Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Eins og snjór um sumar og eins og regn um uppskeru, eins illa á sæmd við heimskan mann.
Eins og spörfugl flögrar, eins og svala flýgur, eins er um óverðskuldaða formæling — hún verður eigi að áhrínsorðum.
Svipan hæfir hestinum og taumurinn asnanum — en vöndurinn baki heimskingjanna.
þú ekki heimskingjanum eftir fíflsku hans, svo að þú verðir ekki honum jafn.
Svara þú heimskingjanum eftir fíflsku hans, svo að hann haldi ekki, að hann sé vitur.
Sá böggur af sér fæturna og fær að súpa á ranglæti, sem sendir orð með heimskingja.
Eins og lærleggir hins lama hanga máttlausir, svo er spakmæli í munni heimskingjanna.
SSá sem sýnir heimskum manni sæmd, honum fer eins og þeim, er bindur stein í slöngu.
Eins og þyrnir, sem stingst upp í höndina á drukknum manni, svo er spakmæli í munni heimskingjanna.
Eins og skytta, sem hæfir alt, svo er sá, sem leigir heimskingja, og sá, erleigir vegfarendur.
Eins og hundur, sem snýr aftur til spýju sinnar, svo er heimskingi, sem endurtekur fíflsku sína.
Sjáir þú mann, sem þykist vitur, þá er meiri von um heimskingja en hann.
Letinginn segir: Óargadýr er á veginum, ljón á götunum.
Hurðin snýst á hjörunum og letinginn í hvílu sinni.
Latur maður dýfir hendinni ofan í skálina, en honum verður þungt um að bera hana aftur upp að munninum.
Latur maður þykist vitrari en sjö, sem svara hyggilega.
Sá, sem kemst í æsing út af deilu, sem honum kemur ekki við, hann er eins og sá, sem tekur um eyrun á hundi, er hleypur fram hjá.
Eins og óður maður, sem kastar tundurörvum, banvænum skeytum,
ins er sá maður, er svikið hefir náunga sinn og segir síðan: Eg er bara að gjöra að gamni mínu.
Þegar eldsneytið þrýtur, sloknar eldurinn, og þegar enginn er rógberinn, stöðvast deilurnar.
Eins og kol þarf til glóða og við til elds, svo þarf þrætugjarnan mann tbl að kveikja deilur.
Orð rógberans eru eins og sælgæti, og þau læsa sig inn í instu fylgsni hjartans.
Eldheitir kossar og út hjarta, það er sem sorasilfur utan á leirbroti.
Með vörum sínum gjörir hatursmaðurinn sér upp vinalæti, en í hjarta sínu hyggur hann á svik.
Þegar hann mælir fagurt, þá trú þú honum ekki, því að sjö andstygðir eru í hjarta hans.
Þótt hatrið hylji sig hræsni, þá verður þó fiska þess opinber á dómþinginu.
Sá, sem grefur gröf, fellur í hana, og steinninn fellur aftur í fang þeim, er veltir honum.
Lygin tunga hatar þá, er hún hefir sundur marið, og smjaðrandi munnur veldur glötun.