Malakíbók 4Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Malakíbók 4

Því sjá, dagurinn kemur, brennandi sem ofn; og allir hrokafullir og allir þeir, er guðleysi fremja, munu þá vera sem hálmleggir, og dagurinn, sem kemur, mun kveikja í þeim, segir Drottinn hersveitanna, svo að hvorki verði eftir af þeim rót né kvistur,

En yfir yður, sem óttist nafn mitt, mun réttlætissólin upp renna með græðslu undir vængjum sínum, og þér munuð út koma og leika yður eins og kálfar, sem út er hleypt úr stíu,

Og þér munuð sundur troða hina óguðlegu, því að þeir munu verða aska undir iljum yðar, á þeim degi, er eg hefst handa, segir Drottinn hersveitanna.

Munið eftir lögmáli Móse þjóns míns, þess er eg á Hóreb fól setninga og ákvæði fyrir allan Ísrael.

Sjá, eg sendi yður Elía spámann áður en hinn mikli og ógurlegi dagur Drottins kemur;

hann mun sætta feður við sonu og sonu við feður, til þess að eg komi ekki og ljósti landið banni.