1. Tímóteusarbréf

1. Tímóteusarbréf 6

Allir þeir, sem eru ánauðugir þrælar, skulu halda húsbændur sína alls heiðurs maklega, til þess að eigi verði lastmælt nafni Guðs og kenningunni.

En þeir, sem trúaða húsbændur eiga, skulu ekki lítilsvirða þá vegna þess að þeir eru bræður, heldur þjóni því betur sem þeir eru trúaðir og elskaðir, er góða starfsins verða aðnjótandi. Kenn þú þetta og áminn um það.

Ef einhver fer með annarlegar kenningar og fylgir ekki hinum heilnæmu orðum drottins vors Jesú Krists og kenningunni, sem samkvæm er guðhræðslu, þá hefir hann ofmetnast, þó að hann viti ekki neitt;

en hann er sótttekinn af þrætum og orðastælum, sem af fæðist öfund, deilur, lastmæli, vondar hugsanir,

þjark og þras hugspiltra manna, sem sneyddir eru sannleikanum, en skoða guðhræðsluna sem gróðaveg.

Já, guðhræðslan samfara nægjusemi er mikill gróðavegur,

því að ekkert höfum vér inn í heiminn flutt, ekki getum vér heldur flutt neitt út þaðan; —

en ef vér höfum fæði og klæði, þá látum oss það nægja.

En þeir, sem ríkir vilja verða, falla í freistni og snöru og margar óviturlegar fýsnir og skaðlegar, er sökkva mönnunum niður í tortíming og glötun,

því að fégirndin er rót alls þess, sem ilt er; við þá fíkn hafa nokkurir vilst frá trúnni og hafa stungið sjálfa sig mörgum harmkvælum.

En þú, Guðs maður, forðast þú þetta, en stunda réttlæti, guðhræðslu, trú, kærleika, stöðuglyndi og hógværð.

Berstu trúarinnar góðu baráttu, höndla þú eilífa lífið, sem þú varst kallaður til og játaðir góðu játningunni í viðurvist margra votta.

Eg býð þér fyrir augliti Guðs, sem veitir öllu líf, og Krists Jesú, er gjörði góðu játninguna frammi fyrir Pontíusi Pílatusi,

að þú gætir boðorðsins lýtalaust og óaðfinnanlega alt til opinberunar drottins vors Jesú Krists,

sem hinn sæli og eini alvaldur mun á sínum tíma birtast láta, konungur konunganna og drottinn drotnanna,

hann sem einn hefir ódauðleika, sem býr í ljósi, er enginn fær til komist, sem enginn maður leit né litið getur, honum sé heiður og eilífur máttur. Amen.

Bjóð ríkismönnum þessarar aldar að hugsa ekki hátt né treysta fallvaltleik auðsins, heldur Guði, sem lætur oss alt ríkulega í té til nautnar;

bjóð þeim að gjöra gott, að þeir séu ríkir af góðum verkum, séu örlátir, fúsir að miðla öðrum,

safni handa sjálfum sér í fjársjóðu góðri undirstöðu til hins ókomna, til þess að þeir höndli hið sanna líf.

Þú Tímóteus, varðveit það sem þér er trúað fyrir, og forðast hinar vanheilögu hégómaræður og mótsagnir hinnar rangnefndu þekkingar,

sem nokkurir hafa játast undir og orðið frávillingar í trúnni. Náð sé með yður.

Nýja testamentið í þýðingunni frá 1908, sem kom út með Gamla testamentinu í Biblíunni 1912. Þýðendurnir — Haraldur Níelsson, Þórhallur Bjarnarson, Eiríkur Briem og Jón Helgason — létust allir fyrir meira en sjötíu árum, svo textinn er almenningseign. Rafræn útgáfa fengin af rafbokavefur.is.

Biblían 1912 · almenningseign · texti frá rafbokavefur.is