Títusarbréf

Títusarbréf 1

Páll þjónn Guðs, en postuli Jesú Krists, samkvæmt trú Guðs útvaldra og þekking sannleikans, sem er í samhljóðan við guðhræðslu;

í von um eilíft líf, sem Guð, sá er ekki lýgur, hefir heitið frá eilífum tíðum,

en opinberaði á sínum tímum orð sitt í prédikun, sem mér er trúað fyrir eftir skipun Guðs frelsara vors,

til Títusar, skilgetins sonar samkvæmt sameiginlegri trú. Náð og friður frá Guði föður og Kristi Jesú, frelsara vorum.

Þess vegna lét eg þig eftir í Krít, til þess að þú færðir í lag það sem ógjört var og skipaðir öldunga í hverri borg, svo sem eg lagði fyrir þig:

þann einn sem er óaðfinnanlegur, einnar konu eiginmaður, á trúuð börn, sem eigi eru sökuð um andarvaraleysi eða þrjózku.

Því að biskup á að vera óaðfinnanlegur, eins og ráðsmaður Guðs, ekki sjálfbirgingur, ekki reiðigjarn, ekki drykkjumaður, ekki áflogamaður, ekki sólginn í svívirðilegan gróða;

heldur gestrisinn, gott elskandi, hóglátur, réttlátur, heilagur, bindindissamur;

maður fastheldinn við hið sanna orð samkvæmt kenningunni, til þess að hann sé fær um bæði að áminna með hinni heilnæmu kenningu og að hrekja þá sem móti mæla.

Því að margir eru þverbrotnir og fara með hégómamál og leiða í villu, allra helzt eru það umskurnarmennirnir,

og verður að stinga upp í þá; það eru mennirnir, sem kollvarpa heilum heimilum, er þeir kenna það sem eigi á að kenna, fyrir svívirðilegs gróða sakir.

Einhver af þeim, eigin spámaður þeirra, hefir svo að orði komist: Krítarmenn eru síljúgandi, óarga dýr og letimagar.

Þessi vitnisburður er sannur. Fyrir þá sök skalt þú vanda harðlega um við þá, til þess að þeir verði heilbrigðir í trúnni,

og gefi sig ekki að Gyðinga-æfintýrum og boðum manna, sem fráhverfir eru sannleikanum.

Allir hlutir eru hreinum hreinir, en flekkuðum og vantrúuðum er ekkert hreint, heldur er bæði hugur þeirra flekkaður og samvizka.

Þeir segjast svo sem þekkja Guð, en afneita honum með verkunum; eru þeir viðbjóðslegir og óhlýðnir og óhæfir til hvers góðs verks.

Nýja testamentið í þýðingunni frá 1908, sem kom út með Gamla testamentinu í Biblíunni 1912. Þýðendurnir — Haraldur Níelsson, Þórhallur Bjarnarson, Eiríkur Briem og Jón Helgason — létust allir fyrir meira en sjötíu árum, svo textinn er almenningseign. Rafræn útgáfa fengin af rafbokavefur.is.

Biblían 1912 · almenningseign · texti frá rafbokavefur.is