Rómverjabréfið 16Krans-útgáfa

Rómverjabréfið 16

Eg fel yður á hendur Föbe, systur vora, sem er þjónn kirkjunnar í Kenkreu,

til þess að þér veitið henni viðtöku í drotni, eins og heilögum hæfir, og liðsinnið henni í hverju því efni, sem hún þarf yðar við, því að hún hefir verið bjargvættur margra og mín sjálfs.

Heilsið Prisku og Akvílasi, samverkamönnum mínum í Kristi Jesú,

sem stofnað hafa lífi sínu í hættu fyrir líf mitt, sem ekki eg einn votta þakkir, heldur og allir kirkjur heiðingjanna;

heilsið einnig kirkjunni, sem er í húsi þeirra. Heilsið Epænetusi, mínum elskaða, sem er frumgróði Asíu Kristi til handa.

Heilsið Maríu, sem mikið hefir erfiðað fyrir yður.

Heilsið Andróníkusi og Júníasi, ættmönnum mínum og sambandingjum, sem eru í metum hjá postulunum og á undan mér hafa gengið Kristi á hönd.

Heilsið Amplíatusi, mínum elskaða í drotni.

Heilsið Úrbanusi, samverkamanni vorum í Kristi, og Stakkýsi, mínum elskaða.

Heilsið Apellesi, sem er fullreyndur í Kristi. Heilsið heimilismönnum Aristóbúls.

Heilsið Heródíon, ættingja mínum. Heilsið þeim á heimili Narkissusar, sem eru í drotni.

Heilsið Trýfæna og Trýfósa, sem erfiða í drotni. Heilsið Persis, hinni elskuðu, sem mikið hefir starfað í drotni.

Heilsið Rúfusi, hinum útvalda í drotni, og móður hans og minni.

Heilsið Asýnkrítusi, Flegon, Hermes, Patróbasi, Hermasi og bræðrunum, sem hjá þeim eru.

Heilsið Fílólógusi og Júlíasi, Nerevs og systur hans, og Ólympasi og öllum heilögum, sem með þeim eru.

Heilsið hver öðrum með heilögum kossi. Yður senda kveðju allir kirkjur Krists.

En eg áminni yður, bræður, um að hafa gát á þeim, er vekja sundurþykkju og hneyksli á móti þeirri kenningu, sem þér hafið numið; og sneiðið yður hjá þeim.

Því að slíkir menn þjóna ekki drotni vorum Kristi, heldur maga sjálfra þeirra, og með blíðmælum og fagurgala tæla þeir hjörtu hrekklausra manna.

Því að hlýðni yðar er alkunnug orðin; því gleðst eg yfir yður; en eg vil, að þér séuð vitrir í hinu góða, en einfaldir í hinu illa.

En Guð friðarins mun bráðlega sundurmola Satan undir fótum yðar. Náðin Drottins vors Jesú Krists sé með yður.

Yður heilsa Tímóteus, samverkamaður minn, Lúkíus og Jason og Sósípater, ættmenn mínir.

Eg, Tertíus, sem hefi ritað bréfið, heilsa yður í drotni.

Yður heilsar Gajus, sem ljær hús mér og öllum kirkjunni. Yður heilsar Erastus, gjaldkeri borgarinnar, og bróðir Kvartus.

Náð Drottins vors Jesú Krists sé með yður öllum. Amen.

En honum, sem megnar að styrkja yður eftir mínu fagnaðarerindi og prédikun Jesú Krists, samkvæmt opinberun þess leyndardóms, sem frá eilífum tíðum hefir legið í þagnargildi,

en nú er auglýstur fyrir spámannlegar ritningar og eftir skipun hins eilífa Guðs kunngjörður öllum þjóðum til trúar-hlýðni,

einum vitrum Guði, fyrir Jesúm Krist, — honum sé dýrð um aldirnar. Amen.

Vers úr Vúlgötunni; ekki í frumtexta þýðingarinnar frá 1908.