Gamla testamentiðLögmálið
Þú skalt ekki fara með lygikvittu; þú skalt ekki leggja lið þeim, er með rangt mál fer, til að gjörast ljúgvottur.
Þú Skalt ekki fylgja fjöldanum til illra verka; ef þú átt svör að veita í Sök nokkurri, þá skalt þú ekki á eitt leggjast með margnum til þess að halla réttu máli.
Ekki skalt þú vera hliðdrægur manni, þótt latsekur sé, í máli hans.
Ef þú finnur uxa óvinar þíns eða asna hans, sem vilst hefir, þá fær þú honum hann aftur.
Sjáir þú asna fjandmanns þíns liggja uppgefinn undir byrði sinni, þá skalt þú hverfa frá því, að láta hann einan; vissulega skalt þú hjálpa honum til að spretta af asnanum.
Þú skalt ekki halla rétti fátæks manns, sem hjá þér er, í máli hans.
Forðastu lygimál og ver eigi valdur að dauða saklauss manns og réttláts; því að eigi mun eg réttlæta þann, sem með rangt mál fer.
SOg eigi skalt þú mútu þiggja, því að mútan gjörir skygna menn blinda og umhverfir máli hinna réttlátu.
Eigi skalt þú veita útlendum manni ágang; þér vitið sjálfir, hvernig útlendum manni er innan brjósts, því að þér voruð útlendingar í Egiptalandi.
Sex ár skalt þú sá jörð þína og safna gróða hennar;
en sjöunda árið skalt þú láta hana liggja ónotaða og hvílast, svo að hinir fátæku meðal fólks þíns megi eta; það sem þeir leifa, mega villidýrin eta; eins skalt þú fara með víngarð þinn og olíutré þín.
Sex daga skalt þú verk þitt vinna, en sjöunda daginn skalt þú halda heilagt, svo að uxi þinn og asni geti hvítt sig, og sonur ambáttar þinnar og útlendingurinn megi endurnærast,
Alt, sem eg hefi sagt yður, skuluð þér halda. Nafn annara guða megið þér ekki nefna; eigi skal það heyrast af þínum munni.
Þrisvar á ári skalt þú mér hátíð halda.
Þú skalt halda hátíð hinna ósýrðu brauða; sjö daga skalt þú eta ósýrt brauð, eins og eg hefi boðið þér, á ákveðnum tíma í abíb-mánuði; því að í þeim mánuði fórst þú út af Egiptalandi; enginn skal koma tómhentur fyrir mitt auglit;
og hátíð frumskerunnar, frumgróðans af vinnu þinni, af því sem þú sáðir í akurinn; og uppskeruhátíðina við árslokin, er þú alhirðir afla þinn af akrinum.
Þrem sinnum á ári skal alt þitt karlkyn birtast frammi fyrir drotni Drottinn.
Eigi skalt þú fram bera blóð fórnar minnar með sýrðu brauði, og feitin af hátíðafórn minni skal ekki liggja til morguns.
Hið fyrsta, frumgróða jarðar þinnar, skalt þú færa til húss Drottins, Guðs þíns. Þú skalt ekki sjóða kið í mjólk móður sinnar.
Sjá, eg sendi engil á undan þér, til að varðveita þig á ferðinni og leiða þig til þess staðar, sem eg hefi fyrir búið.
Haf gát á þér fyrir honum og hlýð hans röddu; móðga þú hann ekki, því að hann mun ekki fyrirgefa misgjörðir yðar, því að mitt nafn er í honum.
En ef þú hlýðir röddu hans rækilega og gjörir alt, sem eg segi, þá skal eg vera óvinur óvina þinna og mótstöðu veita þínum mótstöðumönnum;
því að engill minn skal ganga á undan þér og leiða þig til Amóríta, Hetíta, Peresíta, Kanaaníta, Hevíta og Jebúsíta, og eg skal afmá þá.
Þú skalt ekki tilbiðja þeirra guði og ekki dýrka þá og ekki fara að háttum þeirra, heldur skalt þú gjöreyða þeim og með öllu sundur brjóta merkissteina þeirra.
Þér skuluð dýrka Drottin, Guð yðar, og hann mun blessa brauð þitt og vatn, og eg skal bægja sóttum burt frá þér.
Engin vanbyrja og engin óbyrja skal finnast í landi þínu; eg skal fylla tal daga þinna.
Ógn mína mun eg senda á undan þér og gjöra felmtsfullar allar þær þjóðir, sem þú kemur til, og alla óvini þína mun eg flýja láta fyrir þér.
Eg skal senda geitunga á undan þér og þeir skulu í burt stökkva Hevítum, Kanaanítum og Hetítum úr augsýn þinni.
Þó vil eg ekki stökkva þeim burt úr augsýn þinni á einu ári, svo að landið Á fari ekki í auðn og villidýrin fjölgi ekki þér til meins.
Smám saman vil eg stökkva þeim burt úr augsýn þinni, unz þú fjölgar og eignast landið.
Og eg vil setja landamerki þín frá Rauðahafinu til Filistahafs, og frá eyðimörkinni til fljótsins; því að eg mun gefa íbúa landsins á vald yðar og þú skalt stökkva þeim burt undan þér.
Þú skalt eigi gjöra sáttmála við þá eða þeirra guði.
Þeir skulu ekki búa í landi þínu, svo að þeir komi þér ekki til þess að syndga gegn mér; því ef þú dýrkar þeirra guði, mun það verða þér að tálsnöru.