Opinberunarbókin 5Krans-útgáfa

Opinberunarbókin 5

Og eg sá í hægri hendi hans, er í hásætinu sat, bók, skrifaða innan og utan, innsiglaða sjö innsiglum.

Og eg sá sterkan engil, boðandi með hárri röddu: Hver er maklegur að ljúka upp bókinni og leysa innsigli hennar?

Og enginn var sá í himninum, eða á jörðinni, eða undir jörðinni, sem lokið gæti upp bókinni og litið í hana.

Og eg grét stórum af því, að enginn fanst maklegur að ljúka upp bókinni og líta í hana.

Og einn af öldungunum segir við mig: Grát þú eigi! Sjá, sigrað hefir ljónið af Júda ættkvísl, rótarkvistur Davíðs, svo að það getur lokið upp bókinni og innsiglum hennar sjö.

Og mitt í milli hásætisins og veranna fjögurra og mitt á meðal öldunganna sá eg lamb standa, sem slátrað væri, það hafði sjö horn og sjö augu, og eru það hinir sjö andar Guðs, sendir út um alla jörðina.

Og það kom og tók við bókinni úr hægri hendi hans, er í hásætinu sat.

Og er það hafði tekið við henni, féllu verurnar fjórar og öldungarnir tuttugu og fjórir niður frammi fyrir lambinu, og höfðu þeir hver um sig hörpu og gullskálar, fullar af reykelsi, og eru það bænir hinna heilögu.

Og þeir syngja nýjan söng, segjandi: Verður ert þú að taka við bókinni og ljúka upp innsiglum hennar, því að þér var slátrað, og þú keyptir menn, Guði til handa, með blóði þínu, af sérhverri kynkvísl og tungu og lýð og þjóð,

og gjörðir þá, Guði vorum til handa, að konungsríki og að prestum, og þeir ríkja á jörðinni.

Og eg sá og eg heyrði raust margra engla hringinn í kring um hásætið og verurnar og öldungana, og tala þeirra var tíu þúsundir tíu þúsunda og þúsundir þúsunda;

þeir sögðu með hárri röddu: Maklegt er lambið hið slátraða að fá máttinn og ríkdóm og visku og kraft og heiður og dýrð og lofgjörð.

Og sérhverja skepnu sem er í himninum og á jörðinni og undir jörðinni og á hafinu, og alt sem í þeim er, heyrði eg segja: Honum, sem í hásætinu situr, og lambinu sé lofgjörðin og heiðurinn og dýrðin og krafturinn um aldir alda.

Og verurnar fjórar sögðu amen, og öldungarnir féllu fram og tilbáðu.