Nehemíabók 7Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Nehemíabók 7

Þegar nú múrinn var bygður, setti eg hurðirnar í, og hliðvörðunum og söngvurunum og Levítunum var falið eftirlitið.

Og eg ski aði Hananí bróður minn og Hanpnja, yfirmann vígisins, yfir Jerúsalem, því að hann var svo áreiðanlegur maður og guðhræddur, að fáir voru hans líkar.

Og eg sagði við þá: Ekki skal ljúka upp hliðum Jerúsalem fyr en sól er komin hátt á loft; og áður en verðirnir fara burt, skal hurðunum Lokað og slár settar fyrir. Og það skal setja verði af Jerúsalem-búum, hvern á sína varðstöð, og það hvern gegnt húsi sínu.

En borgin var víðáttumikil og stór, en fátt fólk í henni og engin nýbygð hús.

Þá blés Guð minn mér því í brjóst, að safna saman tignarmönnunum, yfirmönnunum og lýðnum, til þess að láta taka manntal eftir ættum. Og eg fann ættarskrá þeirra, er fyrst höfðu farið heim, og þar fann eg ritað:

Þessir eru þeir úr skattlandinu, er heim fóru úr herleiðingarútlegðinni, þeir er Nebúkadnezar Babel-konungur hafði herleitt og nú sneru aftur til Jerúsalem og Júda, hver til sinnar borgar,

þeir sem komu með Serúbabel, Jesúa, Nehemía, Ásarja, Raamja, Nahamani, Mordekai, Bilsan, Misperet, Bigvaí, Nehúm og Baana. Talan á mönnum Ísraels-lýðs var:

Niðjar Pareós: tvö þúsund eitt hundrað sjötíu og tveir.

Niðjar Sefatja: þrjú hundruð sjötíu og tveir.

Niðjar Ara: sex hundruð fimtíu og tveir.

Niðjar Pahat-Móabs, sem sé niðjar Jesúa og Jóabs: tvö þúsund átta hundruð og átján.

Niðjar Elams: eitt þúsund tvö hundruð fimtíu og fjórir.

Niðjar Sattú: átta hundruð fjörutíu og fimm.

Niðjar Sakkaí: sjö hundruð og sextíu.

Niðjar Binnúi: sex hundruð fjörutíu og átta.

Niðjar Bebaí: sex hundruð tuttugu og átta.

Niðjar Asgads: tvö þúsund þrjú hundruð tuttugu og tveir,

Niðjar Adóníkams: sex hundruð sextíu og sjö.

Niðjar Bigvaí: tvö þúsund sextíu og sjö.

Niðjar Adins: sex hundruð fimtíu og fimm.

Niðjar Aters, frá Hiskía: níutíu og átta.

Niðjar Hasúms: þrjú hundruð tuttugu og átta.

Niðjar Bezai: þrjú hundruð tuttugu og fjórir.

Niðjar Harifs: hundrað og tólf.

Ættaðir frá Gibeon: níutíu og fimm.

Ættaðir frá Betlehem og Netófa: hundrað áttatíu og átta.

Menn frá Anatót: hundrað tuttugu og átta.

Menn frá Bet-Asmavef: fjörutíu og tveir.

Menn frá Kirjat-Jearím, Kefíra og Beerót: sjö hundruð fjörutíu og þrír.

Menn frá Rama og Geba: sex hundruð tuttugu og einn.

Menn frá Mikmas: hundrað tuttugu og tveir.

Menn frá Betel og Af: hundrað tuttugu og þrír.

Menn frá Nebó: fimtíu og tveir.

Niðjar Elams hins annars: eitt þúsund tvö hundruð fimtíu og fjórir.

Niðjar Haríms: þrjú hundruð og tuttugu.

Ættaðir frá Jeríkó: þrjú hundruð fjörutíu og fimm.

Ættaðir frá Lód, Hadíd og Onó: sjö hundruð tuttugu og einn.

Ættaðir frá Senaa: þrjú þúsund níu hundruð og þrjátíu,

Prestarnir: Niðjar Jedaja, af ætt Jesúa: níu hundruð sjötíu og þrír.

Niðjan Immers: eitt þúsund fimtíu og tveir.

Niðjar Pashúrs: eitt þúsund tvö hundruð fjörutíu og sjö.

Niðjar Haríms: eitt þúsund og seytján.

Levítarnir; Niðjar Jesúa og Kadmíels, af niðjum Hódeja: sjötíu og fjórir.

Söngvararnir: Niðjar Asafs: hundrað fjörutíu og átta.

Hliðverðirnir: Niðjar Sallúms, niðjar ÁAters, niðjar Talmóns, niðjar Akúbs, niðjar Hatíta, niðjar Sóbaí: hundrað þrjátíu og átta.

Musterisþjónarnir: Niðjar Zíha, niðjar Hasúfa, niðjar Tabbaóts,

niðjar Kerós, niðjar Sía, niðjar Padóns,

niðjar Lebana, niðjar Hagaba, niðjar Salmaií,

niðjar Hanans, niðjar Giddels, niðjar Gahars,

niðjar Reaja, niðjar Rezíns, niðjar Nekóda,

niðjar Gassams, niðjar Ússa, niðjar Pasea,

niðjar Besaí, niðjar Meúnita, niðjar Nefísíta,

niðjar Bakbúks, niðjar Hakúfa, niðjar Harhúrs,

niðjar Bazelits, niðjar Mehída, niðjar Harsa,

niðjar Barkós, niðjar Sísera, niðjar Tema,

niðjar Nezía, niðjar Hatífa.

Niðjar þræla Salómós: niðjar Sótaí, niðjar Sóferets, niðjar Perída,

niðjar Jaela, niðjar Darkóns, niðjar Giddels,

niðjar Sefatja, niðjar Hattils, niðjar Pókeret-Hazzebaíms, niðjar Amóns,

allir musterisþjónarnir og niðjar þræla Salómós voru þrjú hundruð níutíu og tveir.

Og þessir eru þeir, sem fóru heim frá Tel-Mela, Tel-Harsa, Kerúb, Addón og Immer, en kunnu eigi að greina ætt sína og uppruna, hvort þeir væru komnir af Ísrael:

niðjar Delaja, niðjar Tobía, niðjar Nekóda: sex hundruð fjörutíu og tveir.

Og af prestunum: niðjar Hobaja, niðjar Hakkóz, niðjar Barsillaí, er gengið hafði að eiga eina af dætrum Barsillaí Gíleaðita og nefndur hafði verið nafni þeirra.

Þessir leituðu að ættartölum sínum, en þær fundust ekki, var þeim því hrundið frá prestdómi.

Og landstjórinn sagði þeim, að þeir mæltu ekki eta af hinu háheilaga, þar til er kæmi fram prestur, er kynni að fara með úrím og túmmím.

Allur söfnuðurinn var til samans fjörutíu og tvær þúsundir þrjú hundruð og sextíu,

auk þræla þeirra og ambátta, er voru sjö þúsund þrjú hundruð þrjátíu og sjö; og þeir höfðu tvö hundruð fjörutíu og fimm söngvara og söngkonur.

Hestar þeirra voru sjö hundruð þrjátíu og sex, múlar tvö hundruð fjörutíu og fimm,

úlfaldar fjögur hundruð þrjátíu og fimm, asnar sex þúsund sjö hundruð og tuttugu.

Og nokkur hluti ætthöfðingjanna gáfu til byggingarinnar. Landstjórinn gaf í sjóðinn: í gulli þúsund daríka, firntíu fórnarskáJar, þrjátíu prestserki og fimm hundruð.

Og sumir ætthöfðingjanna gáfu í byggingarsjóðinn: í gulli tuttugu þúsund daríka og í silfri tvö þúsund og tvö hundruð mínur.

Og það, sem hitt fólkið gaf, var: í gulli tuttugu þúsund daríkar og í silfri tvö þúsund mínur og sextíu og sjö Prestserkir.

Og þannig bjuggu prestarnir og Levítarnir og hliðverðirnir og söngvararnir og nokkurir af lýðnum og musterisþjónarnir og allur Ísrael í borgum sínum. En er sjöundi mánuðurinn kom, og Ísraelsmenn voru í borgum sínum,