Gamla testamentiðLögmálið
Þú skalt gjöra altari til að brenna á reykelsi; það skalt þú búa til af akasíuviði.
Það skal vera álnarlangt og álnarbreitt, ferhyrnt, tveggja álna hátt og horn þess áföst við það.
Þú skalt leggja það skíru gulli, bæði að ofan og á hliðunum alt í kring, svo Og horn þess; og þú skalt gjöra brún af gulli á því alt í kring.
Og þú skalt gjöra á því tvo hringa af gulli fyrir neðan brúnina báðumegin; þú skalt gjöra þá á báðum hliðum þess; þeir skulu vera til að smeygja í stöngum til að bera það á.
Og þú skalt gjöra stengurnar af akasíuviði og gullleggja þær.
Og þú skalt setja það fyrir framan fortjaldið, sem er fyrir sáttmálsörkinni, — fyrir framan lokið, sem er yfir sáttmálinu, þar sem eg vil eiga samfundi við þig.
Og Aron skal brenna ilmreykelsi á því; hann skal brenna því á hverjum Morgni, þegar hann tilreiðir lampana.
Þegar Aron setur upp lampana um sólsetur, skal hann og brenna því; það skal vera stöðug reykelsisfórn frammi fyrir Drottni hjá yður frá kyni til kyns.
Þér skuluð ekki tórna annarlegu reykelsi á því, né heldur brennifórn eða matfórn, og Eigi megið þér dreypa dreypifórn á því.
Og Aron skal friðþægja fyrir horn þess einu sinni á ári; með blóðinu úr syndafórn friðþægingarinnar skal hann friðþægja fyrir það einu sinni á ári hjá yður frá kyni til kyns; það er háheilagt fyrir Drottni.
Og Drottinn talaði við Móse og sagði:
Þegar þú tekur manntal Meðal Ísraelsmanna við liðkönnun, þá skulu þeir hver um sig greiða Drottni gjald til lausnar lífi sínu, þegar þeir eru kannaðir, svo að engin Þlága komi yfir þá vegna liðkönnunarinnar.
Þetta skal hver sá gjalda, sem talinn er í liðkönnun: hálfan sikil eftir helgidómssikli — tuttugu gerur í sikli —, hálfan sikil sem lyftifórn til Drottins.
Hver Sem talinn er í liðkönnun, tvítugur og þaðan af eldri, skal greiða Drottni lyftifórn.
Hinn ríki skal eigi greiða meira og hinn fátæki ekki Minna en hálfan sikil, er þér færið Drottni lyftifórn, til þess að friðþægja fyrir sálir yðar.
Og þú skalt taka þetta friðþægingargjald af Ísraelsmönnum og leggja það til þjónustu samfundatjaldsins; það skal vera Ísraelsmönnum til minningar frammi fyrir Drottni, að það friðþægi fyrir sálir yðar.
Og Drottinn talaði við Móse og sagði:
Þú skalt gjöra eirker með eirstétt til þvottar; og þú skalt setja það milli samfundatjaldsins og altarisins og láta vatn í það;
og skulu þeir Aron og synir hans þvo hendur sínar og fætur úr því.
Þegar þeir ganga inn í samfundatjaldið, skulu þeir þvo sér úr vatni, svo að þeir deyi ekki; eða þegar þeir ganga að altarinu, til þess að embætta, til þess að brenna eldfórn Drottins til handa;
þá skulu þeir þvo hendur sínar og fætur, svo að þeir deyi ekki; þetta skal vera þeim ævarandi lögmál fyrir hann og niðja hans frá kyni til kyns. Um smurningarolíuna og reykelsið helga.
Og Drottinn talaði við Móse og sagði:
Tak þér hinar ágætustu kryddjurtir, fimm hundruð sikla af sjálfrunninni myrru, hálfu minna, eður tvö hundruð og fimtíu sikla, af ilmandi kanelberki og tvö hundruð og fimtíu sikla af ilmreyr;
og fimm hundruð sikla af kanelvíði eftir helgidómssikli og eina hin af olíuberjaolíu.
Af þessu skalt þú gjöra heilaga smurningarolíu, ilmsmyrsl, tilbúin að hætti smyrslara; skal það vera heilög smurningarolía.
Með þessu skalt þú smyrja samfundatjaldið og sáttmálsörkina,
borðið með öllum áhöldum þess, ljósastikuna með öllum áhöldum hennar og reykelsisaltarið,
brennifórnaraltarið með öllum áhöldum þess, kerið og stétt þess;
og skalt þú vígja þau, svo að þau verði háheilög; hver sem snertir þau, skal vera helgaður.
Þú skalt og smyrja Aron og sonu hans og vígja þá til að þjóna mér í prestsembætti.
Og þú skalt tala til Ísraelsmanna og segja: Þetta skal vera mér heilög smurningarolía hjá yður frá kyni til kyns.
Eigi má dreypa henni á nokkurs manns hörund, og með sömu gerð skuluð þér eigi tilbúa nein smyrsl; helg er hún og helg skal hún yður vera.
Hver sem býr til sams konar smyrsl eða ber nokkuð af þeim á óvígðan mann, skal upprættur verða úr þjóð sinni.
Og Drottinn sagði við Móse: Tak þér ilmjurtir, ópóbalsam, marnögl, galbankvoðu — ilmjurtir ásamt hreinni reykelsiskvoðu; skal vera jafnt af hverju.
Og þú skalt búa til úr því ilmreykelsi að hætti smyrslara, salti kryddað, hreint og heilagt.
Og nokkuð af því skalt þú mylja smátt og leggja það fyrir framan sáttmálið í samfundatjaldinu, þar sem eg vil eiga samfundi við þig; það skal vera yður háheilagt.
Og reykelsi, eins og þú tilbýr með þessari gerð, megið þér ekki búa til handa yður sjálfum; skalt þú meta það sem Drottinn helgað.
Skyldi einhver búa til nokkuð þvílíkt, til þess að gæða sér með ilm þess, skal hann upprættur verða úr þjóð sinni.