsins, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Lát opnast augu mín,minn ástvin himnum á,svo ástarundur þínmér auðnist skýrt að sjá:hið fríða foldarskraut,hinn fagra stjarnaherá loftsins ljómabrautog ljóssins dýrð hjá þér.Lát opnast eyru mín,minn ástafaðir kær,svo eilíf orðin þínég ávallt heyri skær:þíns lögmáls hvellan hljóm,þín heilög boð, ei ströng,þíns guðspjalls ástarómog engla helgan söng.Lát opnast munninn minn,svo mál hans, Drottinn kær,þitt vald og vísdóm þinnæ votti nær og fjær.Veit mér að mikla þig,á meðan æðar slá,já, lengur lát þú migþig lofa himnum á.Lát opnast harðlæst húsmíns hjarta, Drottinn minn,svo hýsi' eg hjartans fúsþar helgan anda þinn. Amen.
Sálmur 135 I
Andstef · Getinn af Föðurnum áður en morgunstjarnan skein eða tímarnir hófust, Drottinn Frelsari vor hefur birst á jörðu í dag.
1Hallelúja. Lofið nafn Drottins * lofið hann, þér þjónar Drottni,
2er standið í húsi Drottins * í forgörðum húss Guðs vors.
3Lofið Drottin, því að Drottinn er góður * leikið fyrir nafni hans, því að það er yndislegt.
4Því að Drottinn hefur útvalið sér Jakob * gert Ísrael að eign sinni.
5Já, ég veit * að Drottinn er mikill og að Drottinn vor er öllum guðum æðri.
6Allt, sem Drottinn þóknast, það gjörir hann * á himni og jörðu, í hafinu og öllum djúpunum.
7Hann lætur skýin uppstíga frá endimörkum jarðar * gjörir eldingarnar til að búa rás regninu, hleypir vindinum út úr forðabúrum hans.
8Hann laust frumburði Egyptalands * bæði menn og skepnur,
9sendi tákn og undur yfir Egyptaland * gegn Faraó og öllum þjónum hans.
10Hann laust margar þjóðir * og deyddi volduga konunga:
11Síhon, Amorítakonung, og Óg, konung í Basan * og öll konungsríki í Kanaan,
12og gaf lönd þeirra að erfð * að erfð Ísrael, lýð sínum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Getinn af Föðurnum áður en morgunstjarnan skein eða tímarnir hófust, Drottinn Frelsari vor hefur birst á jörðu í dag.
Sálmur 135 II
Andstef · Mikill er Drottinn vor Guð, sem er hafinn yfir alla aðra guði.
13Drottinn, nafn þitt varir að eilífu * minning þín, Drottinn, frá kyni til kyns,
14því að Drottinn réttir hlut þjóðar * sinnar og aumkast yfir þjóna sína.
15Skurðgoð þjóðanna eru silfur og gull * handaverk manna.
16Þau hafa munn, en tala ekki * augu, en sjá ekki,
17þau hafa eyru, en heyra ekki * og eigi er heldur neinn andardráttur í munni þeirra.
18Eins og þau eru, verða smiðir þeirra * allir þeir, er á þau treysta.
19Ísraels ætt, lofið Drottin * Arons ætt, lofið Drottin!
20Leví ætt, lofið Drottin * þér sem óttist Drottin, lofið Drottin!
21Lofaður sé Drottinn frá Síon * hann sem býr í Jerúsalem! Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Mikill er Drottinn vor Guð, sem er hafinn yfir alla aðra guði.
Sálmur — 1 Tm 3, 16 — Leyndarðómur Krists og dýrð
Andstef · Stjarnan brann sem logi og vísaði veginn til Guðs, Konungs konunganna; vitringarnir sáu táknið og komu með gjafir sínar í lotningu fyrir sínum mikla konungi.
16Og víst er leyndardómur guðhræðslunnar mikill: Hann opinberaðist í holdi, var réttlættur í anda * birtist englum, var boðaður með þjóðum, var trúað í heimi, var hafinn upp í dýrð.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Stjarnan brann sem logi og vísaði veginn til Guðs, Konungs konunganna; vitringarnir sáu táknið og komu með gjafir sínar í lotningu fyrir sínum mikla konungi.
Stuttur ritningarlestur
2 Tm 1, 9-10Guð hefur frelsað oss og kallað heilagri köllun, ekki eftir verkum vorum, heldur eftir eigin ákvörðun og náð, sem oss var gefin fyrir Krist Jesú frá eilífum tímum, en hefur nú birst við komu frelsara vors Krists Jesú. Hann afmáði dauðann, en leiddi í ljós líf og óforgengileika með fagnaðarerindinu.
Stutt svarvers
Í honum munu verða blessaðir, * menn af öllum kynþáttum.
Í honum munu verða blessaðir, * menn af öllum kynþáttum.
Allar þjóðir munu vegsama dýrð hans.
Menn af öllum kynþáttum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Í honum munu verða blessaðir, * menn af öllum kynþáttum.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Vitringarnir sögðu þegar þeir sáu stjörnuna: Þetta hlýtur að tákna fæðingu mikils konungs. Förum og leitum að honum og leggjum fjársjóð vorn að fótum hans: Gull, reykelsi og myrru.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, hjálpaðu lýð þínum.Leiddu mannkynið með starfi Kirkjunar til einingar.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn með blessun þinni N.Leiddu djákna með Anda þínum.Helgaðu trúaða.Vertu ráðgjafi handverksmanna.Leiddu ríka til að nota eigur sínar rétt.Verndaðu veika.Frelsaðu bandingja.Vernda oss frá jarðhræringum.Verndaðu oss frá óvæntum dauða.Veittu látnum alsæla sýn auglits þíns.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, þú sem á þessum degi opinberaðir þjóðunum eingetinn Son þinn með leiðarstjörnu, veit þú mildur að oss, sem þekkjum þig þegar fyrir trúna, auðnist að íhuga ásýnd hátignar þinnar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 4
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.
2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.
3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]
4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]
6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.
7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.
9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
Sálmur 134
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.
2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.
3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
Stuttur ritningarlestur
5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007