Orðskviðirnir 2Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Orðskviðirnir 2

Son minn, ef þú veitir orðum mínum viðtöku og geymir boðorð mín hjá þér,

svo að þú ljáir spekinni athygli þína, hneigir hjarta þitt að hyggindum,

já, ef þú kallar á skynsemina og hrópar á hyggindin,

ef þú leitar að þeim sem að silfri og grefst eftir þeim eins og fólgnum fjársjóðum,

þá munt þú skilja, hvað ótti Drottins er, og öðlast þekking á Guði.

Því að Drottinn veitir speki; af munni hans kemur þekking og hyggindi;

hann geymir hinum ráðvöndu gæfuna, er skjöldur þeirra, sem breyta grandvarlega,

með því að hann vakir yfir stigum réttarins og varðveitir veg sinna guðhræddu.

Þá munt þú og skilja, hvað réttlæti er og réttur og ráðvendni, — í stuttu máli sérhverja braut hins góða.

Því að speki mun koma í hjarta þitt og þekking verða sálu þinni yndisleg;

aðsætni mun vernda þig og hyggindin varðveita þig,

til þess að frelsa þig frá vegi hins illa, frá þeim mönnum, sem fara með fals,

sem yfirgefa stigu einlægninnar og ganga á vegum myrkursins;

sem hafa gleði af því að gjóra út, fagna yfir ilsku-hrekkjum;

sem gjöra vegu sína hlykkjótta og komnir eru út á glapstigu í breytni sinni;

tj þess að frelsa þig frá annars manns konu, á frá annarlegri konu, sem mælir blíðskaparorðum,

sem yfirgefið hefir unnusta æsku sinnar og gleymt sáttmála Guðs síns;

því að hús hennar hnígur í dauðann og brautir hennar liggja niður til framliðinna;

þeir sem inn til hennar fara, snúa engir aftur, og aldrei komast þeir á lífsins stigu; —

fj þess að þú gangir á vegi góðra manna og haldir þig á stigum réttlátra.

Því að hinir hreinskilnu munu byggja landið og hinir grandvöru verða eftir í því.

En hinir óguðlegu munu upprættir verða úr landinu og hinum svikulu verða útrýmt þaðan. Em