Orðskviðirnir 28Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Orðskviðirnir 28

Hinir óguðlegu flýja, þótt enginn elti þá, en hinir réttlátu eru öruggir eins og ungt ljón.

Þegar land gengur undan drotnara sínum, gjörast þar margir höfðingjar, en meðal skynsamra og hygginna manna verður einn langær.

Maður, sem er fátækur og kúgar snauða, er eins og regn, sem skolar burt korninu, en veitir ekkert brauð.

Þeir, sem yfirgefa lögmálið, hrósa óguðlegum, en þeir, sem varðveita lögmálið, eru æfir út af þeim.

Illmenni skilja ekki hvað rétt er; en þeir, sem leita Drottins, skilja alt.

Betri er fátækur maður, sem framgengur í ráðvendni sinni, heldur en sá, sem heitir undirferli og er þó ríkur.

Sá, sem varðveitir lögmálið, er hygginn sonur; en sá, sem leggur lag sitt við óhófsmenn, gjörir föður sínum smán.

SSá, sem eykur auð sinn með fjárleigu og okri, í safnar honum handa þeim, sem líknsamur er við fátæka.

Sá, sem snýr eyra sínu frá, til þess að heyra ekki lögmálið, — jafnvel bæn hans er andstygð.

Sá, sem tælir falslausa menn út á vonda leið, hann fellur sjálfur í gröf sína; en ráðvandir munu hljóta góða arfleifð.

Ríkur maður þykist vitur, en snauður maður, sem er hygginn, sér hann út.

Þegar hinir réttlátu fagna, er mikið um dýrðir, en þegar óguðlegir komast upp, fela menn sig.

Sá, sem dylur yfirsjónir sínar, verður ekki lángefinn, en sá, sem játar þær og lætur af þeim, mun miskunn hljóta

Sæll er sá maður, sem ávalt er var um sig; en sá, sem herðir hjarta sitt, fellur í ógæfu.

Eins og grenjandi ljón og gráðugur björn, svo er óguðlegur drotnari yfir lítilsigldum lýð.

Höfðingi, sem hefir litlar tekjur, er ríkur að kúgan; sá, sem hatar rangfenginn ávinning, mun langlífur verða.

Sá maður, sem blóðsök hvílir þungt á, er á flótta fram á grafarbarminn; enginn dvelji hann.

Sá, sem breytir ráðvandlega, mun frelsast, en sá, sem Þeitir undirferli, fellur í gryfju.

Sá, sem yrkir land sitt, mettast af brauði, en sá, sem sækist eftir hégómlegum hlutum, mettast af fátækt.

Áreiðanlegur maður blessast ríkulega, en sá, sem fljótt vill verða ríkur, sleppur ekki óhegndur.

Hlutdrægni er ljót, en þó fremja menn ranglæti fyrir einn brauðbita.

Ófundsjúkur maður flýtir sér að safna auði, og veit ekki að örbirgð muni yfir hann koma.

Sá, sem ávítar mann, mun á síðan öðlast meiri hylli heldur en tungumjúkur smjaðrati.

Sá, sem rænir foreldra sína og segir: Það er engin synd! hann er stallbróðir eyðandans.

Ágjarn maður vekur deilur, en sá, sem treystir Drottni, mettast ríkulega.

Sá, sem treystir eigin hyggjuviti, er heimskingi,, en sá, sem breytir viturlega, mun undan komast.

Sá, sem gefur fátækum, líður engan skort, en þeim, sem byrgir augu sín, koma margar óbænir,

Þegar hinir óguðlegu komast upp, fela menn sig, en þegar þeir tortímast, fjölgar réttlátum.