Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs fyrir Jedútún. Asafs-sálmur.
Eg kalla til Guðs og hrópa, kalla til Guðs, að hann megi heyra til mín.
Þegar eg er í nauðum staddur, leita eg Drottins; um nætur eru hendur mínar útréttar og verða eigi lémagna; sál mín er óhuggandi.
Eg minnist Guðs og kveina, eg styn og andi minn örmagnast. Sela.
Þú heldur opnum augnalokum mínum, mér er órótt og eg má eigi mæla.
Eg íhuga fyrri daga, ár þau, sem löngu eru liðin;
Teg minnist strengjaleiks míns um nætur, eg hugleiði í hjarta mínu og andi minn rannsakar.
Mun Drottinn þá útskúfa um eilífð og aldrei framar vera náðugur;
er miskunn hans lokið um eilifð, trúfesti hans þrotin um aldir alda;
hefir Guð gleymt að sýna líka, lokað fyrir miskunn sína í reiði? Sela.
Þá sagði eg: Þetta er kvöl mín, að hægri hönd hins hæsta hefir breytt sér.
Eg víðfrægi stórvirki Jah; eg vil minnast furðuverka þinna frá fyrri tíðum;
eg íhuga allar athafnir þínar, athuga stórvirki þín.
Guð, helgur er vegur þinn, hver er mikill Guð svo sem Drottinn;
þú ert Guð, sá er furðuverk gjörir, þú hefir kunngjört mátt þinn meðal þjóðanna;
með máttugum armlegg frelsaðir þú lýð þinn, sonu Jakobs og Jósefs. Sela.
Vötnin sáu þig, ó Guð, vötnin sáu þig og skelfdust og undirdjúpin skulfu.
Vatnið streymdi úr skýjunum og þrumuraust drundi úr skýþykninu. og örvar þínar flugu.
Reiðarþrumur þínar kváðu við, leiftur lýstu um jarðríki, jörðin skalf og nötraði.
Leið þín lá gegnum hafið, stígar þínir gegnum mikil vötn á og spor þín urðu eigi rakin.
Þú leiddir lýð þinn eins og hjörð, fyrir Móse og Aron.