Gamla testamentiðSpámennirnir
Heyrið, hvað Drottinn segir: Statt upp og sæk sök fyrir fjöllunum, svo að hæðirnar megi heyra raust þína.
Heyrið kærumál Drottins, þér fjöll, og hlýðið á, þér undirstöður jarðarinnar; því að Drottinn hefir mál að kæra við þjóð sína og gengur í dóm við Ísrael.
Þjóð mín, hvað hefi eg gjört þér og með hverju hefi eg þreytt þig? Vitna þú í gegn mér!
Eg leiddi þig þó út af Egiptalandi og frelsaði þig úr þrælahúsinu og sendi þér Móse, Aron og Mirjam til forystu.
Þjóð mín, minst þú þess, hvað Balak Móabskonungur hafði í hyggju og hverju Bíleam Beórsson svaraði honum; minst þú þess, er gjörðist á leiðinni frá Sittím til Gilgal, til þess að þú kannist við velgjörðir Drottins.
»Með hvað á eg að koma fram fyrir Drottni, beygja mig fyrir Guði á hæðum? Á eg að koma fram fyrir hann með brennifórnir, með ársgamla kálfa?
Hefir Drottinn þóknun á þúsundum hrúta, á tíþúsundum olíulækja? Á eg að fórna frumgetnum syni mínum fyrir misgjörð mína, ávexti kviðar míns sem syndafórn sálar minnar?«
Hann hefir sagt þér, maður, hvað gott sé! Og hvað heimtar Drottinn annað af þér en að gjöra rétt, ástunda kærleika og fram ganga í lítillæti fyrir Guði þínum?
Heyr, Drottinn kallar til borgarinnar — og það er vizka að óttast nafn hans—; heyrið, kynstofn og saman kominn borgarlýður!
Á eg að láta sem eg sjái ekki, í húsi hins óguðlega, rangfengin auðæfi og oflitla efn, sem bölvun er lýst yfir?
Á eg að láta honum óhegnt, þótt hann hafi ranga vog og svikna vogarsteina í sjóði sínum?
Ríkismenn hennar eru fullir af ofríki, íbúar hennar tala lygar og tungan fer með svik í munni þeirra.
Því tek eg og að ljósta þig, að eyða vegna synda þinna.
Þú skalt eta, en þó ekki saddur verða, heldur skal hungrið haldast við í þér. Þótt þú takir eitthvað frá, þá skalt þú eigi fá bjargað því; og það, sem þú bjargar, skal eg ofurselja sverðinu.
Þótt þú sáir, skalt þú ekkert uppskera. Þótt þú troðir olíuberin, skalt þú eigi smyrja þig með olíu, og þótt þú fáir vínberjalöginn, skalt þú ekki vínið drekka.
Þú hefir haldið setningum Omrí og öllu athæfi Akabs húss; og þér hafið breytt eftir háttum þeirra, til þess að eg gjöri hana að auðn og láti íbúa hennar verða að spotti — já, þér skuluð bera háð þjóðanna.