Gamla testamentiðLögmálið
Og Drottinn talaði við Móse og Aron og sagði við þá:
Talið til Ísraelsmanna og segið: Þessi eru þau dýr, er þér megið eta af öllum ferfættum dýrum, sem eru á jörðunni:
öll ferfætt dýr, sem hafa klaufir — og þær alklofnar — og jórtra, megið þér eta.
Af þeim, sem jórtra og klaufir hafa, megið þér þó ekki þessi eta: úlfaldann, því að hann jórtrar að sönnu, en er eigi klaufhæfður; hann sé yður óhreinn;
stökkhérann, því að hann jórtrar að sönnu, en hefir eigi klaufir; hann sé yður óhreinn;
hérann, því að hann jórtrar að sönnu, en hefir eigi klaufir; hann sé yður óhreinn;
og svínið, því að það hefir að sönnu klaufir — og þær alklofnar —, en jórtrar ekki; það sé yður óhreint.
Kjöt þeirra skuluð þér ekki eta og hræ þeirra skuluð þér ekki snerta; Þau skulu vera yður óhrein.
En af lagardýrunum megið þér eta þessi: öll lagardýr, sem hafa sundugga og hreistur, hvort heldur er í sjó eða ám, megið þér eta.
En af öllu því, sem kvikt er í vötnunum, og af öllum þeim lifandi Skepnum, sem eru í vötnunum, séu öll þau dýr í sjó eða ám, sem eigi hafa sundugga og hreistur, yður viðurstygð.
Viðurstygð skulu þau Vera yður: ekki skuluð þér eta kjöt þeirra og við hræjum þeirra skal Yður stugga.
Öll lagardýr, sem ekki hafa sundugga og hreistur, Skulu vera yður viðurstygð.
Og af fuglunum skal yður stugga við þessum — þér skuluð eigi eta þá, þeir eru viðurstygð —: örninn, skegg-gammurinn og gammurinn;
gleðan og valakynið;
alt hrafnakynið;
strúturinn, svalan, máfurinn og haukakynið;
uglan, súlan og náttuglan;
hornuglan, pelíkaninn og hrægammurinn;
storkurinn og lóukynið, herfuglinn og leðurblakan.
Öll fleyg skriðkvikindi ferfætt séu yður viðurstygð.
Öllum fleygum skriðkvikindum ferfættum megið þér þau ein eta, er hafa leggi upp af afturfótunum, til þess að stökkva með um jörðina,
af þeim megið þér eta þessi: arbe-engisprettur, sólam-engisprettur, kargól-engisprettur og kagab-engisprettur.
En öll önnur fleyg skriðkvikindi ferfætt séu yður viðurstygð.
Og af þessum dýrum verðið þér óhreinir; hver sem snertir hræ þeirra, verður óhreinn til kvelds.
En hver sá, sem ber hræ þeirra, hann skal þvo klæði sín og er óhreinn til kvelds.
Hvert það ferfætt dýr, sem hefir klaufir, þó eigi alklofnar, og eigi jórtrar, sé yður óhreint; hver sem þau snertir, verður óhreinn.
Og öll þau, sem ganga á hrömmum sínum, meðal allra dýra ferfættra, séu yður óhrein; hver sem snertir hræ þeirra, er óhreinn til kvelds.
Og sá, sem ber hræ þeirra, skal þvo klæði sín og er óhreinn til kvelds. Þau skulu vera yður óhrein.
Og þessi skulu vera yður óhrein á meðal skriðkvikindanna, sem skríða á jörðunni: hreysivíslan, músin og eðlukynið,
anaka, kóak, letaa, kómet og tinsemet.
Þessi skulu vera yður óhrein meðal allra skriðkvikindanna; hver sem snertir þau, þegar þau eru dauð, verður óhreinn til kvelds.
Og sérhvað það, er eitthvert af þeim fellur ofan á, þegar þau eru dauð, verður óhreint, hvort heldur er tréílát, klæði, skinn eða sekkur, — öll þau áhöld, sem til einhvers eru notuð; skal það í vatn leggja og er óhreint til kvelds; þá er það hreint.
Falli eitthvert af þeim ofan í leirker, þá verður alt, sem í því er, óhreint, og kerið skuluð þér brjóta;
allur matur, sem etinn er og vatn er látið í, verður óhreinn, og allur drykkur, sem drukkinn er, verður óhreinn, í hvaða keri sem hann er.
Og sérhvað það, sem hræ þeirra fellur á, verður óhreint; hvort heldur er ofn eða eldstó, skal það rifið niður; það er óhreint og óhreint skal það yður vera.
Lindir einar og brunnar, það er vatnsstæður, skulu hreinar vera, en sá, sem hræin snertir, verður óhreinn.
En þó að eitthvað af hræjunum falli á útsæði, sem á að sá, þá er það hreint.
En ef vatn er látið á sæðið og eitthvað af hræjunum fellur ofan í það, þá sé það yður óhreint.
Og þegar einhver af þeim skepnum deyr, sem yður eru til fæðu, þá skal sá, er snertir dauðan skrokkinn, vera óhreinn til kvelds;
og sá, sem etur af skrokknum, skal þvo klæði sín og er óhreinn til kvelds; og sá, sem ber skrokkinn, skal þvo klæði sín og er óhreinn til kvelds.
Og öll skriðkvikindi, sem skríða á jörðunni, skulu vera yður viðurstygð; eigi skal þau eta.
Öll þau, er skríða á kviðnum, og öll þau, er ganga á fjórum fótum, svo og allar margfætlur meðal allra skriðkvikinda, er skríða á jörðinni, — þau skuluð þér eigi eta, því að þau eru viðurstygð.
Látið eigi nokkurt skriðkvikindi gjöra yður sjálfa viðurstyggilega og saurgið yður ekki á þeim, svo að þér verðið óhreinir af þeim.
Því að eg er Drottinn, Guð yðar; og helgist og verið heilagir, því að eg er heilagur; og þér skuluð ekki saurga sjálfa yður á nokkuru því skriðkvikindi, sem skríður á jörðunni.
Því að eg er Drottinn, sem leiddi þig út af Egiptalandi, til þess að vera yðar Guð. Og þér skuluð vera heilagir, því að eg er heilagur.
Þessi eru ákvæðin um ferfættu dýrin, fuglana og allar lifandi skepnur, sem hrærast í vötnunum, og um allar lifandi skepnur, sem jörðin er kvik af,
svo að menn viti grein óhreinna og hreinna dýra, svo og ætra dýra og óætra.