Þriðja Mósebók 3Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Þriðja Mósebók 3

En sé fórn hans heillafórn og færi hann hana af nautpeningi, hvort heldur er karlkyns eða kvenkyns, þá sé það gallalaust, er hann fram ber fyrir Drottni.

Því næst skal hann leggja hönd sína á höfuð fórnarinnar og slátra henni fyrir dyrum samfundatjaldsins, en synir Arons, prestarnir, skulu stökkva blóðinu alt í kring utan á altarið.

skal hann síðan færa Drottni eldfórn af heillafórninni: netjuna, er hylur iðrin, og allan innýflamörinn,

bæði nýrun og nýrnamörinn, sem liggur innan á mölunum, og stærra lifrarblaðið; við nýrun skal hann taka það frá.

Og synir Arons skulu brenna það á altarinu ofan á brennifórninni, sem liggur ofan á viðinum, sem lagður er á eldinn, til eldfórnar þægilegs ilms fyrir Drottni.

fl En sé fórnargjöfin, sem hann færir Drottni að heillafórn, afsauðfénaði, þá sé það, er hann fram ber, gallalaust, hvort heldur það er karlkyns eða kvenkyns.

Færi hann sauðkind að fórnargjöf, þá færi hann hana fram fyrir Drottni.

Því næst skal hann leggja hönd sína á höfuð fórnarinnar og slátra henni fyrir framan samfundatjaldið, en synir Arons skulu stökkva blóðinu alt í kring utan á altarið.

Skal hann síðan af heillafórninni færa Drottni í eldfórn mörinn úr henni: rófuna alla — skal taka hana af fast við rófubeinið—, netjuna, erhylur iðrin, og allan innýflamörinn,

bæði nýrun og nýrnamörinn, sem er innan á mölunum, og stærra lifrarblaðið; við nýrun skal hann taka það frá.

Og presturinn skal brenna þetta á altarinu sem eldfórnarmat Drottinn til handa.

En sé fórnargjöf hans geitsauður, þá skal hann færa hann fram fyrir Drottni,

leggja hönd sína á höfuð hans og slátra honum fyrir framan samfundatjaldið, en synir Arons skulu stökkva blóðinu alt í kring utan á altarið.

Því næst skal hann fram bera af honum sem fórnargjöf, sem eldfórn Drottins til handa, netjuna, er hylur iðrin, og allan innýflamörinn,

bæði nýrun og nýrnamörinn, sem liggur innan á mölunum, og stærra lifrarblaðið; við nýrun skal hann taka það frá.

Og presturinn skal brenna það á altarinu sem eldfórnar-mat þægilegs ilms; allur mör heyrir Drottni til.

Skal það vera æfinlegt lögmál hjá yður frá kyni til kyns í öllum bústöðum yðar: þér skuluð engan mör og ekkert blóð eta.