Síðara Pétursbréf 3Krans-útgáfa

Síðara Pétursbréf 3

Þetta er nú annað bréfið, sem eg skrifa yður, þér elskaðir, og í þeim báðum er eg með áminningu að vekja hið hreinskilna hugskot yðar,

til þess að þér minnist orða þeirra, er hinir heilögu spámenn hafa áður talað, og skipunar Drottins vors og frelsarans, er postular yðar hafa flutt,

og þetta skuluð þér þá fyrst vita, að á hinum síðustu dögum munu koma spottarar með spotti, er framganga eftir eigin girndum

og segja: Hvað verður úr fyrirheitinu um tilkomu hans? Því að frá því feðurnir sofnuðu stendur alt við sama eins og frá upphafi hins skapaða.

Því að viljandi gleyma þeir því, að himnar voru til forðum og jörð mynduð af vatni og með vatni fyrir orð Guðs,

og við það gekk vatnsflóðið yfir þann heim, sem þá var, svo að hann fórst;

en þeir himnar, sem nú eru, og jörðin geymast eldinum fyrir hið sama orð, og varðveitast til þess dags, er hinir óguðlegu menn munu dæmast og tortímast.

En þetta eitt má yður ekki gleymast, þér elskuðu, að einn dagur er hjá drotni sem þúsund ár og þúsund ár sem einn dagur.

Ekki er Drottinn seinn á sér með fyrirheitið, þótt sumir álíti það seinlæti, heldur er hann langlyndur við yður, þar eð hann vill ekki að neinir glatist, heldur að allir komist til iðrunar.

En dagur Drottins mun koma sem þjófur, og þá munu himnarnir með miklum gný líða undir lok, frumefnin sundurleysast í brennandi hita, og jörðin og þau verk, sem á henni eru, uppbrenna.

Þar eð alt þetta ferst þannig, hvílíkum mun yður þá byrja að vera, með heilagri breytni og guðrækni,

þannig að þér væntið eftir og þráið innilega tilkomu Guðs dags, en vegna þess dags munu himnarnir sundurleysast í eldi og frumefni bráðna af brennandi hita.

En vér væntum eftir fyrirheiti hans nýs himins og nýrrar jarðar, þar sem réttlæti býr.

Fyrir því stundið, þér elskuðu, með því að þér væntið slíkra hluta, að vera í friði flekklausir og lýtalausir frammi fyrir honum,

og álitið langlyndi Drottins vors vera hjálpræði, eins og hinn elskaði bróðir vor Páll hefir ritað yður, eftir þeirri speki, sem honum er gefin,

eins og einnig í öllum bréfum hans, er hann í þeim talar um þetta; en í þeim er sumt þungskilið, er fáfróðir og staðfestulausir menn rangsnúa, eins og öðrum ritum, sér sjálfum til tortímingar.

Gætið yðar þess vegna, þér elskaðir, með því að þér vitið þetta fyrirfram, til þess að þér látið eigi dragast með af villu þverbrotinna manna og fallið frá yðar eigin staðfestu.

En vaxið í náð og þekkingu Drottins vors og frelsara Jesú Krists. Honum sé dýrðin bæði nú og til eilífrar tíðar. Amen.