Gamla testamentiðLögmálið
Því næst sagði Drottinn við Móse: Gakk fyrir Faraó og seg við hann: Svo segir Drottinn, Guð Hebrea: Gef fólki mínu fararleyfi, að þeir megi þjóna mér;
en synjir þú þeim fararleyfis og haldir þú þeim enn lengur,
sjá, þá skal hönd Drottins koma yfir kvikfénað þinn, sem er í haganum, yfir hesta og asna og úlfalda, nautpening og sauðfé, með harðla þungu faraldri.
Og Drottinn mun gjöra þann mun á kvikfénaði Ísraelsmanna og kvikfénaði Egipta, að engin skepna skal deyja af öllu því, sem Ísraelsmenn eiga.
Og Drottinn tók til ákveðinn tíma og sagði: Á morgun mun Drottinn láta þetta fram fara í landinu.
Og Drottinn lét þetta fram fara að næsta morgni; dó þá allur kvikfénaður Egipta, en engin skepna dó af fénaði Ísraelsmanna.
Þá sendi Faraó menn og sjá: engin skepna hafði farist af fénaði Ísraelsmanna; en hjarta Faraós Var ósveigjanlegt og hann gaf fólkinu eigi fararleyfi. Sjötta plágan: kýlin.
Því næst sagði Drottinn við Móse og Aron: Takið handfylli ykkar af ösku úr ofninum og skal Móse dreifa henni í loft-upp að Faraó ásjáandi.
Skal hún þá verða að dufti um alt Egiptaland; en af því skal koma bólga, sem brýzt út í kýli, bæði á mönnum og fénaði um alt Egiptaland.
Þeir tóku þá ösku úr ofninum og gengu fyrir Faraó; dreifði þá Móse öskunni í loft upp, og kom þá á menn og fénað bólga, sem brauzt út í kýli.
En spásagnamennirnir gátu ekki komið á fund Móse sökum Þbólgunnar, því að bólga kom á spásagnamennina, eins og á alla Egipta.
En Drottinn herti hjarta Faraós og hann hlýddi þeim ekki, eins og Drottinn hafði sagt Móse. Sjöunda plágan: haglið.
Þá mælti Drottinn við Móse: Rís upp árla á morgun, gakk fyrir Faraó og seg við hann: Svo segir Drottinn, Guð Hebrea: Gef fólki mínu fararleyfi, að þeir megi þjóna mér.
Því að í þetta sinn ætla eg að senda allar plágur mínar yfir þig sjálfan, yfir þjóna þína og yfir fólk þitt, svo að þú vitir, að enginn er minn líki á allrijörðunni.
Því að eg hefði þegar getað rétt út hönd mína og slegið þig og fólk þitt með drepsótt, svo að þú yrðir afmáður af jörðinni.
En þess vegna hefi eg þig standa látið, til þess að eg sýndi þér mátt minn og til þess að nafn mitt yrði kunngjört um alla veröld.
Þú stendur enn í móti fólki mínu, með því að vilja ekki gefa þeim fararleyfi.
Sjá, á morgun í þetta mund vil eg láta dynja yfir svo stórfett hagl, að aldrei hefir slíkt komið á Egiptalandi, síðan landið varð til og alt til þessa dags.
Fyrir því send nú og tak sem skjótast inn fénað þinn og alt það, er þú átt úti; allir menn og skepnur, sem úti verða staddar og ekki eru í hús inn látnar og fyrir haglinu verða, munu deyja.
Sérhver af þjónum Faraós, sem óttaðist orð Drottins, hýsti inni hjú sín og fénað.
En þeir, sem ekki gáfu gaum að orðum Drottinn, létu hjú sín og fénað vera úti.
Þá sagði Drottinn við Móse: Rétt hönd þína til himins og þá skal hagl drifa yfir alt Egiptaland, yfir menn og skepnur, og yfir allan jarðargróða í Egiptalandi.
Þá lyfti Móse staf sínum til himins og Drottins lét þegar koma reiðarþrumur og hagl; og eldingum laust á jörð niður og Drottinn lét hagl dynja yfir Egiptaland.
Og haglið dundi og eldingunum laust í sífellu niður innan um haglið, er var svo geysi-stórt, að slíkt hafði ekki komið á öllu Egiptalandi, síðan það bygðist.
Og haglið laust til bana alt það, sem úti var í öllu Egiptalandi, bæði menn og skepnur; og haglið lamdi allan jarðargróða og braut hvert tré merkurinnar.
Aðeins í Gósenlandi, þar sem Ísraelsmenn bjuggu, kom ekkert hagl.
Þá sendi Faraó og lét kalla þá Móse og Aron og sagði við þá: Að þessu sinni hefi eg syndgað; Drottinn er réttlátur, en eg og mitt fólk höfum á röngu að standa.
Biðjið til Drottins; nóg er komið af reiðarþrumum og hagli; vil eg þá gefa yður fararleyfi og skuluð þér ekki bíða lengur.
Móse svaraði honum: Jafnskjótt sem eg er kominn út úr borginni, skal eg fórna höndum til Drottins og mun þá reiðarþrumunum linna og hagl ekki framar koma, svo að þú vitir, að jörðin tilheyrir Drottinn.
Og veit eg þó að þú og þjónar þínir óttast ekki enn Drottins Guðs.
Hör og bygg var niður slegið, því að öx voru komin á byggið og knappar á hörinn.
En hveiti og speldi var ekki niður slegið, því að þau koma seint upp.
Því næst gekk Móse burt frá Faraó og út úr borginni og fórnaði höndum til Drottins; linti þá reiðarþrumunum og haglinu, og regn streymdi ekki lengur niður á jörðina.
En er Faraó sá, að regninu, haglinu og reiðarþrumunum linti, hélt hann áfram að syndga og herti hjarta sitt, hann og þjónar hans.
Og hjarta Faraós harðnaði og hann gaf Ísraelsmönnum eigi fararleyfi, eins og Drottinn hafði sagt fyrir munn Móse.