Þriðja Mósebók 1Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Þriðja Mósebók 1

Og Drottinn kallaði á Móse og talaði við hann úr samfundatjaldinu og mælti:

Tala þú til Ísraelsmanna og seg við þá: Þegar einhver af yður vill færa Drottni fórn, þá skuluð þér færa fórn yðar af fénaðinum, af nautum og sauðum.

Sé fórn hans brennifórn af nautum, skal það, er hann fórnar, vera karlkyns og gallalaust; skal hann leiða það að dyrum samfundatjaldsins, svo að hann verði Drottni velþóknanlegur.

Því næst skal hann leggja hönd sína á höfuð brennifórnarmnar, að hún Alli honum velþóknunar og friðþægi fyrir hann.

Síðskal hann slátra ungneytinu frammi fyrir Drottni, en synir Arons, prestarnir, skulu fram bera blóðið; og skulu þeir stökkva blóðinu alt í kring utan á altarið, sem stendur við dyr samfundatjaldsins.

Þá fái hann brennifórnina og hluti hana sundur.

En synir Arons, prestarnir, skulu gjöra eld á altarinu og leggja við á eldinn.

Og synir Arons, prestarnir, skulu raða stykkjunum, höfðinu og mörnum ofan á viðinn, sem lagður er á eldinn, sem er á altarinu.

En innýflin og fæturna skal þvo í vatni og skal presturinn brenna það alt á altarinu til brennifórnar, eldfórnar þægilegs ilms fyrir Drottni.

En sé fórnargjöf sú, er hann fram ber til brennifórnar, af sanðíénaði, af sauðkindum eða geilum, þá skal það, er hann fórnar, vera karlkyns og gallalaust.

Og skal hann slátra því við altarið norðanvert frammi fyrir Drottni, en synir Arons, prestarnir, skulu stökkva blóðinu úr því utan á altarið alt í kring.

Síðan skal hann hluta það sundur og skal presturinn raða stykkjunum ásamt höfðinu og mörnum ofan á viðinn, sem lagður er á eldinn, sem er á altarinu.

En innýflin og fæturna skal þvo í vatni og skal presturinn fram bera það alt og brenna á altarinu; er það brennifórn, eldfórn þægilegs ilms fyrir Drottni.

En vilji hann færa Drottni brennifórn af fuglum, þá taki hann til fórnar sinnar turtildúfur eða ungar dúfur.

Skal presturinn bera fuglinn að altarinu og klípa af höfuðið og brenna það á altarinu; en blóðið skal kreista út á altarishliðina;

og hann skal taka sarpinn með fiðrinu á og kasta honum við austurhlið altarisins, þar sem askan er látin.

Og hann skal rífa vængina frá, en þó eigi slíta þá af; og Skal presturinn brenna hann á altarinu, ofan á viðnum, sem lagður er á eldinn; er það brennifórn, eldfórn þægilegs ilms fyrir Drottni. Um matfórnir.