Saltarinn 112Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 112

H Halelúja. Sæll er sá maður, sem óttast Drottin og hefir mikla unun af boðum hans.

Niðjar hans verða voldugir á jörðunni, ætt réttvísra mun blessun hljóta.

Nægtir og auðæfi eru í húsi hans á og réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu;

hann upprennur téttvísum sem ljós í myrkrinu, mildur og meðaumkunarsamur og réttlátur.

Vel farnast þeim manni, sem er mildur og fús að lána, sem framkvæmir málefni sín með réttvísi;

því að hann mun eigi haggast að eilífu; hins réttláta mun minst um eilifð.

Hann óttast eigi ill tíðindi, hjarta hans er stöðugt og treystir Drottni.

Hjarta hans er örugt, hann óttast eigi og loks fær hann að horfa lyst sína á fjendur sína.

Hann hefir miðlað mildilega, gefið aumingjunum, réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu, horn hans gnæfir hátt í vegsemd.

Hinn óguðlegi sér það og honum gremst, nístir tönnum og tortímist; ósk óguðlegra verður að engu.