Gamla testamentiðSaga
Arnazja tók ríki, þá er hann var tuttugu og fimm ára gamall, Og tuttugu og níu ár ríkti hann í Jerúsalem. En móðir hans hét Jóaddan og var frá Jerúsalem.
Og hann gjörði það sem rétt var í augum Drottins, þó eigi með óskiftu hjarta.
En er hann var orðinn fastur í sessi, lét hann drepa þá menn sína, er drepið höfðu konungInn föður hans.
En börn þeirra lét hann ekki af lífi taka, heldur fór eftir því sem ritað er í lögmálinu, í Mósebók, þar sem Drottinn mælir svo fyrir: Feður skulu ekki láta lífið ásamt börnunum, og börn skulu ekki láta lífið ásamt feðrunum, heldur skal hver láta lífið fyrir sína eigin synd.
Og Amazja stefndi Júdamönnum saman og skipaði þeim niður eftir ættum, eftir þúsundhöfðingjum og hundraðshöfðingjum úr öllum Júda og Benjamín. Síðan kannaði hann þá, tvítuga og þaðan af eldri, og komst að raun um að þeir voru þrjú hundruð þúsund einvalaliðs, herfærir menn, er borið gátu spjót og skjöld.
Hann tók og á mála hundrað þúsund kappa af Ísrael fyrir hundrað talentur silfurs.
En guðsmaður nokkur kom til hans og mælti: Þú konungurl Eigi skyldi fsraelsher lygara með þér, því að Drottinn er eigi með Ísrael, með neinum af Efraímsniðjum,
heldur skalt þú fara einn saman; gakk þú öruggur til bardaga, annars kann Guð að láta þér veita miður fyrir óvinum þínum, því að það er á Guðs valdi að veita fulltingi og láta veita miður.
Amazja svaraði guðsmanninum: Hvernig á þá að fara með þessar hundrað talentur, er eg hefi gefið fsraelshersveitinni? Guðsmaðurinn svaraði: Það er á valdi Drottins að gefa þér miklu meira en það.
Þá skildi Amazja frá hersveitina, er komin var til hans úr Efraím, til þess að þeir skyldu halda heimleiðis. Urðu þeir þá sárreiðir Júdamönnum og sneru heimleiðis ofsareiðir,
En Amazja herti upp hugann, fór með menn sína, hélt til Saltdals og vann sigur á Seírítum, tíu þúsundum manns.
En aðra tíu þúsund handtóku Júdamenn lifandi, fóru þeir með þá fram á klettasnös og hrundu þeim ofan af klettasnösinni, svo að brotnaði í þeim hvert bein.
En þeir af hersveitinni, er Ainazja hafði látið aftur hverfa, svo að þeir eigi máttu fara með honum til bardagans, þeir réðust inn í Júdaborgir, frá Samaríu til Bet-Hóron, drápu þar þrjú þúsund manns og rændu miklu herfangi.
En er Amazja var kominn heim eftir sigurinn yfir Edómiítum, þá hafði hann með sér guði Seiríta og setti þá upp hjá sér svo sem guði; laut hann þeim og brendi: reykelsi þeim til handa.
Þá varð Drottni reiður Amazja og hann sendi spámann til hans. Hann mælti til hans: Hvers vegna leitar þú guða þjóðar þessarar, er eigi gátu frelsað þjóð sína úr hendi þinni?
En er hann talaði til hans, þá mælti konungur við hann: Höfum vér gjört þig að ráðgjafa konungs? Hættu, eða þú verður barinn. Þá hætti spámaðurinn og mælti: Nú veit eg, að Guð hefir afráðið að tortíma þér, fyrst þú breyttir svo og vilt eigi hlýða á ráð mitt.
Síðan réð Amazja Júda-konungur ráðum sínum og gjörði menn á fund Jóasar Jóahassonar, Jehúsonar, Ísraels-konungs með svolátandi orðsending: Nú skulum við reyna með okkur.
Þá sendi Jóas fsraelskonungur Amazja Júda-konungi þau andsvör: Þistillinn á Líbanon gjörði sedrustrénu á Líbanon svotálandi orðsending: Gef þú syni mínum dóttur þína að konu. En villidýrin á Líbanon gengu yfir þistilinn og tróðu hann sundur.
Þú hugsar: Eg hefi unnið mikinn sigur á Edómítum, og þú hefir fyrst ofmetnaði. Sit þú nú kyrr heima! Hví vilt þú egna ógæfuna sjálfum þér og Júda til falls?
En Amazja gaf þessu engan gaum, því að svo var til stilt af Guði, til þess að ofurselja þá fjandmönnunum, af því að þeir höfðu leitað Edóm-guða.
Þá fór Jóas Ísraels-konungur af stað, og varð fundur þeirra, hans og Amazja Júda-konungs, í Bet-Semes, er liggur undir Júda.
Beið Júda þar ósigur fyrir Ísrael, og flýðu þeir hver til síns heima.
En Jóas Ísraelskonungur tók höndum Amazja Júda-konung, son Jóasar Jóahassonar, í Bet-Semes, og fór með hann til Jerúsalem. Hann braut niður múra Jerúsalem, frá Efraímhliði alt að hornhliðinu, fjögur hundruð álnir.
Því næst tók hann alt gull og silfur og öll áhöld, er fundust í musteri af - Guðs hjá Óbeð-Edóm, svo og fjársjóðu konungshallarinnar og gíslana, Og sneri síðan aftur heim til Samaríu.
En Amazja Jóasson Júda-konungur lifði fimtán ár eftir dauða Jóasar Jóahassonar Ísraels-konungs.
En það, sem meira er að segja um Amazja, er frá upphafi til enda ritað í bók Júda- og Ísraels-konunga.
Og upp frá því er Amazja veik frá Drottni, gjörðu menn samsseri gegn honum í Jerúsalem. Flýði hann þá til Lakís, en þeir sendu á eftir honum til Lakís og létu drepa hann þar.
Fluttu þeir hann Síðan á hestum, og var hann grafinn hjá feðrum sínum í Davíðsborg.