Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Öfunda ekki vonda menn og lát þig ekki langa til að vera með þeim;
því að hjarta þeirra býr yfir ofríkisverkum og varir þeirra mæla ógæfu.
Fyrir speki verður hús reist og fyrir hygni verður það staðfast;
fyrir þekking fyllast forðabúrin alls konar dýrum og yndislegum fjármunum.
Vitur maður er betri en sterkur og fróður maður betri en aflmikill;
því að holl ráð skalt þú hafa, er þú heyr stríð, og þar sem margir ráðgjafar eru, fer alt vel.
Vizkan er afglapanum of há; í borgarhliðinu lýkur hann ekki upp munni sínum.
Þann, sem leggur stund á að gjöra út, kalla menn varmenni.
Syndin er fiflslegt fyrirtæki og spottarinn er mönnum andstygð.
Látir þú hugfallast á neyðarinnar degi, þá er máttur þinn lítill.
Frelsaðu þá, sem leiddir eru fram til lífláts, og haltu þeim aftur, sem ganga skjögrandi að höggstokknum.
Segir þú: vér vissum það eigi!« — sá sem vegur hjörtun, hann verður sannarlega var við það, og sá sem vakir yfir sálu þinni, hann veit það, og mun gjalda manninum eftir verkum hans.
Ef þú hunang, son minn, því að það er gott, og hunangsseimur er gómi þínum sætur.
í Nem á sama hátt speki fyrir sálu þína; finnir þú hana, er framtíð fyrir hendi, og von þín mun eigi að engu verða.
Sit eigi, þú hinn óguðlegi, um bústað hins réttláta og eyðilegg ekki heimkynni hans.
Því að sjö sinnum fellur hinn réttláti og stendur aftur upp, en óguðlegir steypast í ógæfu.
Gleð þig eigi yfir falli óvinar þíns og hjarta þitt fagni eigi yfir því að hann steypist,
svo að Drottinn sjái það ekki og honum mislíki, og hann snúi reiði sinni frá honum til þín.
Reiðst ekki vegna illgjörðamanna, öfunda eigi óguðlega.
Því að vondur maður á enga framtíð fyrir höndum; á lampa óguðlegra sloknar.
Son minn, óttastu Drottinn og konunginn; samlaga þig ekki óróaseggjum.
Því að ógæfa þeirra ríður að þegar minst varir, og ófarir beggja — hver veit um þær?
Þessir orðskviðir eru líka eftir spekinga. Hlutdrægni í dómi er ljót.
Þeim, sem segir við hinn seka: »Þú hefir rétt fyrir þér!« honum formæla menn, honum bölvar fólk.
En þeim, sem hegna eins og ber, mun vel vegna, yfir þá kemur ríkuleg blessun.
Sá kyssir á varirnar, sem veitir rétt svör.
Annastu verk þitt utan húss og lúk því á akrinum; síðan getur þú bygt hús þitt.
Vertu eigi vottur gegn náunga þínum að ástæðulausu; eða mundir þú vilja svíkja með vörum þínum?
Seg þú ekki: »Eins og hann gjörði mér, eins ætla eg honum að gjöra; eg ætla að endurgjalda manninum eftir verkum hans!«
Mér varð gengið fram hjá akri letingja nokkurs og fram hjá víngarði óviturs manns.
Og sjá: hann var allur vaxinn klungrum, hann var alþakinn netlum, og steingarðurinn umhverfis hann var hruninn.
En eg varð þess var, veitti því athygli, sá það og lét mér það að kenningu verða.
Sofa ögn enn, blunda ögn enn, leggja saman hendurnar ögn enn, til að hvílast,
þá kemur fátæktin yfir þig eins og ræningi og skorturinn eins og vopnaður maður.