Síðari Kroníkubók 4Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Kroníkubók 4

Þá gjörði hann altari af eiri, tuttugu álna langt, tuttugu álna breitt og tíu álna hátt.

Hann gjörði og hafið og var það steypt af eiri, það var tíu álnir af barmi og á, kringlótt og fimm álnir á dýpt, og þrjátíu álna snúra lá um það.

En neðan við það voru nautalíkneski alt í kring — var hvert þeirra tíu álnir—, er mynduðu hring um hafið, tvær raðir af nautum, og voru þau samsteypt hafinu.

Það stóð á tólf nautum, sneru þrjú í norður, þrjú í vestur, þrjú í suður, þrjú í austur; hvíldi hafið á þeim og sneru allir bakhlutir þeirra inn.

Það var þverhandarþykt og barmur þess í laginu sem barmur á bikar, líkt og liljublóm. Það rúmaði og tók þrjú þúsund bat.

Þá gjörði hann tíu ker; setti hann fimm hægramegin og fimm vinstramegin til þvottar; skyldi skola í þeim, það er til brennifórnar skyldi hafa, en hafið var til þvottar fyrir prestana.

Hann gjörði og gullljósastikurnar tíu, eftir ákvæðunum um þær, og setti í aðalhúsið, fimm hægramegin og fimm vinstramegin.

Þá gjörði hann tíu borð og setti í aðalhúsið, fimm hægramegin og fimm vinstramegin, svo gjörði hann og hundrað fórnarskálar úr gulli.

Hann gjörði og prestaforgarðinn og forgarðinn mikla og dyr á forgarðinn, og vængjahurðirnar í þeim lagði hann eiri,

en hafið setti hann hægramegin, í austur, gegnt suðri.

Og Húram gjörði katlana, eldspaðana og fórnarskálarnar, og lauk svo Húram við að vinna að starfi því, er hann leysti af hendi fyrir Salómó konung í musteri Guðs:

tvær súlur og tvær kúlur á súlnahöfðunum og bæði riðnu netin, er hylja áttu báðar kúlurnar á súlnahöfðunum,

og fjögur hundruð granateplin á bæði netin, tvær raðir af granateplum á hvort net, er hylja áttu báðar kúlurnar á súlnahöfðunum,

enn fremur undirstöðupallana tíu og kerin tíu á undirstöðupöllunum,

og hafið og tólf nautin undir hafinu,

og katlana, eldspaðana, soðkrókana og öll tilheyrandi áhöld gjörði Húram-Abí fyrir Salómó konung til musteris Drottins, úr skygðum eiri.

Lét konungur steypa þau á Jórdan-sléttlendinu í leirmótum, milli Súkkót og Zereda.

Og Salómó lét gjöra afarmikið af öllum þessum áhöldum, þyngd eirsins var eigi rannsökuð.

Og Salómó lét gjöra öll þau áhöld, sem voru í húsi Drottins: gullaltarið, borðin undir skoðunarbrauðin,

ljósastikurnar og lampa þeirra, að á þeim skyldi kveikt verða fyrir framan innhúsið, eins og lög stóðu til — af skíru gulli,

og blómin, lampana og ljósasöxin af gulli — og það af bezta gulli —

og skarbítana, fórnarskálarnar, bollana, eldpönnurnar af skíru gulli. Og að því er snertir dyr musterisins, þá voru innri vængjahurðir þeirra, þær er lágu inn í hið allraheigasta, og vængjahurðir musterisins, þær er lágu inn í aðalhúsið, af gulli.