Nehemíabók 5Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Nehemíabók 5

En það varð mikið kvein meðal lýðsins og meðal kvenna þeirra yfir bræðrum þeirra, Júðunum.

Því að sumir sögðu: Sonu vora og dætur verðum vér að veðselja; vér verðum að fá korn, svo að vér megum eta og lifi halda.

Og aðrir sögðu: Akra vora, vingarða og hús verðum vér að veðsetja; vér verðum að fá korn í hallærinu!

Og enn aðrir sögðu: Vér höfum tekið fé að láni upp á akra vora og víngarða í konungsskattinn.

Og þótt hold vort sé eins og hold bræðra vorra, börn vor eins og börn þeirra, þá verðum vér nú að gjöra sonu vora og dætur að ánauðugum þrælum; og sumar af dætrum vorum eru þegar orðnar ánauðugar, og vér getum ekkert við því gjört, þar eð akrar vorir og víngarðar eru á annara valdi.

á varð eg mjög reiður, er eg heyrði kvein þeirra og þessi ummæli.

Og eg hugleiddi þetta með sjálfum mér og taldi á tignarmennina og yfirmennina og sagði við þá: Þér beitið okri hver við annan? Og eg stefndi mikið þing í móti þeim

Sog sagði við þá: Vér höfum keypt lausa bræður vora, Júðana, sem seldir voru heiðingjunum, svo oft sem oss var unt; en þér ætlið jafnvel að selja bræður yðar, svo að þeir verði seldir oss? Þá þögðu þeir og gátu engu svarað.

Og eg sagði: Það er ekki fallegt, sem þér eruð að gjöra. Ætttuð þér ekki heldur að ganga í ótta Guðs vors vegna smánaryrða heiðingjanna, óvina vorra?

Bæði eg og bræður mínir og sveinar mínir höfum líka lánað þeim silfur og kom; vér stullum því láta Þessa skuldakröfu niður falla.

Gjörið það fyrir mig, að skila þeim aftur þegar í dag ökrum þeirra og víngörðum þeirra og olívugörðum þeirra og húsum þeirra, og látið niður falla skuldakröfuna um silfrið og komið, um vínberjalöginn og olíuna, er þér hafið lánað þeim.

Þá sögðu þeir: Vér viljum skila því aftur og einskis krefjast af þeim; vér viljum gjöra sem þú segir. Þá kallaði eg á prestana og lét þá vinna eið að því, að þeir skyldu fara eftir þessu.

Eg hristi og skikkjubarm minn og sagði: Þannig hristi Guð sérhvern þann, er eigi heldur þetta loforð, burt úr húsi hans og frá eign hans, og þannig verði hann gjörhristur og tæmdur. Og allur þingheimur sagði: Svo skal vera! og þeir vegsömuðu Drottinn. Og lýðurinn breytti samkvæmt þessu.

Eru þeim degi, er hann setti mig til að vera landstjóri þeirra, í Júdalandi — frá tuttugasta ríkisári Artahsasta konungs til þrítugasta og annars ríkisárs hans, tólf ár — naut eg heldur ekki, né bræður mínir, landstjóra-borðeyrisins.

En hinir fyrri landstjórar, þeir er á undan mér voru, höfðu kúgað lýðinn og tekið af þeim fjörutíu sikla silfurs á dag fyrir brauði og víni; auk þess höfðu sveinar þeirra drotnað yfir lýðnum. En ekki breytti eg þannig, því að eg óttaðist Guð.

Eg vann og að byggingu þessa múrs, og höfðum vér þó ekki keypt neinn akur, og allir sveinar mínir voru þar saman safnaðir að byggingunni.

En Júðar og yfirmennirnir, hundrað og fimtíu að tölu, svo og þeir er komu til mín frá þjóðunum, er bjuggu umhverfis oss, átu við mitt borð.

Og það sem matreitt var á hverjum degi — eitt naut, sex úrvals-kindur og fuglar —, það var matreitt á minn kostnað, og tíunda hvern dag nægtir af alls konar víni. En þrátt fyrir þetta krafðist eg ekki landstjóra-borðeyris, því að lýður þessi var í mikilli ánauð.

Virztu, Guð minn, að muna mér til góðs alt það, sem eg hefi gjört fyrir þennan lýð.