Saltarinn 124Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 124

Helgifaraljóð. Eftir Davíð. Hefði það ekki verið Drottinn, sem var með oss, skal Ísrael segja,

hefði það ekki verið Drottinn, sem var með oss, þegar menn risu í móti oss,

þá hefðu þeir svelgt oss lifandi, þegar reiði þeirra bálaðist upp í móti oss;

þá hefðu vötnin streymt yfir oss, elfur gengið yfir oss,

þá hefðu gengið yfir oss hin Þbeljandi vötn.

Lofaður sé Drottinn, í er ekki gaf oss tönnum þeirra að bráð.

Sál vor slapp burt eins og fugl úr snöru fuglarans, brast snaran, burt sluppum vér.

Hjálp vor er fólgin í nafni Drottins, skapara himins og jarðar.