Þriðja Mósebók 15Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Þriðja Mósebók 15

Og Drottinn talaði við Móse og Aron og sagði:

Mælið til Ísraelsmanna og segið við þá: Nú hefir einhver rensli úr hörundi sínu, og er hann óhreinn vegna renslisins.

Og skal svo vera um ólireinKfiia hans, þá er hann hefir rensli: hvort sem renslið úr hörundi hans gengur út eða stemmist, þá er hann óhreinn.

Sérhver hvíla skal óhrein vera, ef maður með rensli hefir legið í henni, og sérhvað það skal óhreint vera, er hann situr á.

Og hver sem snertir hvílu hans, skal þvo klæði sín og lauga sig í vatni og vera óhreinn til kvelds.

Og sá er sezt á nokkuð það, sem maður með rensli hefir setið á, skal þvo klæði sín og lauga sig í vatni og vera óhreinn til kvelds.

TOg sá sem snertir líkama þess, er rensli hefir, skal þvo klæði sín og lauga sig í vatni og vera óhreinn til kvelds.

Og hræki sá, er rensli hefir, á hreinan mann, þá skal hann þvo klæði sín og lauga sig í vatni og vera óhreinn til kvelds.

Og sérhver söðull skal óhreinn vera, ef maður með rensli ríður í honum.

Og hver sá, er snertir eitthvað það, sem hefir verið undir honum, skal vera óhreinn til kvelds; og sá, er ber það, skal þvo klæði sín og lauga sig í vatni og vera óhreinn til kvelds.

Og hver sá, er maður með rensli hefir snortið og hafi hann eigi skolað hendur sínar í vatni, skal þvo klæði sín og lauga sig í vatni og vera óhreinn til kvelds.

Og leirker skal brjóta, ef maður með rensli snertir það, en tré-ílát öll skola í vatni.

En er sá, er rensli hefir, verður hreinn af rensli sínu, skal hann telja sjö daga frá hreinsun sinni og þvo klæði sín og lauga líkama sinn í rennandi vatni og er þá hreinn.

Og á áttunda degi skal hann taka tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur og ganga fram fyrir Drottni að dyrum samfundatjaldsins og færa þær presti.

Og prestur skal fórna þeim, Annari í syndafórn og hinni í brennifórn; og prestur skal friðþægja fyrir hann frammi fyrir Drottni vegna renslis hans.

Nú lætur einhver sæði og skal hann lauga allan líkama sinn í vatni og vera óhreinn til kvelds.

Og hvert það fat eða skinn, sem sæðið hefir komið á, skal þvegið í vatni og vera óhreint til kvelds.

Og leggist maður með konu og hafi samfarir við hana, þá skulu þau lauga sig í vatni og vera óhrein til kvelds.

Nú hefir kona rensli og renslið úr holdi hennar er blóð, þá skal hún vera saurug sjö daga, og hver sem snertir hana, skal vera óhreinn til kvelds.

Og alt það, sem hún liggur á, meðan hún er saurug, skal vera óhreint; og alt, sem hún situr á, skal vera óhreint.

Og hver sem snertir hvílu hennar, skal þvo klæði sín og lauga sig í vatni og vera óhreinn til kvelds.

Og hver sem snertir nokkuð það, sem hún hefir setið á, skal þvo klæði sín og lauga sig í vatni og vera óhreinn til kvelds.

Og snerti hann eitthvað, sem er í hvílunni eða á því, sem hún situr á, þá skal hann vera óhreinn til kvelds.

Og ef einhver samrekkir henni og tíðablóð hennar kemur á hann, þá er hann óhreinn sjö daga, og hver sú hvíla skal óhrein vera, er hann liggur í.

Nú missir kona blóð marga daga á öðrum tíma en þeim, er hún hefir tíðir, eða hún hefir rensli fram yfir tíðir sínar, þá skal hún alla þá stund, er hún hefir óhreint rensli, haga sér eins og þá daga, er hún hefir tíðir; hún er óhrein.

Hverja hvílu, sem hún liggur í alla þá stund, sem hún hefir rensli, skal hún fara með eins og hvílu sína, þá er hún hefir tíðir; og sérhvað það, er hún situr á, skal vera óhreint, eins og þegar hún er saurug af klæðaföllum.

Hver sem snertir þetta, skal vera óhreinn; og hann skal þvo klæði sín og lauga sig í vatni og vera óhreinn til kvelds.

En þá er hún er hrein orðin af rensli sínu, skal hún telja sjö daga, og eftir það er hún hrein.

Og á áttunda degi skal hún taka sér tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur og færa þær prestinum að dyrum samfundatjaldsins.

Og prestur skal fórna Annari Í syndafórn og hinni í brennifórn; og prestur skal friðþægja fyrir hana frammi fyrir Drottni vegna hins óhreina renslis hennar.

Og þannig skuluð þér vara Ísraelsmenn við óhreinleika þeirra, að þeir deyi ekki í óhreinleika sínum, ef þeir saurga búð mína, sem er meðal þeirra.

Þetta eru ákvæðin um þann, sem hefir rensli, og þann, sem hefir sáðlát, svo að hann verður óhreinn af,

og um konu, sem hefir tíðir, og þann, sem hefir rensli, hvort heldur er karl eða kona, og um mann, sem samrekkir konu óhreinni.