Saltarinn 122Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 122

Helgifaraljóð. Eftir Davíð. Eg varð glaður, er menn sögðu við mig: Göngum í hús Drottins!

Fætur vorir standa í hliðum þínum, Jerúsalem.

Jerúsalem, þú hin endurreista, borgin þar sem öll þjóðin safnast saman,

þangað sem kynkvíslirnar fara, kynkvíslir Jah — það er regla fyrir Ísrael — til þess að lofa nafn Drottins;

því að þar standa dómarastólar, stólar fyrir Davíðs ætt.

Biðjið Jerúsalem friðar, hljóti heill þeir, er elska þig.

Friður sé kring um múra þína, heill í höllum þínum.

Sakir bræðra minna og vina óska eg þér friðar;

sakir húss Drottins, Guðs vors, vil eg leita þér hamingju.