Gamla testamentiðLögmálið
En Drottinn sagði við Móse: Þú skalt nú sjá, hvað eg vil gjöra Faraó; því að fyrir voldugri hendi skal hann þá lausa láta, fyrir voldugri hendi skal hann reka þá burt úr landi sínu.
Og Guð talaði við Móse og sagði við hann: Eg er Drottinn!
Eg birtist Abraham, Ísak og Jakob sem »almáttugur Guð«, en undir nafninu Drottins hefi eg eigi opinberast þeim.
Eg gjörði og við þá sáttmála, að gefa þeim Kanaanland, dvalarland þeirra, er þeir dvöldust í sem útlendingar.
Eg hefi og heyrt kveinstafi Ísraelsmanna, sem Egiptar hafa að þrælum gjört, og eg hefi minst sáttmála míns.
Seg því Ísraelsmönnum: Eg er Drottinn; eg vil leysa yður undan ánauð Egipta oghrífa yður úr þrældómi þeirra og frelsa yður með útréttum armlegg og miklum refsidómum.
Eg vil útvelja yður til að vera mitt fólk og eg vil Vera yðar Guð, og þér skuluð reyna, að eg er Drottinn, Guð yðar, sem leysi yður undan ánauð Egipta.
Og eg vil leiða yður inn í það land, sem eg sór að geta Abraham, Ísak og Jakob, og eg vil gefa yður það til eignar; eg er Drottinn.
Móse sagði Ísraelsmönnum þetta, en þeir sintu honum ekki sökum hugleysis og vegna hins stranga þrældóms.
Þá talaði Drottinn við Móse og sagði:
Gakk á tal við Faraó, Egiptalands konung, og bið hann leyfa Ísraelsmönnum burt úr landi sínu.
Og Móse talaði frammi fyrir augliti Drottins og mælti: Sjá, Ísraelsmenn - Vilja eigi gefa gaum að orðum mínum; hversu mun þá Faraó skipast við þau, þar sem eg er maður málstirður.
Þá talaði Drottinn við Móse og Aron og fékk þeim það erindi til Ísraelsmanna og Faraós, Egiptalands konungs, að þeir skyldu út leiða Ísraelsmenn af Egiptalandi. Ættartala Móse og Arons.
Þessir eru ætthöfðingjar meðal forfeðra þeirra: Synir Rúbens, frumgetins sonar Ísraels, voru þeir Hanok, Pallú, Hezron og Karmi; Þetta eru kynþættir Rúbens.
Og synir Símeons voru þeir Jemúel, Jamín, Óhad, Jakín, Zóhar og Sál, sonur konunnar kanversku; þetta eru kynþættir Símeons.
Þessi eru nöfn Leví sona eftir ættbálkum þeirra: Gerson, Kahat og Merari; en Leví varð hundrað þrjátíu og sjö ára gamall.
Synir Gersons voru þeir Líbní og Simeí eftir kynþáttum þeirra.
Synir Kahats voru þeir Amram, Jízehar, Hebron og Ússíel; en Kahat varð hundrað þrjátíu og þriggja ára gamall.
Synir Merarí voru þeir Mahelí og Músí; þetta eru kynþættir Levítanna eftir ættbálkum þeirra.
Amram fékk Jókebedar, föðursystur sinnar, og átti hún við honum þá Aron og Móse; en Amram varð hundrað þrjátíu og sjö ára gamall.
Synir Jízehars voru þeir Kóra, Nefeg og Síkrí.
Synir Ússíels voru þeir Mísael, Elzafan og Sítrí.
Aron fékk Elísebu, dóttur Ammínadabs, systur Nahsons, og átti hún við honum þá Nadab, Abíhú, Eleasar og Ítamar.
Synir Kóra voru þeir Assír, Elkana og Abíasaf; þetta eru kynþættir Kóraíta.
Og Eleasar, sonur Arons, gekk að eiga eina af dætrum Pútíels og hún ól honum Pínehas. Þetta eru ætthöfðingjar Levítanna eftir kynþáttum þeirra.
Það var þessi Aron og Móse, sem Drottinn bauð: leiðið Ísraelsmenn út af Egiptalandi eftir hersveitum þeirra.
Það voru þeir, sem boðuðu Faraó, Egiptalands konungi, að þeir mundu leiða Ísraelsmenn út úr Egiptalandi, þessi Móse og Aron.
Og er Drottinn talaði við Móse í Egiptalandi,
mælti hann til hans þessum orðum: Eg er Drottinn! Seg Faraó, Egiptalands konungi, alt, sem eg segi þér.
Og Móse sagði frammi fyrir augliti Drottins: Sjá, eg er maður málstirður, hversu má Faraó þá skipast við orð mín?