Gamla testamentiðLögmálið
Og þessi eru nöfn Ísraels sona, sem komu til Egiptalands; með Jakob komu þeir, hver með sitt heimilisfólk:
Rúben, Símeon, Leví og Júda;
Íssakar, Sebúlon og Benjamín;
Dan og Naftalí, Gað og Asser.
En alls voru niðjar Jakobs sjötíu manns, og Jósef var fyrir í Egiptalandi.
Og Jósef dó og allir bræður hans og öll sú kynslóð.
Og Ísraelsmenn voru frjósamir, jukust, margfölduðust og fjölguðu stórum, svo að landið varð full af þeim.
Þá hófst til ríkis í Egiptalandi nýr konungur, sem engin deili vissi á Jósef.
Hann sagði við þjóð sína: Sjá, þjóð Ísraelsmanna er fjölmennari og aflmeiri en vér.
Látum oss fara kænlega að við hana, ella kynni hún að fjölga um of, og ef til ófriðar kæmi, kynni hún jafnvel að ganga í lið með óvinum vorum og berjast móti oss og fara síðan af landi burt.
Og þeir settu verkstjóra yfir hana, til þess að þjá hana með þrælavinnu, og hún bygði vistaborgir handa Faraó, Pítóm og Raamses.
En því meir sem þeir þjáðu hana, því meir fjölgaði hún og breiddist út, svo að þeir tóku að óttast Ísraelsmenn.
Og Egiptar þrælkuðu Ísraelsmenn vægðarlaust,
og gjörðu þeim lífið leitt með þungri þrælavinnu við leireltu og tigulsteinagjörð og með alls konar akurvinnu, með allri þeirri vinnu, er þeir vægðarlaust þrælkuðu þá með.
En Egiptalands konungur mælti til hinna hebresku ljósmæðra — hét önnur Sífra, en hin Púa:
Þegar þið sitjið yfir hebreskum konum, mælti hann, þá lítið á burðarsetið; sé barnið sveinbarn, þá deyðið það, en sé það meybarn, þá má það lifa.
En ljósmæðurnar óttuðust Guð og gjörðu eigi það, sem Egiptalands konungur bauð þeim, heldur létu sveinbörnin lifa.
Þá lét Egiptalands konungur kalla Ljósmæðurnar og sagði við þær: Því hafið þér svo gjört, að láta sveinbörnin lifa?
Ljósmæðurnar svöruðu Faraó: Hebreskar konur eru ólíkar egipzkum, því að þær eru hraustar; áður en ljósmóðirin kemur til þeirra, eru þær búnar að fæða.
Og Guð lét ljósmæðrunum vel farnast og fólkið fjölgaði og efldist mjög.
Og fyrir þá sök, að ljósmæðurnar óttuðust Guð, gaf hann þeim fjölda niðja.
Þá bauð Faraó öllum lýð sínum og sagði: Kastið í ána öllum þeim sveinbörnum, sem fæðast meðal Hebrea; en öll meybörn mega lífi halda.