2. Jóhannesarbréf

2. Jóhannesarbréf 1

Öldungurinn til hinnar útvöldu frúar og barna hennar, sem eg elska í sannleika, og ekki eg einn, heldur einnig allir, sem þekkja sannleikann,

sakir sannleikans, sem er stöðugur í oss og mun vera hjá oss til eilífðar;

náð, miskunn, friður frá Guði föður og frá Jesú Kristi, syni föðurins, mun vera með oss í sannleika og elsku.

Eg er orðinn næsta glaður, af því að eg fann nokkur af börnum þínum, er framganga í sannleika, samkvæmt því sem vér meðtókum boðorð um af föðurnum.

Og nú bið eg þig, frú, ekki svo sem eg skrifi þér nýtt boðorð, heldur það, er vér höfðum frá upphafi, að vér skulum elska hver annan.

Og þetta er kærleikurinn, að vér framgöngum eftir boðorðum hans. Þetta er boðorðið, eins og þér heyrðuð frá upphafi, til þess að þér skylduð framganga í því.

Því að margir afvegaleiðendur eru farnir út í heiminn, sem ekki viðurkenna að Jesús Kristur sé kominn í holdi. Slíkur maður er afvegaleiðandinn og andkristurinn.

Hafið gætur á sjálfum yður, til þess að þér missið ekki það, sem vér höfum áunnið, heldur megið meðtaka full laun.

Sérhver sem fer of langt, og er ekki stöðugur í kenningu Krists, hefir ekki Guð. Sá sem er stöðugur í kenningunni, hann hefir bæði föðurinn og soninn.

Ef einhver kemur til yðar, og kemur ekki með þessa kenningu, þá takið hann ekki á heimili yðar, og bjóðið hann ekki velkominn;

því að sá, sem býður hann velkominn, verður hluttakandi í hans vondu verkum.

Þótt eg hafi margt að rita yður, vildi eg ekki gjöra það með pappír og bleki; en eg vona að koma til yðar og tala munnlega við yður, til þess að gleði yðar verði fullkomin.

Þér heilsa börn systur þinnar, hinnar útvöldu.

Nýja testamentið í þýðingunni frá 1908, sem kom út með Gamla testamentinu í Biblíunni 1912. Þýðendurnir — Haraldur Níelsson, Þórhallur Bjarnarson, Eiríkur Briem og Jón Helgason — létust allir fyrir meira en sjötíu árum, svo textinn er almenningseign. Rafræn útgáfa fengin af rafbokavefur.is.

Biblían 1912 · almenningseign · texti frá rafbokavefur.is