Opinberunarbókin

Opinberunarbókin 15

Og eg sá annað tákn á himni, mikið og undursamlegt: sjö engla, sem höfðu sjö síðustu plágurnar, því að með þeim fullnaðist reiði Guðs.

Og eg leit sem glerhaf eldi blandið, og þá, sem unnið höfðu sigur á dýrinu og á líkneski þess og á tölu nafns þess, standa við glerhafið og halda á hörpum Guðs.

Og þeir syngja söng Móse, Guðs þjóns, og söng lambsins, segjandi: Mikil og dásamleg eru verkin þín, drottinn Guð, þú alvaldi; réttlátir og sannir eru vegir þínir, þú konungur aldanna.

Hver skyldi ekki óttast, drottinn, og vegsama nafn þitt? Því að þú einn ert heilagur, því að allar þjóðir munu koma og tilbiðja frammi fyrir þér, því að réttlátir dómar þínir eru opinberir orðnir.

Og eftir þetta sá eg, og upp var lokið musteri vitnisburðar-tjaldbúðarinnar á himni.

Og út gengu úr musterinu englarnir sjö, sem höfðu plágurnar sjö, klæddir hreinu skínanda líni og gyrtir gullbeltum um brjóst.

Og englunum sjö fékk ein af verunum fjórum sjö gullskálar, fullar reiði Guðs, hans er lifir um aldir alda.

Og musterið fyltist af reyknum af dýrð Guðs og af mætti hans, og enginn mátti innganga í musterið, unz fullnaðar væru þær sjö plágur englanna sjö.

Nýja testamentið í þýðingunni frá 1908, sem kom út með Gamla testamentinu í Biblíunni 1912. Þýðendurnir — Haraldur Níelsson, Þórhallur Bjarnarson, Eiríkur Briem og Jón Helgason — létust allir fyrir meira en sjötíu árum, svo textinn er almenningseign. Rafræn útgáfa fengin af rafbokavefur.is.

Biblían 1912 · almenningseign · texti frá rafbokavefur.is