Síðari Kroníkubók 27Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Kroníkubók 27

Jótam var tuttugu og fimm ára gamall, þá er hann varð konungur, og sextán ár ríkti hann í Jerúsalem. En móðir hans hét Jerúsa Zadóksdóttir.

Hann gjörði það sem rétt var í augum Drottins, með öllu svo sem gjört hafði Ússía láðir hans; þó fór hann eigi inn í musteri Drottins. En lýðurinn aðhafðist enn óhæfu.

Hann reisti efra hliðið á musteri Drottins, og af Ófel-múr bygði hann mikið.

Þá reisti hann og borgir í Júdafjöllum, og í skógunum reisti hann haltir og turna.

Hann átti og í ófriði við konunga Ammóníta og vann sigur á þeim. Guldu Ammónítar honum það ár hundrað talentur silfurs, tíu þúsund kór hveitis og tíu þúsund kór byggs. Færðu Ammónítar honum þetta einnig annað og þriðja árið.

Varð Jótam þannig æ voldugri, því að hann gekk veg sinn fyrir augliti Drottins, Guðs síns.

En það sem meira er að segja um Jótam og um alla bardaga hans og fyrirtæki, það er ritað í bók Ísraels- og Júda-konunga.

Hann var tuttugu og fimm ára gamall, þá er hann varð konungur, og sextán ár ríkti hann í Jerúsalem.

Og Jótam lagðist tl hvíldar hjá feðrum sínum, og var grafinn í Davíðsborg. Og ÁAkas sonur hans tók ríki eftir hann. Frá Akas.