Síðari Kroníkubók 1Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Síðari Kroníkubók 1

Salómó sonur Davíðs festist í konungdómi og Drottins, Guðs hans, var með honum og gjörði hann mjög vegsamlegan.

Og Salómó lét boð fara um allan Ísrael, til þúsundhöfðingjanna og hundraðshöfðingjanna, dómaranna og allra höfðingjanna í öllum Ísrael, ætthöfðingjanna,

og fór Salómó síðan og allur söfnuðurinn með honum til hæðarinnar í Gíbeon, því að þar var samfundatjald Guðs, það er Móse, þjónn Drottins, hafði gjöra látið á eyðimörkinni.

Örk Guðs hafði Davíð þar á móti flutt frá Kirjat-Jearím, þangað er Davíð hafði búið henni stað, því að hann hafði reist tjald fyrir hana í Jerúsalem.

Eiraltarið, Er Bezaleel Úríson, Húrssonar, hafði gjört, var og þar, frammi fyrir bústað Drottinn, og Salómó og söfnuðurinn leituðu hans þar.

Og Salómó færði Drottni fórnir þar á eiraltarinu, er heyrði til samfundatjaldinu, og færði hann honum þar þúsund brennifórnir.

Þá nótt vitraðist Guð Salómó og sagði við hann: Bið þú þess, er þú vill að eg veiti þér.

Og Salómó svaraði Guði: Þú auðsýndir Davíð föður mínum mikla miskunn, og þú hefir gjört mig að konungi eftir hann.

Lát þá, Drottinn Guð, fyrirheit þitt til Davíðs föður míns standa stöðugt. Því að þú hefir gjört mig að konungi yfir lýð, sem er margur eins og duft jarðar.

Gef mér þá vizku og þekkingu, að eg megi ganga út og inn frammi fyrir lýð þessum, því að hver getur annars stjórnað þessum fjölmenna lýð þínum?

Þá mælti Guð við Salómó: Sakir þess, að þetta bjó þér í hjarta, og þú eigi baðst um auðlegð, fé og sæmd, eða um líf þeirra, er hata þig, og baðst eigi heldur um langlífi, heldur baðst þér vizku og þekkingar, að þú gætir stjórnað lýð mínum, er eg hefi gjört þig að konungi yfir,

þá er vizka og þekking veitt þér, og auðlegð, fé og sæmd vil eg veita þér, meiri en haft hefir nokkur konungur á undan þér og meiri en nokkur mun hafa eftir þig. Her Salómós og auðæfi.

Síðan hélt Salómó burt frá hæðinni í Gíbeon, frá staðnum fyrir framan samfundatjaldið, til Jerúsalem, og ríkti yfir Ísrael.

Og Salómó safnaði vögnum og riddurum, og hafði hann fjórtán hundruð vagna og tólf þúsund riddara; lét hann þá vera í vagnliðsborgunum og með konungi í Jerúsalem.

Og konungur gjörði silfur og gull eins algengt í Jerúsalem og grjót, og sedrusvið eins og mórberjatrén, sem vaxa á láglendinu.

Hesta sína fékk Salómó frá Egiptalandi og sóttu kaupmenn konungs þá í hópum og guldu fé fyrir,

svo að hver vagn, er þeir fengu og komu með frá Egiptalandi, kostaði sex hundruð sikla silfurs, en hver hestur hundrað og fimtíu. Og á þennan hátt voru og hestar fluttir út fyrir milligöngu þeirra til allra konunga Hetíta og konunga Sýrlendinga.