Gamla testamentiðLögmálið
Og Drottinn talaði við Móse og sagði:
seg þú Aroni og sonum hans að þeir skuli halda sér frá helgigjöfum Ísraelsmanna, þeim er þeir helga mér, svo að þeir vanhelgi eigi heilagt nafn mitt; eg er Drottinn.
Seg við þá: Hver sá af niðjum yðar, nú og í komandi kynslóðum, er kemur nærri helgigjöfum þeim, er Ísraelsmenn helga Drottni, meðan hann er óhreinn, skal upprætlur verða frá augliti mínu; eg er Drottinn.
Eigi skal neinn sá af niðjum Arons, sem líkþrár er eða hefir rensli, eta af helgigjöfunum, unz hann: er hreinn. Og sá, er snertir einhvern þann, sem saurgaður er af líki, eða mann sem hefir sáðlát,
eða sá, sem snert hefir eitthvert skriðkvikindi og saurgast af því eða mann og saurgast af. honum, hverrar tegundar sem Óóhreinleiki hans er,
Ssá er snert hefir slíkt, skal vera óhreinn til kvelds; og eigi skal hann eta af helgigjöfunum, nema hann laugi líkama sinn í vatni.
En jafnskjótt og sól er sezt, er hann hreinn; og síðan eti hann af helgigjöfunum, því að það er matur hans.
Sjálfdauða skepnu eða dýrrifna skal hann eigi eta, svo að hann saurgist af; eg er Drottinn.
Þeir skulu því varðveita boðorð mín, svo að þeir baki sér eigi synd fyrir: slíkt og deyi vegna þess, fyrir því að þeir vanhelguðu það; eg er Drottinn, sá er helgar þá.
Og enginn annarlegur skal eta helgan dóm; hvorki hjábýlingur prests né kaupamaður skal eta helgan dóm.
En kaupi prestur þræl verði, þá skal hann eta af því, svo og sá, er fæddur er í húsi hans, — þeir skulu eta af mat hans.
Og eigi skal prestsdóttir, sé hún leikmanni gefin, eta af lyftifórn helgigjafanna.
En sé dóttir prests ekkja eða kona brott rekin og eigi ekki barna og sé horfin aftur í hús föður síns, eins og í æsku hennar, skal hún eta af mat föður síns; en enginn annarlegur skal eta af honum.
Nú etur einhver af vangá helgan dóm, og skal hann þá færa presti hinn helga dóm og greiða fimtung um fram.
Og þeir skulu eigi vanhelga helgigjafir Ísraelsmanna, það er þeir færa Drottni í lyftifórn,
svo að þeir baki þeim eigi sekt með misgjörð sinni, er þeir eta helgigjafir þeirra, því að eg er Drottinn, sá er helgar þá.
Og Drottinn talaði við Móse og sagði:
Mæl þú til Arons og sona hans og allra Ísraelsmanna og seg við þá: Þá er einhver af húsi Ísraels eða útlendum mönnum í Ísrael ber fram fórnargjöf sína — hvort sem það er einhver heitfórn þeirra eða sjálfviljafórn, sem þeir færa Drottni að brennifórn —,
þá skuluð þér bera hana svo fram, að hún afli yður velþóknunar: gallalausa, karlkyns, af nautum, sauðum eða geitum.
Eigi skuluð þér bera fram neitt það, er lýti hefir á sér, því að það mun eigi afla yður velþóknunar.
Nú vill einhver fórna Drottni heillafórn af nautum eða sauðfénaði, hvort heldur er til að efna heit sitt eða í sjálfviljafórn, þá skal það vera gallalaust, til þess að það afli honum velþóknunar; ekkert lýti sé á því.
Það sem blint er eða beinbrotið eða sært eða með kýlum eða kláða eða útbrotum, — það skuluð þér eigi færa Drottni, og eigi skuluð þér bera Drottinn eldfórn af því á altarið.
En nautkind eða sauðkind, sem hefir lim ofskapaðan eða vanskapaðan, mátt þú fórna í sjálfviljafórn, en sem heitfórn mun hún eigi verða þóknanleg.
Það, sem vanað er með kramningu, marningu, sliti eða skurði, skuluð þér eigi færa Drottni; og þér skuluð eigi slíkt gjöra í landi yðar.
Né heldur skuluð þér fá neitt af þessu hjá útlendum manni og bera það fram svo sem mat Guðs yðar, því að skemd er á því; lýti er á því, það mun eigi afla yður velþóknunar.
Og Drottinn talaði við Móse og sagði:
Þá er kálfur, lamb eða kið fæðist, skal það ganga sjö daga undir móðurinni, en átta daga gamalt og þaðan af eldra mun það verða þóknanlega meðtekið sem eldfórnargjöf Drottins til handa.
Og þér skuluð eigi slátra kú eða á sama daginn og afkvæmi hennar.
Og er þér fórnið Drottni þakkarfórn, þá fórnið henni svo, að hún afli yður velþóknunar.
Skal hún etin samdægurs; eigi skuluð þér leifa neitt af henni til morguns; eg er Drottinn.
Varðveitið því skipanir mínar og haldið þær; eg er Drottinn.
Og eigi skuluð þér vanhelga heilagt nafn mitt, svo að eg helgist meðal Ísraelsmanna; eg er Drottinn, sá er yður helgar,
sá er leiddi yður út af Egiptalandi, til þess að vera Guð yðar; eg er Drottinn.