Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Vínið er spottari, sterkur drykkur glaumsamur, og hver sá, er drukkinn reikar, er óvitur.
Konungsótti er eins og ljónsöskur; sá, sem egnir hann á móti sér, fyrirgjörir lífi sínu.
Það er manni sómi, að halda sér frá þrætu, en hver afglapinn yglir sig.
Letinginn plægir ekki á haustin, fyrir því leitar hann um uppskerutímann og gripur í tómt.
Ráðsályktunin í hjarta mannsins er eins og djúp vötn, en hygginn maður eys hana upp.
Margir menn eru kallaðir kærleiksríkir, en tryggan vin, hver finnur hann?
Réttlátur maður gengur fram í ráðvendni sinni, sæl eru því börn hans eftir hann.
Þegar konungur situr á dómstóli, þá skilur hann alt út úr með augnaráði sínu.
Hver getur sagt: Eg hefi haldið hjarta mínu hreinu, eg er hreinn af synd?
Tvenns konar vog og tvenns konar mál, það er hvorttveggja Drottinn andstygð.
Sveinninn þekkist þegar á verkum sínum, hvort athafnir hans eru hreinar og einlægar.
Eyrað, sem heyrir, og augað, sem sér, hvorttveggja hefir Drottinn skapað.
Elskaðu ekki svefninn, svo að þú verðir ekki fátækur, opnaðu augun, þá muntu mettast af brauði.
»Slæmt! slæmt!« segir kaupandinn, en þegar hann gengur burt, hælist hann um.
Til er gull og gnægð af perlum, en hið dýrmætasta þing eru vitrar varir.
Tak þú af honum skikkjuna, því að hann hefir gengið í ábyrgð fyrir annan, og tak veð af honum vegna útlendra.
Sætt er svikabrauðið, en eftir á fyllist munnurinn möl.
Vel ráðin áform fá framgang, haf því holl ráð, er þú heyr stríð.
Sá, sem ljóstar upp leyndarmálum, gengur um sem rógberi; haf því engin mök við málugan mann.
Sá sem formælir föður og móður, á hans lampa sloknar í niðamyrkri.
Arfur, sem í upphafi var skjótfenginn, blessast eigi að lokum.
Seg þú ekki: Eg vil endurgjalda út! Bíð þú Drottinn, og hann mun hjálpa þér.
Tvenns konar vog er Drottinn andstygð og svikavog er ekki góð.
Spor mannsins eru ákveðin af Drottni, en maðurinn — hvernig fær hann skynjað veg sinn?
Það er manninum snara, að hrópa í fljótfærni: helgað! og hyggja fyrst að, þegar heitin eru gjörð.
Vitur konungur skilur úr hina óguðlegu og lætur síðan hjólið yfir þá ganga.
Andi mannsins er lampi frá Drottni, sem rannsakar hvern afkima hjartans.
Kærleiki og trúfesti varðveita konunginn, og hann styður hásæti sitt með kærleika.
Krafturinn er ágæti ungra manna, en hærurnar prýði öldunganna.
Blóðugar skrámur hreinsa illmennið og högg, sem duglega svíða.