Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Son minn, varðveit þú orð mín og geym þú hjá þér boðorð mín.
Varðveit þú boðorð mín, og þá munt þú lifa, og áminning mína eins og sjáaldur auga þíns.
Bind þau á fingur þína, skrifa þau á spjald hjarta þíns.
Seg við spekina: Þú ert systir mín! og kallaðu skynsemina »vinkonu«,
svo að þær varðveiti þig fyrir annars manns konu, fyrir annarlegri konu, sem mælir blíðskaparorðum.
Út um gluggann á húsi mínu, út um grindurnar skimaði eg,
Zog sá þar meðal hinna óreyndu, varð meðal sveinanna var við ungan mann vitstola.
Hann gekk á strætinu nálægt horni einu, og fetaði leiðina að húsi hennar,
í rökkrinu, að kveldi dags, um miðja nótt og í niðdimmu.
Gekk þá kona í móti honum, búin sem portkona og undirförul í hjarta —
hávær er hún og óhemjuleg; fætur hennar tolla aldrei heima;
hún er ýmist á götunum eða á tlorgunum, og situr um menn hjá hverju horni
hún þrífur í hann og kyssir hann og segir við hann, ósvífm í bragði:
Eg átti að greiða heillafórn, í dag hefi eg goldið heit mitt.
Fyrir því fór eg út til móts við þig, til þess að leita þín, og hefi nú fundið þig.
Eg hefi búið rúm mitt ábreiðum, marglitum ábreiðum úr egipzku líni.
Myrru, alóe og kanel hefi eg stökt á hvílu mína.
Kom þú, við skulum drekka okkur ástdrukkin fram á morgun, gamna okkur með blíðuhótum.
Því að maðurinn minn er ekki heima; hann er farinn í langferð.
Peningapyngjuna tók hann með sér; hann kemur ekki heim fyr en í tunglfylling«.
Hún tældi hann með sínum áköfu fortölum, ginti hann með kjassmælum sínum.
Hann fer rakleiðis á eftir henni, eins og naut gengur fram á blóðvöllinn, og eins og hjörtur, sem anar Í netið,
ynz Örin fer Í gegnum lifur hans, eins og fuglinn hraðar sér í snöruna, og veit ekki að líf hans er í veði.
Og nú, þér yngismenn, hlýðið á mig og gefið gaum að orðum munns míns.
Lát eigi hjarta þitt teygjast á vegu hennar, vilst eigi inn á stigu hennar.
Því að margir eru þeir, sem hún hefir sært til ólífis, og mesti grúi allir þeir, sem hún hefir myrt.
Hús hennar er helvegur, sá er liggur niður til dánarheimkynna.