Sakaríabók 4Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Sakaríabók 4

Þá vakti engillinn, er við mig talaði, mig aftur, eins og þegar maður er vakinn af svefni,

og sagði við mig: Hvað sér þú? Eg svaraði: Eg sé ljósastiku, og er öll af gulli; ofan á henni er olíuskál og á henni eru sjö lampar og sjö pípur fyrir lampana.

Og hjá ljósastikunni standa tvö olíutré, annað hægramegin við olíuskálina, hitt vinstramegin.

Þá tók eg til máls og sagði við engilinn, sem við mig talaði: Hvað merkir þetta, herra minn?

Og engillinn, sem við mig talaði, svaraði og sagði við mig: Veiztu ekki, hvað þetta merkir? Eg svaraði: Nei, herra minn!

Þá tók hann til máls og sagði við mig: Þetta eru orð Drottins til Serúbabels: Ekki með valdi né krafti, heldur fyrir anda minn! segir Drottinn hersveitanna.

Hver ert þú, stóra fjall? Fyrir Serúbabel skalt þú verða að sléttu; og hann mun færa út hornsteininn og þá munu kveða við fagnaðaróp: Dýrlegur, dýrlegur er hann!

Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:

Hendur Serúbabels hafa lagt grundvöll þessa húss; hendur hans munu og fullgjöra það; og þá skaltu viðurkenna, að Drottinn hersveitanna hefir sent mig til yðar.

Því að allir þeir, sem lítilsvirða þessa litlu byrjun, munu horfa fagnandi á blýlóðið í hendi Serúbabels. Þessir sjö eru augu Drottins, sem líta yfir gjörvalla jörðina.

Þá tók eg til máls og sagði við hann: Hvað merkja þessi tvö olíutré, hægra og vinstramegin ljósastikunnar?

Og eg tók annað sinn til máls og sagði við hann: Hvað merkja þær tvær olíuviðargreinar, sem eru við hliðina á þeim tveimur gullpípum, sem láta gullið streyma út úr sér?

Þá sagði hann við mig: Veiztu ekki, hvað þær merkja? Eg svaraði: Nei, herra minn!

Þá sagði hann: Það eru þeir tveir smurðu, er standa frammi fyrir drotni gjörvallrar jarðarinnar.