Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Halelúja. Lofið nafn Drottins, lofið, þér þjónar Drottni,
er standið í húsi Drottins, í forgörðum húss Guðs vors.
Lofið Jah, því að Drottinn er góður; leikið fyrir nafni hans, því að það er yndislegt.
Því að Jah hefir útvalið sér Jakob, Ísrael sér til eiginlegrar eignar;
því að eg veit, að Drottinn er mikill og að Drottinn vor er öllum guðum æðri.
SAtt, sem Drottinn þóknast, það gjörir hann, á himni og jörðu, Á í hafinu og öllum djúpunum,
hann sem lætur skýin uppstíga frá endimörkum jarðar, gjörir leiftrin, til að búa rás regninu, hleypir vindinum út úr forðabúrum hans;
hann sem laust frumburði Egiptalands, bæði menn og skepnur,
sendi tákn og undur yfir þig, Egiptaland, gegn Faraó og öllum þjónum hans;
hann, sem laust margar þjóðir og deyddi volduga konunga:
Síhon, Amórítakonung, og Óg, konung í Basan, og öll konungsríki í Kanaan,
Og gaf lönd þeirra að erfð, að erfð Ísrael, lýð sínum.
Drottinn, nafn þitt varir að eilífu, minning þín, Drottinn, frá kyni til kyns,
því að Drottinn réttir hlut þjóðar sinnar og aumkast yfir þjóna sína.
Skurðgoð heiðingjanna eru silfur og gull, handaverk manna;.
þau hafa munn, en tala ekki, augu, en sjá ekki;
þau hafa eyru, en heyra ekki, og eigi er heldur neinn andardráttur í munni þeirra.
Eins og þau eru, verða smiðir þeirra, allir þeir, er á þau treysta.
Ísraels ætt, lofið Drottin, Arons ætt, lofið Drottin!
Þ,eví ætt, lofið Drottin, þér sem óttist Drottin, lofið Drottin!
Lofaður sé Drottinn frá Zion, hann sem býr í Jerúsalem! Halelúja.