Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Helgifaraljóð. Mun þú, Drottinn, Davíð allar þrautir hans;
hann sem sór Drottinn, gjörði heit Jakobs volduga:
Eg vil eigi ganga inn í tjaldhús mitt, eigi stíga í hvílurúm mitt,
eigi unna augum mínum svefns né augnalokum mínum blunds
fyr en eg hefi fundið stað fyrir Drottni, bústað fyrir Jakobs volduga.
Sjá, vér höfum heyrt um hann í Efrata, fundið hann á Jaarmörk:
látum oss ganga til bústaðar hans, falla fram á fótskör hans.
tak þig upp, Drottinn, og far á hvíldarstað þinn, þú og örk máttar þíns.
Prestar þínir íklæðist réttlæti og dýrkendur þínir fagni.
Sakir Davíðs þjóns þíns vísa þú þínum smurða eigi frá.
Drottinn hefir svarið Davíð óbrigðulan eið, er hann eigi mun ganga frá: Af ávexti kviðar þíns mun eg selja mann í hásæti þitt.
Ef synir þínir varðveita sáttmála minn og reglur mínar, þær er eg kenni þeim, þá skulu og þeirra synir um aldur sitja í hásæti þínu.
Því að Drottinn hefir útvalið Zion, þráð hana sér til bústaðar:
»Þetta er hvíldarstaður minn um aldur, hér vil eg búa, því að hann hefi eg þráð;
vistir hans vil eg vissulega blessa og fátæklinga hans vil eg seðja með brauði,
presta hans vil eg íklæða hjálpræði, hinir guðhræddu, er þar búa, skulu kveða fagnaðarópi;
bar vil eg láta Davíð horn vaxa, þar hefi eg búið lampa mínum smurða;
óvini hans vil eg íklæða skömm, en á honum skal kóróna hans ljóma«.